Tekjur fjölmiðla minnkað til muna frá því fyrir hrun

Sam­an­lagðar tekjur íslenskra fjöl­miðla námu 27,9 millj­örðum króna árið 2017, tekj­urnar lækk­uðu lít­il­lega á milli ára eða um 2 pró­sent. Hlut­deild RÚV nam 22 pró­sent af heild­ar­tekjum fjöl­miðla og um 16 pró­sent af aug­lýs­inga­tekjum.

Tekjur íslenskra fjöl­miðla lækk­uðu lít­il­lega á árinu 2017 frá fyrra ári, eða um tvö pró­sent. Sam­an­lagðar tekjur fjöl­miðla námu 27,9 millj­örðum króna árið 2017. Tekjur af not­enda­gjöldum voru tæpir 15 millj­arðar og af aug­lýs­ingum og kostun rúm­lega 13 millj­arður króna. Hlut­deild einka­rek­inna fjöl­miðla nam 78 pró­sent af sam­an­lögðum tekjum á fjöl­miðla­mark­aði og 84 pró­sent af aug­lýs­inga­tekjum árið 2017, á móti 22 pró­senta og 16 pró­senta hlut Rík­is­út­varps­ins.

Í kjöl­far hruns­ins dróg­ust tekjur fjöl­miðla tals­vert saman en sam­an­lagðar tekjur fjöl­miðla árið 2017 hafa lækkað um 18 pró­sent frá því þegar best lét árin 2006 og 2007. Í dag fellur helm­ingur tekna fjöl­miðla fellur til sjón­varps og fjórð­ungur til dag­blaða og viku­blaða. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Hagstofu Íslands um tekjur fjöl­miðla.

Tekjur af útgáfu blaða og tímarita hafa lækkað hátt í helming frá árinu 2006

Tals­verður sam­dráttur varð í tekjum fjöl­miðla í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008 en frá árunum 2007 til 2010 lækk­uðu tekjur fjöl­miðla um ríf­lega fjórð­ung. Síðan þá hafa tekj­urnar auk­ist lít­il­lega, þær eru nú sam­bæri­legar við það sem var í kringum alda­mótin og næstu árin þar á eftir. Þrátt fyrir sam­drátt í tekjum varð þetta minni sam­dráttur hér­lendis en hjá fjöl­miðlum í öðrum löndum, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Mestu mun­aði um sam­drátt í aug­lýs­inga­tekjum, en þær eru nú 28 pró­sent lægri í dag þær voru hæstar árið 2007, reiknað á föstu verð­lagi. Á sama tíma hafa áskrif­ar­tekjur lít­il­lega hækkað eða um eitt pró­sent.

Tekju­sam­drátt­ar­ins gætir á ólíkan hátt eftir miðlum, en sam­drátt­ur­inn er mestur í útgáfu blaða og tíma­rita. Samkvæmt nið­ur­stöðum Hagstfounnar má það að miklu leyti rekja til breyttrar fjöl­miðla­notk­unar með til­komu nýrra og fjöl­breytt­ari leiða við miðlun sjón­varps og myndefnis, ásamt sífellt auk­innar net­notk­unar almenn­ings og greiðslu aug­lýsenda fyrir birt­ingu aug­lýs­inga á erlendum vef­miðlum. Tekjur af útgáfu blaða og tíma­rita hafa þannig lækkað hátt í helm­ing að raun­virði frá árinu 2006. Á sama tíma hafa tekjur hljóð­varps auk­ist um 13 pró­sent og sjón­varps um fjögur pró­sent, á meðan tekjur vef­miðla hafa meira en fjór­fald­ast á föstu verð­lagi.

Hlutur Ríkisútvarpsins 22 prósent af heildartekjum fjölmiðla

Frá því að einka­réttur Rík­is­út­varps­ins var afnum­inn í árs­byrjun 1986 og starf­semi einka­rek­inna hljóð­varps- og sjón­varps­stöðva hófst lækk­aði hlut­deild RÚV í tekjum hljóð­varps og sjón­varps hratt. Frá árinu 1997 hefur hlutur Rík­is­út­varps­ins í heild­ar­tekjum fjöl­miðla lækkað úr 26 pró­sent í 22 pró­sent árið 2017.

Árið 2017 féllu um 58 pró­sent tekna af hljóð­varpi og um 29 pró­sent tekna af sjón­varps­starf­semi í hlut Rík­is­út­varps­ins, eða alls 35 pró­sent af sam­an­lögðum tekjum hljóð­varps- og sjón­varps. Af tæp­lega 28 millj­arða króna tekjum fjöl­miðla árið 2017 runnu 21,7 millj­arðar króna til fjöl­miðla í einka­eigu á móti tæp­lega 6,2 millj­örðum króna til Rík­is­út­varps­ins.

Hlutdeild RÚV í auglýsingatekjum fjölmiðla 16 prósent

Eftir að starf­semi einka­rek­inna hljóð­varps- og sjón­varps­stöðva hófst lækk­aði hlut­deild í RÚV eðli­lega einnig í aug­lýs­inga­tekjum. En sam­kvæmt Hag­stof­unni jókst hlutur þess á ný í sam­an­lögðum aug­lýs­inga­tekjum sjón­varps frá hruni. Hlut­deild þess hefur frá árinu 2010 að mestu staðið í stað, eða verið milli 45 til 48 pró­sent, en árið 2017 var hlut­deild RÚV 48 pró­sent. Hins vegar hefur hlutur RÚV í aug­lýs­inga­tekjum hljóð­varps lækkað tals­vert frá 2013, eða úr 45 í 34 pró­sent árið 2017.

Í heild­ina var hlut­deild RÚV í aug­lýs­inga­tekjum fjöl­miðla 16 pró­sent árið 2017. Það ár runnu 11 millj­arðar króna af aug­lýs­inga­tekjum fjöl­miðla til einka­að­ila á móti tveimur millj­örðum króna sem féllu í hlut Rík­is­út­varps­ins. Á sama tíma nam hlut­deild þess í aug­lýs­inga­tekjum hljóð­varps 34 pró­sent og 48 pró­sent í aug­lýs­inga­tekjum sjón­varps. Sam­an­lögð hlut­deild Rík­is­út­varps­ins á útvarps­mark­aði árið 2017 var 41 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár