Ríkisstjórnin styrkir Kvennafrí um 5 milljónir

Full­trúar 34 sam­taka kvenna og fimm heild­ar­sam­taka launa­fólks munu sam­eig­in­lega efna til við­burð­ar­ins Kvenna­frí 2018 þann 24. októ­ber næst­kom­andi, undir for­merkjum #metoo / #églíka til að styðja við þær konur sem hafa stigið fram og sagt sögur sínar.

Full­trúar 34 sam­taka kvenna og fimm heild­ar­sam­taka launa­fólks munu sam­eig­in­lega efna til við­burð­ar­ins Kvenna­frí 2018 þann 24. októ­ber næst­kom­andi, undir for­merkjum #metoo / #églíka til að styðja við þær konur sem hafa stigið fram og sagt sögur sínar. Með því vilja konur láta heyra í sér á nýjan leik og kalla eftir aðgerðum stjórn­valda, atvinnu­rek­enda, stétt­ar­fé­laga, félaga­sam­taka og stofn­ana og breyt­ingum innan sam­fé­lags­ins í heild. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

[links]Und­ir­bún­ings­nefnd sem skipuð hefur verið um við­burð­inn leit­aði til rík­is­stjórn­ar­innar með beiðni um styrk vegna und­ir­bún­ings og fram­kvæmd sam­stöðu­funda og sam­þykkti rík­is­stjórnin á fundi sínum í morgun að veita fimm millj­ónir króna af ráð­stöf­un­arfé sínu til verk­efn­is­ins.

Kvenna­frí­dag­inn má rekja til þess að Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna ákvað að árið 1975 að það ár yrði helgað mál­efnum kvenna. Mánu­dag­inn 24. októ­ber það ár lögðu þús­undir kvenna víðs vegar hér á landi niður vinnu til að sýna fram á mik­il­vægi vinnu­fram­lags kvenna undir yfir­skrift­inni kvenna­frí og síðan hafa konur fjórum sinnum til við­bótar gengið út af vinnu­stað sínum til að mót­mæla mis­rétti og mis­jöfnum kjörum kynj­anna á íslenskum vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kvennafrí

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár