Forstjóri Samkeppniseftirlitsins: „Þar sem er vesen, þar erum við“

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að gera megi ráð fyrir því að fyr­ir­tæki sem lendi í rann­sókn vegna brota eða sam­keppn­is­hind­r­ana séu ekki ánægð með starf­semi eft­ir­lits­ins.

„Það mátti gera ráð fyrir því fyrir fram að í þeim hópi myndi Sam­keppn­is­eft­ir­litið kannski líta út fyrir, eða koma illa út, í sam­an­burði ein­fald­lega vegna þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið er frá­brugðið öðrum stofn­unum sem spurt var um vegna þess að við erum brota­eft­ir­lit. Þar sem er vesen, þar erum við.“

Þetta segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem sýndur verður klukkan 21:00 í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Þar ræða þeir meðal ann­ars um nýbirta könnun sem ráð­gjafa­nefnd um opin­berar eft­ir­lits­reglur lét Maskínu gera til að kanna eft­ir­lits­menn­ing­una á Íslandi, og var birt nýverið. Í nið­ur­stöð­unum kemur fram að af mati á 16 mis­mun­andi eft­ir­lits­stofn­unum kom Sam­keppn­is­eft­ir­litið hvað verst út.

Páll Gunnar segir að það sé jákvætt að kann­anir sem þessar séu gerðar. „Við erum alltaf að hlusta eftir því hvernig hægt sé að gera hlut­ina betur. Í þessi til­viki þá er ein­hver hópur fyr­ir­tækja á ein­hverjum lista hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins spurður. Það eru all­nokkrar eft­ir­lits­stofn­anir þarna undir.“

[adspot]Gera mætti ráð fyrir því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið kæmi illa út vegna eðlis starf­semi þess, sem snýst um brota­eft­ir­lit. „Við erum að grípa inn í þegar okkur sýn­ist að ein­hver brot eða sam­keppn­is­hindr­anir séu í gangi. Það leiðir af eðli máls að fyr­ir­tæki sem lendir í rann­sókn hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu er ekk­ert sér­stak­lega ánægt með það.“

Hann segir að það hafi valdið sér von­brigðum hversu tak­mörkuð könn­unin sé. „Það kemur í ljósi að 21 fyr­ir­tæki af þessum hópi seg­ist hafa verið í sam­skiptum við sam­keppn­is­eft­ir­litið á síð­ustu tólf mán­uðum. Það er afar lit­ill hópur. Okkur sýn­ist að á árinu 2018 höfum við verið í form­legum sam­skiptum við upp undur 450-500 fyr­ir­tækið.“

Þorri þeirra sam­skipta séu góð. „Þannig að það er erfitt að sjá hvað sé hægt að lesa út úr þessu, alla­vega í augna­blik­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár