Vilja að hlutfall efnis verði lækkað svo Fréttablaðið teljist styrkhæft

Frétta­blaðið upp­fyllir ekki skil­yrði fyrir end­ur­greiðslu á kostn­aði við rit­stjórn, sam­kvæmt „laus­legri“ taln­ingu.

Torg ehf., útgef­andi Frétta­blaðs­ins, leggur til, í umsögn sinni um frum­varp um íviln­anir fyrir einka­rekna fjöl­miðla, að skil­yrði til end­ur­greiðslu kostn­aðar verði breytt þannig að rit­stjórn­ar­efni skuli að lág­marki vera 30 pró­sent í stað 40 pró­sent hjá miðl­inum. „Ástæða þess er sú að við laus­lega taln­ingu á þessu hlut­falli í Frétta­blað­inu er ljóst að blaðið er á mörkum þess að upp­fylla skil­yrðið. Ef slík lög væru sett og stærsti prent­mið­ill lands­ins gæti ekki fengið styrk vegna þess að hann upp­fyllti ekki skil­yrðin er ljóst að lögin væru að engu leyti að ná til­gangi sínum,“ segir í umsögn Torgs, sem birt hefur veri í sam­ráðs­gátt­inni.

Þá vill Torg gera miklar breyt­ingar á starf­semi RÚV, og flytja millj­arð frá RÚV til Torgs, Árvakurs og Sýnar, þriggja stærstu fyr­ir­tækj­anna sem reka rit­stjórnir, og minni miðla.

Tillögur Torgs eru á þá leið, að Torg - ásamt Árvakri og Sýn - eigi að fá 600 millj­ónir frá rík­inu á meðan minni miðlar fái minna, sam­tals 400 millj­ónir fyrir þá alla.

Þá vill Torg að þakið á end­ur­greiðsl­unum, sem er miðað við 50 millj­ónir í frum­varpi Lilju Daggar Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, verði hækkað, svo að frum­varpið geti náð til­gangi sínum, og að þannig geti farið meiri fjár­munir til Torgs, Árvakurs og Sýnar.

Í umsögn Torgs, þar sem til­lögur eru gerðar að breyt­ingum, segir meðal ann­ars:

„Tekinn verði einn millj­arður af nef­skatti RÚV og honum deilt út til einka­rek­inna miðla. Miðað verði við að þær þrjár frétta­stofur, sem sinna almanna­þjón­ustu hér á landi, þ.e. frétta­stofur Árvakurs, Sýnar og Torgs, fái u.þ.b. 200 millj­ónir hver á ári. Samtals fjög­ur­hund­ruð millj­ónum verði veitt til starf­semi ann­arra miðla, sem er þá hægt að hlúa að og styrkja og auka fjöl­breytni, þannig að um muni. Miðað við það frum­varp sem liggur fyrir er ljóst að ekk­ert svig­rúm er til þess. Með þessu eru útgjöld rík­is­ins ekki aukin og RÚV gert að sýna meira aðhald í rekstri en verið hefur og þar með auka súr­efni á mark­aðnum til einka­rek­inna miðla. Þessi fjár­hæð er ekki nema tæp­lega 2/3 þeirrar fjár­hæð­ar­sem bein fram­lög til RÚV hafa auk­ist um síð­ustu fimm ár. Hér er því veru­legt svig­rúm að flytja fjár­muni til í kerf­inu, án þess að auka á sama tíma útgjöld rík­is­ins,“ segir í umsögn­inni. 

Þá leggur Torg einnig til að aug­lýs­inga­sala RÚV verði tak­mörkuð við 1.000 millj­ónir á ári, í stað 2.300 millj­ónum, eins og nú er, að því er segir í umsögn Torgs.

„RÚV selji ein­ungis aug­lýs­ingar fyrir kr. 1.000 millj­ónir á ári, í stað kr. 2.300 millj­óna eins og staðan er í dag. RÚV verði óheim­ilt að selja kost­anir. Aug­lýs­inga­deild RÚV verði lögð niður og ein­hverju birt­ing­ar­hús­anna falið að sjá um söl­una að und­an­gengnu útboði. Að mati Torgs er kostn­aður við rekstur aug­lýs­inga­deildar RÚV u.þ.b. 300 til 400 millj­ónir króna á ári, sem er sú fjár­hæð sem myndi spar­ast í rekstri RÚV við þessa breyt­ingu,“ segir í umsögn Torgs.

Frétta­blaðið og Sýn hafa átt í víð­tæku sam­starfi um birt­ingu á efni Frétta­blaðs­ins, þar sem fréttir hafa birst á bæði Vísi.is og fretta­bla­did.is, á grund­velli samn­ings sem rekja má til kaupa Sýnar á miðlum sem áður til­heyrðu 365 miðlum.

Upp­haf­lega var samn­ing­ur­inn til 44 mán­uða en hann var styttur vegna krafna frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Alls hafa 22 umsagnir við frum­varp ráð­herra birst inn á sam­ráðs­gátt­inni, en frestur til að skila umsögnum rann út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár