Björgólfur hættir sem forstjóri Icelandair Group

Afkoman verður lak­ari en spár og áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Björgólfur Jóhanns­son, sem verið hefur for­stjóri Icelandair Group und­an­farin ár, er hættur störfum hjá félag­inu. Mark­aðsvirði félags­ins hefur hrunið að und­an­förnu, en og hefur afkoman verið slak­ari en spár gerðu ráð fyrir.

Samkvæmt til­kynn­ingu til kaup­hallar, og upp­færðri afkomu­spá, mun afkoma árs­ins verða lægri en gert var ráð fyrir. Félagið áætlar að EBITDA árs­ins 2018 verði á bil­inu 80-100 millj­ónir USD, eða sem nemur um 8,5 til 11 millj­örðum króna.

„Í fyrsta lagi gerðum við enn ráð fyrir því við gerð sein­ustu afkomu­spár að með­al­far­gjöld á sein­ustu mán­uðum árs­ins myndu hækka, meðal ann­ars í takt við kostn­að­ar­hækk­anir flug­fé­laga. Við teljum nú að þessar hækk­anir muni skila sér síðar, þ.e. ekki fyrr en á árinu 2019.

Í öðru lagi hefur inn­leið­ing breyt­inga sem gerðar voru í byrjun sum­ars 2017 á sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins ekki gengið nægi­lega vel fyrir sig auk þess sem gerðar voru breyt­ingar á leið­ar­kerfi félags­ins í byrjun þessa árs sem hafa valdið misvægi á milli fram­boðs fluga til Evrópu ann­ars vegar og Norður-Ameríku hins vegar. Vegna þessa hafa spálíkön, sem meðal ann­ars byggja á sögu­legri þróun, ekki virkað sem skyldi og er upp­færð tekju­spá lægri en fyrri spá gerði ráð fyrir.

Það er mat okkar að lækkun far­þega­tekna Icelandair sem rekja megi til fyrr­greindra breyt­inga sé á bil­inu 5-8% (50-80 millj­ónir USD) á árs­grund­velli. Eins og kom fram í upp­lýs­ingum sem félagið sendi frá sér í tengslum við birt­ingu upp­gjörs á afkomu ann­ars árs­fjórð­ungs, hefur þegar verið gripið til aðgerða til að bregð­ast við þess­ari þróun. Þær aðgerðir eru farnar að skila árangri en við áætlum að það muni taka nokkra mán­uði að sjá áhrif þeirra í afkomu félags­ins. Við metum þessi nei­kvæðu áhrif á tekjur á þessu ári sem ein­skipt­isliði.

Þær ákvarð­anir sem lýst er hér að ofan eru teknar á minni vakt. Það er ljóst að þær hafa valdið félag­inu fjár­hags­legu tjóni á þessu ári. Ég ber sem for­stjóri félags­ins ábyrgð gagn­vart stjórn og hlut­höfum. Fyrr í dag tjáði ég stjórn að ég óskaði efir því að láta af starfi for­stjóra Icelandair Group. Þó að vissu­lega sé búið að taka á fyrr­nefndum vanda­málum þá er það ábyrgð­ar­hluti að hafa ekki fylgt breyt­ing­unum eftir með full­nægj­andi hætti og brugð­ist fyrr við. Þá ábyrgð tel ég rétt að axla og læt því af störfum sem for­stjóri félags­ins,“ segir Björgólfur.

Stjórn­ar­for­maður Icelandair Group, Úlfar Stein­dórs­son, segir í yfir­lýs­ingu að það lýsi Björgólfi vel, að hann sé til­bú­inn að axla ábyrgð með þessum hætti. „Björgólfur hefur verið for­stjóri Icelandair Group í yfir tíu ár, á mesta vaxt­ar­skeiði félags­ins. Hann leiddi fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu þess og hefur alla tíð lagt áherslu á ábyrgan rekstur og að vöxtur félags­ins sé arð­bær til lengri tíma litið. Hann skilur við fjár­hags­lega sterkt félag, Icelandair Group var með 251 milljón USD í hand­bæru fé við lok ann­ars árs­fjórð­ungs og 530 millj­ónir USD í eigin fé. Mér finnst það lýsa per­sónu Björg­ólfs vel að axla ábyrgð þegar betur hefði mátt gera. Að beiðni stjórnar mun Björgólfur vera stjórn og stjórn­endum til ráð­gjafar. Bogi Nils Bogason, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála félags­ins hefur fall­ist á ósk stjórnar um að gegna stöðu for­stjóra tíma­bundið. Stjórnin mun gefa sér góðan tíma til að finna félag­inu for­stjóra til fram­tíðar. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka Björgólfi kær­lega fyrir frá­bært sam­starf og óska honum vel­farn­aðar í þeim verk­efnum sem hann tekur sér fyrir hendur.“

Mark­aðsvirði Icelandair er nú um 40 millj­arðar króna og hefur lækkað mikið und­an­farna mán­uði. Í apríl 2016 náði það hæstu hæðum, þegar það var 189 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins var um mitt þetta ár 55 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár