Í þá tíð… Berfætti hlaupagikkurinn

Eþíóp­íu­mað­ur­inn Abebe Bikila hljóp skó­laus inn í sviðs­ljósið með sigri á Ólymp­íu­leik­unum í Róm árið 1960 en skildi eftir sig var­an­leg spor í íþrótta­heim­inum.

Nú er rúm vika liðin frá því að Reykja­vík­ur­mara­þonið var haldið. Þar reyndu sig margir, bæði til gam­ans og til keppnis (þetta brýtur örugg­lega í bága við mál­fræði­reglur). Sig­ur­veg­arar dags­ins voru að sjálf­sögðu þau góðu mál­efni sem nutu góðs af. Einnig mætti segja að allir þátt­tak­endur hefðu verið sig­ur­veg­arar í sjálfu sér… en það væri strangt til tekið rangt. Sig­ur­veg­arar voru þau Natasha Yaremczuk í kvenna­flokki og Arnar Pét­urs­son í karla­flokki, en Arnar kom í mark á tím­anum 2:28:17.

Mara­þon­hlaup eru hins vegar íþrótt með ævafornar rætur. Sagna­rit­arar, sem Vís­inda­vef­ur­inn vísar til, hafa boðið uppá ýmsar útgáfur af „fyrsta mara­þon­hlaup­inu“ og er þar annað hvort talað um sendi­boð­ann Fil­ippídes, sem átti að hafa hlaupið 240 kíló­metra leið frá Aþenu til Spörtu til að óska eftir lið­sinni í orr­ustu gegn Persum, eða sendi­boða sem hét annað hvort Þersippos eða Evkles, og hljóp frá Maraþon í Grikk­landi til Aþenu (um 42 km) til að til­kynna um sigur Aþeninga í téðri orr­ustu.

Hver sem sann­leik­ur­inn er í þessu, var mara­þon­hlaup gert að keppn­is­grein á fyrstu nútíma­ólymp­íu­leik­unum árið 1896. Lengd hlaupanna var fyrst um sinn ekki full­kom­lega stöðluð. Miðað var við að hlaupin væru um 40km, þar sem aðstæður á hverjum keppn­is­stað réðu lengd­inni. Árið 1921 var svo ákveðið að öll mara­þon­hlaup skyldu vera 42,195km og nú til dags eru hlaupin um 800 mara­þon­hlaup árlega um heim allan.

Sveitastrákur slær í gegn

Hinn 7. ágúst 1932 fædd­ist drengur í litlu þorpi Shewa-hér­aði í Eþíópíu, einmitt sama dag og keppni í mara­þon­hlaupi fór fram á Ólymp­íu­leik­unum í Los Angeles. Piltur þessi hlaut nafnið Abebe BIkila og átti sann­ar­lega eftir að skapa sér nafn í íþrótta­heim­inum.

Bikila gekk í her­inn þegar hann var tví­tugur. Þar var hann „upp­götv­aður“, ef svo má segja, af sænskum þjálf­ara, sem hafði horft upp á hann hlaupa 20km á hverjum degi. Við tóku mark­vissar æfingar til að koma honum í fremstu röð og hann hljóp sitt fyrsta mara­þon­hlaup í keppni meðal her­manna árið 1956, 24 ára að aldri, og lenti í öðru sæti.

Þegar fór að líða að Ólymp­íu­leik­unum árið 1960 var Bikila í hörku­formi. Hann tók þátt í sínu fyrsta alvöru mara­þon­hlaupi í júlí og sigr­aði, og bætti öðru gulli við í ágúst. Bæði hlaupin fóru fram í Addis Ababa, höf­uð­borg Eþíópíu, en nú tók stóra sviðið við, sjálfir Ólymp­íu­leik­arnir.

Sleppti skónum

Bikila hafði alltaf hlaupið ber­fættur, en þegar komið var til Rómar, með sín steinum lögðu stræti, ákvað hann að breyta til og kaupa sér keppn­is­skó. Þeir meiddu hann hins vegar og hann fékk blöðrur á fæt­urna undan þeim, þannig að hann ákvað að sleppa skónum.

Það voru hreint engir aukvisar sem mættu til leiks í mara­þon­hlaup­inu. Fremstur meðal jafn­ingja var Sov­ét­mað­ur­inn Sergei Popov, sem átti heims­metið í grein­inni, en skömmu eftir ræs­ingu tók Belginn Aurèle Vandendriessche for­yst­una. Í humátt á eftir honum komu Bretinn Arthur Keily, Marokk­ó­mað­ur­inn Rhadi Ben Abdesselam og svo Abebe Bikila, sem vakti tals­verða athygli fyrir að hlaupa skó­laus. Þegar hlaupið var um það bil hálfnað höfðu Bikila og Abdesselam tekið for­yst­una og hlupu svo til hlið við hlið það sem eftir lifði. Hlaupið fór fram síð­degis og þegar kepp­endur nálg­uð­ust enda­markið var tekið að rökkva og var ekki laust við að nokkuð sér­stök stemmn­ing hafi mynd­ast þar sem ítalskir her­menn lýstu upp Via Appia með kyndlum. Þegar um 500m voru í mark tók Bikila á rás og stakk Abdesselam af. Hann kom í mark á tím­anum 2:15:16,2 og bætti þar með heims­metið um tæpa sek­úndu. Nýsjá­lend­ing­ur­inn Barry Magee varð í þriðja sæti og Popov mátti sætta sig við fimmta sætið á eftir landa sínum Kon­stantin Vorobyov.

Ekki var hins vegar að sjá á Bikila að hann væri sér­stak­lega upp­gef­inn þar sem hann skokk­aði á staðnum strax eftir að í mark var komið og lét hann þess getið síðar að hann hefði getað hlaupið 10-15km í við­bót.

Afrekið var enn merki­legra í ljósi þess að þetta var fyrsta ólymp­íugullið sem féll í skaut íþrótta­manns frá Afr­íku­landi sunnan Sahara­eyði­merk­ur­innar og mark­aði upp­haf mik­illa yfir­burða Austur-Afr­íku­fólks í mara­þon­hlaupi. Fram að þessu höfðu Banda­ríkja­menn, Vestur-Evr­ópu­búar, Japanir og Suður-Kóreu­menn verið mest áber­andi meðal heims­met­hafa.

Þjóðhetja verður goðsögn

Þegar heim var komið fékk Bikila að sjálf­sögðu hetju­mót­tökur og var sæmdur heið­urs­merki af sjálfum keis­ar­anum Haile Selassie. Hann hélt áfram störfum sínum í varð­liði keis­ar­ans, en var einnig iðinn við að keppa. Árið eftir sigr­aði hann í hlaupi sem fór fram í Aþenu og hélt hann þar upp­teknum hætti og hljóp ber­fættur, en þegar hann keppti (og sigr­aði) í Osaka í Japan og Kosice í Júgóslavíu síðar sama ár var hann í skóm.

Hann tók þátt í Boston-mara­þon­inu árið 1963 og varð í fimmta sæti, en í aðdrag­anda Ólymp­íu­leik­anna í Tókýó árið 1964 vann hann enn eitt hlaupið á heima­velli sínum í Addis Ababa.

Verk­efnið sem horfði við Bikila var ansi stórt. Enginn hafði áður varið Ólymp­íu­titil í mara­þon­hlaupi. Und­ir­bún­ing­ur­inn virt­ist hins vegar ætla að fara í handa­skol þegar Bikila veikt­ist hast­ar­lega fjöru­tíu dögum fyrir setn­ingu leik­anna. Hann reynd­ist vera með botn­langa­bólgu og var botn­lang­inn tek­inn úr honum í snar­hasti hinn 16. sept­em­ber. Hann var hins vegar hinn keikasti strax eftir aðgerð­ina og var útskrif­aður á innan við viku.

Það var svo hinn 21. októ­ber sem mara­þon­hlaupið fór fram á ÓL í Tókýó og ekki að sjá á okkar manni að hann væri svo til nýkom­inn af skurð­ar­borð­inu. Bikila var meðal fremstu manna í byrjun, í flúnku­nýjum Puma-skóm, en nokkuð fór að skilja á milli eftir um 10km. Þá voru Bikila og tveir aðrir hlauparar komnir all­langt fram úr hópnum. Áður en hlaupið var hálfnað var Bikila hins vegar búinn að setja í flug­gír­inn og stakk alla af.

Hann kom einn inn á Ólymp­íu­leik­vang­inn þar sem hann var hylltur ákaft af 75.000 áhorf­endum, og lauk keppni á nýju heims­meti (metið hafði verið slegið fjórum sinnum frá síð­ustu Ólymp­íu­leikum) 2:12:11,2 en það var rúmri einni og hálfri mín­útu undir fyrra meti.

Ekki voru fagn­að­ar­læti heima við minni að þessu sinni og fleiri heið­urs­merki bætt­ust við safnið, auk þess sem hann fékk íbúð og bíl til umráða frá hernum.

Sorglegur endir á glæsilegum ferli

Bikila hafði skorið nafn sitt í ann­ála frjáls­í­þrótta þegar þarna var komið við sögu og hann átti enn eftir að láta til sín taka. Sig­ur­ganga hans hélt óslitin áfram til árs­ins 1967, þegar hann meidd­ist á aft­an­verðu læri og náði sér aldrei almenni­lega á strik aftur.

Upp að því hafði hann keppt í 15 alþjóð­legum mara­þon­hlaupum og unnið fjórtán þeirra.

Draum­ur­inn um að verja Ólymp­íu­tit­il­inn í annað sinn árið 1968 fór fyrir lítið þegar í ljós kom, skömmu fyrir keppni, að Bikila var með sprungu í legg­beini og þrátt fyrir að hann hafi reynt að harka af sér, varð hann að hætta keppni eftir um 16km. Þetta reynd­ist vera hans síð­asta hlaup.

Árið eftir lenti Bikila í bílslysi þar sem hann velti bif­reið sinni seint að kvöldi og sat þar fastur fram á morgun. Ekkert er vitað með vissu um aðdrag­anda slyss­ins, en líkur eru á að hann hafi drukkið áfengi áður enn hann ók af stað.

Bikila var lamaður frá háls og niður úr eftir slysið, en fékk síðar afl í hand­legg­ina.

Hann reyndi fyrir sér í margs konar íþróttum þrátt fyrir fötlun sína, meðal ann­ars bog­fimi, borð­tennis og jafn­vel hunda­sleða­hlaupi.

Við setn­ingu ÓL í Munchen 1972 var Bikila heið­urs­gestur og fékk stand­andi lófa­klapp þegar hann kom inn á völl­inn.

Bikila lést rúmu ári síðar, í októ­ber 1973, af völdum heila­blæð­ingar, 41 árs að aldri. Blæð­ing­una mátti rekja til afleið­inga slyss­ins sem hann hafði lent í fjórum árum áður. Hann var jarð­settur við mikla athöfn í Addis Ababa og fylgdu tugir þús­unda honum til grafar, þar á meðal keis­ar­inn sjálfur.

Á stuttum en giftu­ríkum ferli skap­aði Abebe Bikila sér nafn sem einn fremsti mara­þon­hlaup­ari allra tíma, ef ekki sá allra fremsti. Sú stað­reynd að hann hljóp ber­fættur framan af, er vissu­lega skemmti­leg kúríósa og eflaust það sem flestum dettur fyrst í hug. En hann skildi þó eftir sig miklu meira en það, og var leið­ar­ljós fyrir ótal hlaupara frá Austur-Afríku sem hafa borið höfuð og herðar yfir aðra lang­hlaupara um ára­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár