MS ásakar Samkeppniseftirlitið um óhlutlægni

Mjólk­ur­sam­salan segir í til­kynn­ingu að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fjalli ekki um mál­efni MS og mjólkur­iðn­aði af þeirri hlut­lægni sem gerða verði kröfu um til rík­is­stofn­unar.

„Ljóst er af afskiptum sam­keppn­is­yf­ir­valda af mál­efnum mjólkur­iðn­að­ar­ins, að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fjallar ekki um mál­efni MS og mjólkur­iðn­að­ar­ins af þeirri hlut­lægni, sem gera verður kröfu um til stofn­unar á vegum rík­is­ins,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá Mjólk­ur­sam­söl­unni.

Í til­kynn­ing­unni sem ber tit­il­inn „Mála­rekstur sem fær ekki stað­ist“ fjallar Mjólk­ur­sam­salan um mála­rekstur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gegn MS en eft­ir­litið hefur höfðað dóms­mál gegn MS til ógild­ingar á úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála.

MS segir að enda þótt mjólkur­iðn­að­ur­inn hafi heim­ild til sam­starfs á grund­velli búvöru­laga sé hann ekki und­an­þeg­inn banni sam­keppn­islaga við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu. „Sam­keppn­is­eft­ir­litið heldur því fram í máls­höfðun sinni að MS hafi brotið gegn bann­inu en áfrýj­un­ar­nefndin talið að ákvæði búvöru­laga veittu und­an­þágu frá bann­regl­unni. Enginn fótur er fyrir þess­ari túlkun því nið­ur­staðan byggð­ist á að engin mis­notkun hefði átt sér stað. Áfrýj­un­ar­nefndin úrskurð­aði að fram­kvæmd sam­starfs­ins hefði verið mál­efna­leg og for­svar­an­leg,“ segir í til­kynn­ing­unni.

MS heldur því fram að fram­ganga fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aði hafi verið í sam­ræmi við efn­is­reglur sam­keppn­islaga og ann­arra laga. Síend­ur­teknar full­yrð­ingar stjórn­endar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um annað hafi ekki stað­ist. Augljóst sé að stjórn­endur þess séu ósáttir við það fyr­ir­komu­lag sem lög­gjaf­inn hafi ákveðið að hafa á mjólk­ur­mark­aði en þeim beri eins og öðrum í sam­fé­lag­inu að virða gild­andi lög.

Klofin áfrýjunarnefnd felldi megnið af sektinni úr gildi

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði 440 millj­óna króna sekt á MS vegna máls­ins í júlí árið 2016, vegna þess að fyr­ir­tækið hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með því að selja keppi­nautum sínum hrá­mjólk á óeðli­lega háu verði á sama tíma og fyr­ir­tækið sjálft og tengdir aðilar fengu sama hrá­efni undir kostn­að­ar­verði. Nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var að þetta hefði veitt MS og tengdum aðilum veru­legt sam­keppn­is­for­skot og geta keppi­nauta hafi verið skert með alvar­legum hætti. Það væri á end­anum fallið til þess að skaða hags­muni neyt­enda og bænda.

MS skaut mál­inu til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að und­an­þágu­á­kvæði í búvöru­lögum hefðu vikið banni sam­keppn­islaga við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu til hlið­ar. Sektin var felld úr gildi, en nefndin stað­festi að MS hefði framið alvar­legt brot með því að halda upp­lýs­ingum frá yfir­völd­um, og fyr­ir­tækið ætti að greiða 40 millj­óna sekt vegna þess. Áfrýj­un­ar­nefndin klofn­aði í afstöðu sinni til máls­ins.

Nauðsynlegt að fá niðurstöðu um samspil búvöru- og samkeppnislaga

Í frétta­til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sem fylgdi í kjöl­far þeirri frá MS kemur frma að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafi í dag hafnað kröfu MS um að mál­inu yrði vísað frá dómi.

„Hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið talið að mik­il­vægt væri fyrir hags­muni smærri fram­leið­enda, bænda og neyt­enda að fá úr þessu skorið. Úrskurð­ur­inn felur í sér að málið fær nú efn­is­með­ferð fyrir hér­aðs­dómi.“

Eft­ir­litið segir að eftir skoðun á for­sendum úrskurðar meiri­hluta áfrýj­un­ar­nefndar hafi það talið nauð­syn­legt að stefna MS til þess að fá nið­ur­stöð­unni hnekkt um sam­spil búvöru­laga og sam­keppn­islaga. „Miðar sú máls­höfðun að því að fá úr því skorið hvort bann sam­keppn­islaga við mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu taki að fullu til MS. Jafn­framt verði fengin fulln­að­ar­úr­lausn um hvort fyr­ir­tækið skuli sæta fullri ábyrgð vegna þeirrar hátt­semi sem fjallað er um í mál­inu og Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur metið sem alvar­leg brot gegn minni keppi­nautum. Mun Sam­keppn­is­eft­ir­litið krefj­ast þess að MS greiði þá stjórn­valds­sekt sem eft­ir­litið taldi hæfi­lega í ákvörðun sinni frá júlí 2016,“ segir í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár