Tryggingarfélag sagt hafa ráðlagt lögbann á frekari umfjöllun

Fram­kvæmda­stjóri Glitnis Holdco, félags sem tók við eignum frá gamla Glitni, segir að félagið ætli sér að reyna að fá lög­bannið á umfjöllun Stund­ar­innar stað­fest fyrir dóm­stólum.

Fram­kvæmda­stjóri Glitnis HoldCo, Ingólfur Hauksson, segir ákvörðun um að fara fram á lög­bann á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Reykja­vík Media hafa verið tekna í sam­ráði við trygg­inga­fé­lag eign­ar­halds­fé­lags­ins.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, en þar áréttar Ingólfur að Glitnir Holdco ætli sér að reyna að fá stað­fest­ingu á lög­bann­inu fyrir dómi. „Þetta var gert til þess að tryggja félagið ef það koma fram ein­hverjar skaða­bóta­kröfur frá þeim sem mögu­lega eru í þessum gögnum. Þetta eru upp­lýs­ingar sem við höfum og okkur skilst að þessi gögn hafi getað feng­ist keypt hjá ein­hverjum aðilum sem við þekkjum ekki til,“ segir Ingólfur, en trygg­ing­ar­fé­lagið er breskt, og vildi Ingólfur ekki gefa upp nafn þess.

Eins og kunn­ugt er, hefur lög­bann­inu verið kröft­ug­lega mót­mælt af hálfu bæði Stund­ar­innar og Reykja­vík Media, og hefur Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir hrl., lög­maður Stund­ar­innar og Reykja­vík Media, sagt að lög­bannið sé alltof víð­tækt. „Ég er á þeirri skoðun að jafn­vel þótt stað­fest­ing­ar­málið muni tap­ast fyrir lög­banns­beið­end­ur, sem mér finnst per­sónu­lega lík­legra heldur en hitt, að þá erum við samt sem áður núna komin í alvar­legt ástand. Þögg­unin á sér stað núna. Lög­bannið er á. Það á bara eftir að stað­festa það hjá dóm­stól­um. Lög­bannið var lagt á af full­trúa fram­kvæmda­valds­ins. Dóm­stólar hafa ekki fengið þetta mat, heldur bara full­trúi fram­kvæmda­valds­ins. Það er bara alvar­legt. Ég lít svo á að núna séum við að upp­lifa þögg­un,“ sagði Sigríður Rut í við­tali við sjón­varps­þátt Kjarnans, á Hring­braut.

Lög­bannið nær til frek­ari umfjall­ana sem unnar eru upp úr gögnum frá Glitni, en umfjöllun Stund­ar­innar hefur verið um Bjarna Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og við­skipti hans, fjöl­skyldu og sam­starfs­manna hans, í aðdrag­anda hruns­ins.

Málið var meðal ann­ars rætt á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár