Hagsmunaðilar beiti almenningi fyrir sig í stríði um auðlindir

Andri Snær Magnason, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, segir orku­fyr­ir­tækin beita almenn­ingi fyrir sig í við­leitni þeirra til að afla orku fyrir stór­iðju.

Andri Snær Magnason, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, segir orku­fyr­ir­tækin beita almenn­ingi fyrir sig í við­leitni þeirra til að afla orku fyrir stór­iðju. Þetta segir Andri í stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann fjallar um fyr­ir­hug­aða virkjun Hvalár í Árnes­hreppi.

[links]Fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar um helg­ina var mikið tek­ist á um þessi virkj­un­ar­á­form og þannig fór að allir fimm hrepps­nefnd­ar­full­trú­arnir eru virkj­un­ar­sinnar. Því má búast við að áformin muni ganga eftir í ekki fjar­lægri fram­tíð.

Andri Snær segir 95 pró­sent orku­fram­leiðslu á Íslandi seld til kís­il­vera, álvera og nú hafi bitcoin bæst við sem fárán­leg orku­sóun. Þrátt fyrir þetta sjá­ist orku­fyr­ir­tækin ítrekað beita almenn­ingi fyrir sig, orku­þörf, orku­skorti eða öðru í við­leitni fyr­ir­tækja til að afla orku fyrir stór­iðju.

„Ef inn­viðir orku­fram­leiðslu á Vest­fjörðum eru veikir stafar það af því að orku­geir­inn hefur ekki haft áhuga á að þjóna lands­mönnum á meðan stór­iðjan hefur fengið millj­arða gjafir. Umræðan um Hvalá snertir að engu leyti almenn­ing á Vest­fjörðum, orku­kerfið þarf má bæta, laga eða styrkja með marg­vís­legum hætti,“ skrifar Andri.

Hann segir að ef aðeins almenn­ingur kall­aði á þessa virkjun væri hún talin of dýr og óhag­kvæm sem við­bót við kerfi sem þarfn­ast styrk­ingar og lag­fær­ingar. Þörfin fyrir Hval­ár­virkjun sé fyrst og fremst vegna lof­orða um Kísilver á Húsavík, Helguvík og fjölgun gagna­vera til að leita að Bitcoin.

„Í Reykja­nesbæ höfum við séð fremur stórt sveit­ar­fé­lag klúðra sínum skipu­lags­málum, ef ein­hver telur að 50 manna hreppur eigi að hafa skipu­lags­vald í jafn flóknu máli og við sjáum í til­felli Hval­ár­virkj­unar þá er sá hinn sami á því að Íslandi eigi að vera lélegt og illa rekið land upp­fullt af fúski og los­ara­hætti. Nú sjáum við hvernig hags­muna­að­ilar beita fyrir sig Vest­firð­ingum í stríði um aðgang að auð­lindum lands­ins. Íslend­ingar eru alger­lega full­færir um að tryggja full­komið tífalt orku­ör­yggi á öllu land­inu með þeim 2000MW sem hafa nú þegar hafa verið virkjuð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúrvernd

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár