Sumarið óvenju rólegt fyrir krónuna

Ekki er búist við miklum breyt­ingum á gengi krón­unnar í sumar miðað við árin á undan. Íslands­banki telur þetta meðal ann­ars stafa af auknu trausti í garð íslenska þjóð­ar­bús­ins.

Krónan hefur verið óvenju stöðug í sumar.
Krónan hefur verið óvenju stöðug í sumar. Mynd: samsett

Allt bendir til stöðug­asta gengis krón­unnar í fjögur ár yfir sum­ar­mán­uð­ina, en talið er að það stafi meðal ann­ars af auknu trausti á íslensku þjóð­ar­búi. Þetta kemur fram í grein­ingu Íslands­banka um gjald­eyr­is­mark­að­inn sem birt­ist fyrr í dag.

Mikið flökt í júlí undantekning

Grein­ingin tók saman gengi krónu und­an­farna árs­fjórð­unga, en það hefur verið býsna stöðugt á und­an­förnum miss­erum þrátt fyrir að höftum hafi verið aflétt að mestu og Seðla­bank­inn sjá­ist ekki lengur á gjald­eyr­is­mark­aði.

Íslands­banki bætti þó við að skamm­tíma­sveiflur í gengi krónu hafi auk­ist í júlí og flökt mælst það mesta frá sept­em­ber 2017, en gengi krónu var hins vegar á mjög svip­uðum slóðum í lok mán­að­ar­ins og það var í byrjun hans. Sömu­leiðis er ekki hægt að sjá að leitni hafi ein­kennt geng­is­þróun síð­ustu fjórð­unga, heldur hefur krónan sveifl­ast gagn­vart með­al­gengi erlendra gjald­miðla innan u.þ.b. 7 pró­sent bils frá ágúst síð­ast­liðnum.

Bankinn bendir einnig á að flöktið á krón­unni hafi hald­ist rólegt þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi alfarið haldið sig frá gjald­eyr­is­mark­aði það sem af er ári. Fram á síð­asta ár væru inn­grip bank­ans hins vegar veru­legur hluti af veltu á mark­aði, og drægju þau inn­grip úr geng­is­breyt­ingum sem ann­ars hefðu lík­legar orðið umtals­vert meiri á því tíma­bil.

Traust, jafnvægi og höft sem standa eftir

Í grein­ingu Íslands­banka eru þrjár ástæður nefndar á bak við þennan óvænta stöð­ug­leika krón­unnar. Í fyrsta lagi segir bank­inn ágætt jafn­vægi hafa verið milli inn-og útflæðis gjald­eyris upp á síðkastið. Inn­lendir fjár­festar hafi fjár­fest í veru­legum mæli utan land­stein­anna á meðan fjár­fest­ingar erlendra aðila hér á landi hefur einnig auk­ist nokkuð. Í öðru lagi er bent á höft á gjald­eyr­is­hreyf­ingum sem enn eru við lýði, til að mynda hið svo­kall­aða fjár­streym­is­tæki Seðla­bank­ans sem leggi til að mynda þungar kvaðir á erlenda aðila sem kynnu að vilja fjár­festa í skulda­bréfum í krónum. Í þriðja lagi nefnir svo Íslands­banki að aukið traust á íslensku þjóð­ar­búi vegna stór­bættrar erlendrar stöðu, minni skuld­setn­ingar heim­ila, fyr­ir­tækja og hins opin­bera, hækkun láns­hæf­is­ein­kunna auk fleiri þátta hafi aukið á þol­in­mæði gagn­vart skamm­tíma­sveiflum og dregið úr líkum á fjár­magns­flótta.

„Lífleg“ sumur í gengisbreytingum

Samkvæmt Íslands­banka hefur nokkrar spennu gætt meðal ýmissa þátt­tak­enda á gjald­eyr­is­mark­aði um hvort gengi krónu myndi breyt­ast veru­lega á sum­ar­mán­uðum og þá hvernig. Und­an­farin ár hafi tíma­bilið frá júní fram undir vetr­ar­byrjun verið „líf­legt“ í geng­is­hreyf­ingum, með 6% veik­ingu í fyrra, 14% styrk­ingu árið 2016 og 6% styrk­ingu árið 2015. Ekkert bendi hins vegar til þess að umtals­verðar breyt­ingar verði á gengi krónu fram í vetr­ar­byrjun í ár, enn sem komið er. Þó slær grein­ing­ar­deildin engu föstu og bætir við að „geng­is­hreyf­ingar gjald­miðla geta verið hin mestu ólík­inda­tól og aðstæður á þeim mörk­uðum breyst býsna fljótt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár