Birgitta Jónsdóttir, fyrrum alþingismaður, mun ekki sitja í trúnaðarráði Pírata eftir að tilnefningu hennar í ráðið var hafnað í atkvæðagreiðslu á félagsfundi og í kosningakerfi Pírata í gærkvöldi. Af 68 atkvæðum kusu 55 gegn og 13 með tilnefningunni, að því er kemur fram í frétt Viljans.
Enginn viðstaddur úr þingflokki Pírata studdi Birgittu, samkvæmt heimildum Viljans, það voru þingmennirnir Helgi Hrafn Gunnarsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Halldóra Mogensen og Oktavía Hrund Jónsdóttir. Samkvæmt heimildinni báru einhverjir viðstaddir fyrri samstarfsörðugleikum við.
[adspot]Í lokuðum hópi Pírata skrifaði Birgitta „Ég vil þakka þeim sem veittu mér traust á þessum fundi áðan. Ég ætla að skrá mig úr þessum hóp til að vera ekki fyrir þeim sem vilja mig ekki í Flokkinn. Kær kveðja Grýla,“ að því er kemur fram í frétt Viljans.
Ekki náðist í Birgittu við vinnslu þessarar fréttar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir