Í þá tíð… Gósentíð mafíósanna

Bannárin í Banda­ríkj­unum höfðu ekki til­ætl­aðan árangur, þar sem Al Capone og fleiri glæpafor­ingjar möl­uðu gull á smygli og sprútt­sölu.

Al Capone.
Al Capone.

Bannárin í Banda­ríkj­unum voru skrít­inn tími. Ekki þarf að leita lengra en að „Charleston-þema“ á árs­há­tíð um það bil hvers ein­asta íslenska fyr­ir­tækis og stofn­unar síð­ustu ár, til að sjá að þessi tími er sveip­aður ákveðnum gleð­iljóma þrátt fyrir að raun­veru­leik­inn hafi verið nokkuð harð­ari og óvægn­ari.

Fram eftir nítj­ándu öld­inni óx bind­ind­is­hreyf­ing­unni fiskur um hrygg, enda var áfeng­is­of­neysla talin rót hinna ýmsu sam­fé­lags­meina. Nokkur ríki tóku af skarið og bönn­uðu áfeng­is­sölu innan sinna landamæra og varð Kansas fyrst til þess árið 1881.

Dreif­býlli ríki voru jafnan hlynnt­ari áfeng­is­banni, en fylgið gekk þvert á flokkalínur þannig að það varð til­tölu­lega seint að póli­tísku bit­beini á lands­vísu. Í for­seta­kosn­ing­unum 1916 tóku Demókrat­inn Woodrow Wilson og Repúblikan­inn Charles Evans Hughes hvor­ugur beina afstöðu til máls­ins, en á þingi hafði mynd­ast sterkur meiri­hluti innan beggja flokka og í báðum deildum þings­ins til þess að leggja þá veg­ferð að banna áfeng­is­sölu í Banda­ríkj­unum með stjórn­ar­skrár­við­auka.

Ályktun þess efnis var sam­þykkt í árs­lok 1917 og send ríkj­unum til stað­fest­ingar (lög kveða á um að 2/3 beggja deilda og 3/4 rík­is­þinga, hið minnsta, þurfi til að stað­festa). Það var svo í jan­úar 1919 að átj­ándi stjórn­ar­skrár­við­auk­inn slapp í gegn, þegar Nebraska varð 36. ríkið til að sam­þykkja til­lög­una. Á end­anum voru það bara tvö ríki af 48 sem lögð­ust gegn stjórn­ar­skrár­bundnu áfeng­is­sölu­banni, Rhode Island og Connecticut.

Í októ­ber það sama ár sam­þykkti þingið í Washington DC frum­varp um lög til að fram­fylgja bann­inu, hin svoköll­uðu Volstead lög. Wilson for­seti beitti neit­un­ar­valdi gegn lög­unum, en þingið ógilti neit­un­ina og lögin gengu í gegn. Í þeim fólst meðal ann­ars bann á sölu og flutn­ingi á áfengum drykkjum (yfir 0,5% að styrk­leika), en ekki á neyslu, og skil­grein­ing á und­an­tekn­ingum, þ.e. til notk­unar í lækn­is­fræði­legum til­gangi eða við rann­sóknir, við trú­arat­hafnir og ýmis­legt fleira.

Við gild­is­töku lag­anna í jan­úar 1920 voru rúm­lega 1.500 alrík­is­lög­reglu­menn settir í að fram­fylgja þeim.

[adspot]

Glæpagengin stíga inn í myndina

Eins og svo oft áður þegar lög­gjöf gengur gegn lög­mál­inu um fram­boð og eft­ir­spurn, voru til ein­stak­lingar og hópar sem voru meira en til í að svala þorsta Banda­ríkja­manna eftir að bannið gekk í gildi.

Einn af frum­kvöðl­unum var maður að nafni Johnny Torrio. Hann hafði unnið sig upp innan raða glæpa­gengis í New York en tók við rekstri ölstofa og vænd­is­húsa í Chicago 1909. Þegar áfeng­is­sölu­bannið skall á árið 1920 var hann fljótur til að hasla sér völl í sprútt­sölu og tryggði sér yfir­ráð yfir drjúgum hluta mark­að­ar­ins í Borg Vindanna, eins og Chicago kall­ast jafnan.

Það var þó ekki hann sem varð hold­gerv­ingur mafíósa á bann­ár­unum, heldur var það und­ir­maður hans, Al Capone.

Maðurinn með örið

Capone er eins konar sam­nefn­ari fyrir mafíósa á þessum tíma. Feit­lag­inn, vel klæddur maður af ítölskum ættum. Honum hefur enda verið gerð skil í fjölda kvik­mynda og þátta, sem hafa fóðrað goð­sögn­ina ríku­lega.

Capone fædd­ist og ólst upp í Brooklyn og fór að vinna fyrir Torrio strax að loknum sjötta bekk. Í einum af mörgum áflogum sem hann lenti í við „skyldu­störf“ sín var hann skor­inn í kinn­ina með rak­hníf. Hann fékk af því mynd­ar­legt ör og hlaut fyrir vikið við­ur­nefnið „Scarface“.

Þegar Al var tví­tugur, árið 1909, kall­aði Torrio á hann til að aðstoða sig við vænd­is­húsa­rekst­ur­inn í Chicago. Eftir að bann­árin gengu í garð ákváðu helstu glæpa­hópar borg­ar­innar að skipta með sér hverfum til að koma í veg fyrir átök. Stærsta og öfl­ug­asta gengið, sem kennt var við for­sprakk­ann Dion O'Banion, stjórn­aði norð­ur­borg­inni, þar sem flott­ustu hverfin voru og lang­flestir veit­inga­stað­irnir. Torrio stjórn­aði svo suð­ur­borg­inni og aðrir minni aðilar fengu líka sinn skerf.

[box]Þannig gekk sprútt­brans­inn fyrir sig fyrstu þrjú árin, en þá kom að því að O'Banion þótti Ítal­irnir í suðr­inu vera að gera full­góða hluti. Sam­komu­lag var gert til að friða O'Banion, meðal ann­ars átti hann að fá sneið af ágóða Torrios, en það varð ekki til að stilla til friðar því að O'Banion hafði stundað það að ræna vín­send­ingum frá Kanada sem voru á leið til Genna-klíkunnar.

Genna-bræður og Torrio ákváðu að taka höndum saman og losa borg­ina við O'Banion. Því nýttu þeir sér tæki­færið í tengslum við jarð­ar­för eins félaga þeirra (sem O'Banion lét einmitt kála) og fóru inn í blóma­búð­ina sem var skálka­skjól O'Banions og skutu hann til bana. Þetta var í nóv­em­ber 1924.

Upp úr því hófst mikið og blóð­ugt gengja­stríð sem stóð yfir í mörg ár. Norð­an­menn sótt­ust eftir að hefna síns fallna for­ingja og reyndu að stytta Torrio aldur í jan­úar 1925, þegar hann var að koma heim úr versl­un­ar­ferð með konu sinni. Byssu­kúlum rigndi yfir bíl Torrios og stór­særði hann. Meðal ann­ars fékk hann skot í kjálka, nýru, lungu, kvið og í fætur, og var lam­inn all­hressi­lega í kjöl­farið. Engu að síður lifði Torrio af, en fékk skömmu síðar árs fang­els­is­dóm fyrir sprútt­sölu.

Sviðið var því í höndum sjálfs Als Capone, sem tók við tíma­bundið en eftir að Torrio slapp úr fang­elsi ákvað hann að snúa baki við mafíu­líf­inu og valdi Capone sem eft­ir­mann sinn áður en hann hélt sjálfur til fæð­ing­ar­lands síns, Ítalíu, með konu sinni og móður.

Nýi kóngurinn í Chicago

Al Capone var ekki lengi að festa sig í sessi sem grimmasti og ófyr­ir­leitn­asti glæpafor­ing­inn í Chicago og breiddi stöðugt út yfir­ráða­svæði suð­ur­borg­ar­klíkunnar þar sem sprútt­sala, veð­mál og vændi voru í for­grunni.

Hann víl­aði ekki fyrir sér að salla niður and­stæð­inga sína og sprengja upp veit­inga­staði sem neit­uðu að kaupa af honum vín. Þannig náði hann undir sig sífellt fleiri svæði og nýtti sér um leið mútur til að koma sér í mjúk­inn hjá borg­ar­yf­ir­völdum og lög­reglu til að sleppa við óþarfa afskipti af lög­brot­unum.

Þrátt fyrir það var Capone alls ekki að láta lítið fyrir sér fara. Þvert á móti. Hann barst mikið á, klædd­ist glæsi­legum klæð­skera­saum­uðum jakka­fötum og skart­gripum og var jafnan umkringdur glæsi­meyjum.

Hann gekkst upp í eins konar Hróa Hattar ímynd af sjálfum sér þar sem hann dreifði ölm­usu af sínum gríð­ar­miklu, illa fengnu, auð­æfum til fátækra víða um borg. Hann mætti á kapp­leiki og var oft fagnað eins og hetju. Hann hafði oft á orði að hann væri ein­fald­lega kaup­sýslu­maður. „Ég gef fólk­inu bara það sem það vill!“ var algengt við­kvæði hjá honum.

Á meðan geys­aði grimmi­legt stríð milli klíku Capones og norð­ur­borg­ar­klíku O'Banions heit­ins. Hjaðn­inga­víg gengu á víxl þar sem margir lyk­il­menn beggja vegna lutu í gras, meðal ann­ars bíl­stjóri Capones sjálfs og einn dag­inn mættu fjöldi norð­ur­borg­ar­manna fyrir utan höf­uð­stöðvar hans og létu kúlum rigna úr Thompson-vél­byssum, hinum frægu Tommy-guns sem eru eins og tákn­mynd þessa ára.

Ofbeldið stig­magn­að­ist og náði hámarki árið 1929 þegar Capone fyr­ir­skip­aði morð á Bugs Moran, sem þá var for­ingi norð­an­manna. Hópur Capone-manna réð­ist inn í vöru­skemmu Morans og yfir­bug­aði sjö manns sem þar voru að vinnu. Þegar mönn­unum hafði verið stillt upp við vegg komu fleiri menn inn, vopn­aðir vél­byssum og hagla­byssum og hrein­lega brytj­uðu menn­ina niður.

Dag­blöðin birtu slá­andi myndir af vett­vangi og köll­uðu ódæðið „Saint Val­entine's Day Massacre“, enda var fjöldamorðið framið á Val­ent­ínus­ar­dag. Þetta kastaði rýrð á orð­spor Capones sem vel­gjörð­ar­manns, og í fram­hald­inu lögðu lög­gæslu­stofn­anir miklu meiri áherslu á að klekkja á honum.

Endalokin nálgast

Yfirvöld reyndu allt til að fá Capone dæmdan þar sem hann var hand­tek­inn og/eða kærður fyrir alls konar brot, allt frá ver­gangi upp í brot á Volstead-lög­unum. Það sem varð honum hins vegar að falli voru skatta­mál.

Árið 1927 hafði Hæsti­réttur Banda­ríkj­anna stað­fest að tekjur af ólög­legri starf­semi væru sann­ar­lega skatt­skyldar. Þegar hinn frægi lög­reglu­maður Eliot Ness, ásamt sér­sveit sinni, Hinum Vamm­lausu, hafði um ára­bil ham­ast í starf­semi Capones í Chicago var breytt um stefnu og ákveðið að hamra á skatta­mál­unum. Capone var svo ákærður og síðar sak­felldur fyrir skatt­svik og hlaut ell­efu ára fang­els­is­dóm árið 1931.

Hann hóf afplánun árið 1932. Við kom­una í fang­elsið var hann greindur með sára­sótt og lek­anda sem átti eftir að hafa gríð­ar­leg áhrif á hann á næstu árum. Hann átti erfitt með að fóta sig aleinn í fang­els­inu og varð fyrir tals­verðu áreiti, þannig að hann var fluttur yfir í Alcatraz-fang­elsið utan við San Fransisco.

Síðustu árin í afplánun var and­legri heilsu hans farið að hraka tals­vert vegna tauga­hrörn­unar sem var afleið­ing sára­sótt­ar­innar.

Honum var sleppt úr haldi árið 1939, en var sjúk­lingur allt til ævi­loka. Hann bjó í húsi sínu í Miami þar sem hann fékk heila­blóð­fall árið 1947 og nokkrum dögum síðar varð hjarta­á­fall glæpafor­ingj­anum fyrr­ver­andi að ald­urtila, 48 ára að aldri.

Afnám áfengisbanns gróf undan glæpahópunum

Þegar Capone var sendur í fang­elsi árið 1932 var orðið ljóst að áfeng­is­sölu­bannið hafði ekki borið til­ætl­aðan árangur. Glæpir höfðu auk­ist og glæpafor­ingjar eins og Capone höfðu efn­ast gríð­ar­lega, án þess að dregið hefði sér­stak­lega úr drykkju meðal almenn­ings.

Því lögðu þing­menn í Washington í að fella átj­ánda við­auka stjórn­ar­skrár­innar úr gildi með öðrum við­auka, sem varð sá tuttug­asti og fyrsti. Málið fékk hefð­bundna afgreiðslu í báðum deildum þings­ins, en í stað þess að leggja málið fyrir rík­is­þingin eins og venja var, var ákveðið að nota aðra aðferð, þ.e. að stofna til sér­stakra sam­kunda í hverju ríki þar sem málið var rætt. Það var gert vegna þess að talið var að rík­is­þing­menn væru of háðir bind­ind­is­hreyf­ing­unni til að málið fengi nokkurn tíma eðli­legan fram­gang.

Það var svo í árs­lok 1933 að 21. stjórn­ar­skrár­við­auk­inn, til afnáms áfeng­is­sölu, var stað­festur með sam­þykki Utah, sem varð 36. ríkið sem velti síð­asta hlass­inu.

Eftir það féll að sjálf­sögðu botn­inn úr sprútt­sölu glæpa­hópa, en eft­ir­mönnum Capones lagð­ist ýmis­legt til og þeir héldu yfir­ráðum yfir und­ir­heimum Chicago í áraraðir eftir það.

Eftir stendur ímynd um tíma þar sem gleðin var vissu­lega við völd, en undir niðri geis­aði for­dæma­laus ofbeld­is­alda um allt land þar sem morð, lim­lest­ingar og dauði voru dag­legt brauð. Hugsið endi­lega um það þegar þið setjið upp kúlu­hatt og axla­bönd og stingið dóta­byssu í buxna­streng­inn á næstu árs­há­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár