Bílastæðaappið Leggja selt alþjóðlegu fyrirtæki og verður lagt niður

Kaupverð EasyPark á þjón­ust­unni frá Já er trún­að­ar­mál. Leggja-app­inu verður skipt út.

Bílastæðaappið Leggja selt alþjóðlegu fyrirtæki og verður lagt niður
Umferðin Kaupverð á Leggja app­inu er trún­að­ar­mál. Mynd: Shutterstock

EasyPark, alþjóð­legt fyr­ir­tæki sem sinnir tækni­lausnum í bíla­stæða­málum í yfir 1.300 borgum í 18 löndum, hefur keypt Leggja-appið af fyr­ir­tæk­inu Já. Kaup­verðið er trún­að­ar­mál, að sögn Vil­borgar Helgu Harð­ar­dóttur, for­stjóra Já.

Í til­kynn­ingu vegna kaupanna kemur fram að Leggja-appið muni virka áfram, en á næstu mán­uðum muni við­skipta­vinir fá boð um að skipta yfir í EasyPark-appið. Fram að því muni not­endur ekki finna fyrir neinni breyt­ingu og Leggja-appið muni einnig virka áfram „fyrstu mán­uð­ina meðan skiptin ganga í gegn“.

Stundin hefur áður fjallað um Leggja-appið sem Já keypti á 60 millj­ónir króna árið 2017 af því sem ráða má af árs­reikn­ingum. Appið gerir fólki mögu­legt að greiða í stöðu­mæla í Reykja­vík með símunum sínum, en Bíla­stæða­sjóður hefur ekki haft til skoð­unar að hanna eigið app. Hönnuður Leggja, Hreinn Gúst­avs­son, var í fram­haldi söl­unnar ráð­inn sem sviðs­stjóri vöru- og við­skipta­þró­unar hjá Já og hefur ekki viljað stað­festa kaup­verðið.

Leggja-appið heldur eftir 2,5 pró­sentum af öllum stöðu­gjöldum sem inn­heimt eru fyrir Bíla­stæða­sjóð til að mæta kostn­aði. Notendur greiða auk þess mán­að­ar­gjald upp á 529 krónur eða 95 króna þjón­ustu­gjald fyrir hvert skipti sem bíl er lagt. Til að setja upp­hæð­ina í sam­hengi jafn­gildir þjón­ustu­gjaldið 50 pró­senta álagi á stöðu­gjald sé bif­reið lagt í einn klukku­tíma á gjald­svæðum P2, P3 eða P4 í Reykja­vík.

Samn­ingur hefur verið í gildi á milli Bíla­stæða­sjóðs og Leggja með ýmsum skil­málum. Síðan appið kom til sög­unnar hafa gömlu stöðu­mæl­arnir verið teknir úr umferð. Í stað­inn komu mælar sem taka við greiðslu­kortum ásamt mynt, en þeim fer fækk­andi líka.

Í sam­tali við Stundina sagði Vilborg kaup­verð EasyPark vera trún­að­ar­mál. „Við erum mjög stolt af Leggja og þökkum lands­mönnum afar jákvæðar við­tökur,“ segir hún. „Með kaupum EasyPark á Leggja verður við­skipta­vinum boðið upp á að nýta sömu þjón­ustu víðar sem auð­veldar lands­mönnum að leggja í útlöndum og sömu­leiðis ferða­mönnum að leggja hér­lendis. EasyPark er leið­andi á þessu sviði með lausn og þjón­ustu í stöðugri þróun sem Íslend­ingar munu njóta góðs af. Þetta er því mjög spenn­andi breyt­ing fyrir við­skipta­vini Leggja.”

Leið­rétt­ing: Í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar var sagt að Leggja-appið væri það eina sem hefur gert samn­ing við Bíla­stæða­sjóð. Hið rétta er að síðan í haust hafa bæst við að minnsta kosti tveir sam­keppn­is­að­ilar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár