Birgitta hætt í Pírötum

Birgitta Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður og kafteinn Pírata, er hætt í flokknum.

Birgitta Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður og kafteinn Pírata, er hætt í flokknum. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook hjá henni.

Í sam­tali við Kjarnann segir Birgitta að það sé langt síðan hún hætti í flokknum. Hún seg­ist hafa upp­lifað tak­mark­aðan áhuga fyrir hennar helsta áherslu­máli, sem er upp­lýs­inga- og tján­inga­frelsið. „Það var ein af megin ástæð­unum fyrir því að ég stofn­aði Pírata. Mér fannst ég ekki skynja og fann engan áhuga þar frekar en ann­ars staðar fyrir þessu,“ segir Birgitta.

Hún seg­ist hafa farið inn á Alþingi fyrst fyrir átta árum með vænt­ingar um raun­veru­legar breyt­ingar á sam­fé­lag­inu eftir hrunið. „Ég lét mig dreyma um aðkomu almenn­ings að málum, nýja stjórn­ar­skrá og ein­hverjar raun­veru­legar breyt­ingar þannig að þeir sem fara með völdin axli ábyrgð þegar þeir klúðra ein­hverju. Ekkert af þessu hefur gengið eftir.“

Aðspurð um hvort hún hafi yfir­gefið flokk­inn í góðu eða slæmu segir hún: „Ég var í fýlu en það er langt síðan ég hætti í henni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár