Væntingar um að krónan sé nær hátoppi

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans telur að skamm­tíma­sveiflur í gengi krón­unnar megi útskýra með vænt­ingum um að krónan sé nær hátoppi.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Seðla­banki Íslands segir að skamm­tíma­sveiflur hafi auk­ist á gjald­eyr­is­mark­aði, en þær megi rekja til auk­inna fjár­magns­hreyf­inga og vænt­inga um að krónan sé nær hátoppi. Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu pen­inga­stefnu­nefndar til Alþingis.

Í skýrsl­unni segir að gjald­eyr­is­kaup Seðla­bank­ans hafi numið 69,9 millj­arða króna á fyrri hluta árs­ins. Þar af keypti bank­inn gjald­eyri fyrir um 75,2 millj­arða og seldi fyrir 5,3 millj­arða króna. Við­skipti bank­ans námu 32% af veltu á gjald­eyr­is­mark­aði á þessu tíma­bili, sam­an­borið við 57% fyrir sama tíma­bil í fyrra.

Samkvæmt skýrsl­unni hefur flæði á gjald­eyr­is­mark­aði verið jafn­ara í báðar áttir á fyrri hluta þessa árs en á seinni hluta síð­asta árs. Því hafi veru­lega dregið úr styrk­ingu krón­unnar, en til dæmis hafi hún lækkað um tæp 6% á síð­ari vikum júní­mán­aðar.

Í kjöl­far lækk­unar hefur Seðla­bank­inn tvisvar brugð­ist við með mót­væg­is­að­gerðum, en bank­inn hefur minnkað gjald­eyr­is­forð­ann sinn til þess að kaupa krónur tvisvar það sem af er ári, í fyrsta skipti síðan árið 2014. Að sögn Seðla­bank­ans voru umræddar aðgerðir til þess að „stöðva keðju­verkun á mark­aðnum“.

Einnig segir að meg­in­mark­mið gjald­eyr­is­inn­gripa­stefnu Seðla­bank­ans sé að vinna gegn óhóf­legum skamm­tíma­sveiflum í gengi krón­unnar. Þessar sveiflur hafi auk­ist, en nefndin telur aukn­ing­una rekja til meiri fjár­magns­hreyf­inga og auk­inna vænt­inga um að krónan sé nær hátoppi.

Skýrslan er ein tveggja sem nefndin gefur til Alþingis á hverju ári, en í henni er rætt um störf nefnd­ar­innar auk þess sem allar fund­ar­gerðir og opin­ber erindi eru birt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár