OECD vill auka skattlagningu á ferðaþjónustu

OECD leggur til að und­an­þágu á virð­is­auka­skatti innan ferða­þjón­ust­unnar verði afnumin, sam­kvæmt nýrri úttekt sam­tak­anna um Ísland.

Urban Sila, Douglas Sutherland og Mari Kiviniemi frá OECD ásamt Benedikt Sigurðssyni.
Urban Sila, Douglas Suther­land og Mari Kiviniemi frá OECD ásamt Benedikt Sig­urðs­syni. Mynd: Af vef fjármálaráðuneytisins

OECD leggur meðal ann­ars til að afnema und­an­þágur á virð­is­auka­skatts­hlut­fall ferða­þjón­ust­unnar í nýbirtri skýrslu sinni um Ísland. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi Mari Kiviniemi, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra OECD, og Benedikt Jóhann­essyni, fjár­mála­ráð­herra, fyrr í dag.

Á blaða­manna­fund­inum kynnti OECD nið­ur­stöður sínar úr skýrslu um efna­hags­á­standið á Íslandi, sem fram­kvæmd er á tveggja ára fresti. Meg­in­nið­ur­stöður voru þær að aðstæður á Íslandi væru heilt yfir góðar, þótt hætta væri á ofhitnun í hag­kerf­inu.

Mari sagði stór­merki­legur við­snún­ingur hafa átt sér stað á Íslandi. Hag­vöxtur hér á landi sé sá mesti meðal allra OECD-landa, meðal ann­ars vegna jákvæðra ytri aðstæðna og gríð­ar­legum vexti í ferða­manna­iðn­að­inum. Lífs­skil­yrði séu hærri nú en í góð­ær­inu fyrir hrun og jafn­framt hafi jöfn­uður hald­ist mik­ill sam­hliða vext­inum.

Íslend­ingar hafi náð að lækka skulda­stöðu sína gríð­ar­lega mikið, gjald­eyr­is­höft­unum hafi verið aflétt og nú sé hreina fjár­fest­inga­staðan okkar orðin jákvæð, þannig að við séum byrjuð að greiða niður skuldir í stað þess að safna þeim.

[adspot]Hætta á ofhitnun

Hins vegar væru margar áskor­anir fram undan, til dæmis sé nauð­syn­legt að Íslend­ingar vinni meira í átt að sjálf­bærum hag­vexti. Und­an­farin ár hafi verið útgjalda­aukn­ing í fjár­málum hins opin­bera, en draga ætti úr henni þar sem hún geti stuðlað að ofhitnun í hag­kerf­inu. Pen­inga­stefna þurfi einnig að vera í stakk búin til að bregð­ast við auknum verð­bólgu­vænt­ingum þar sem ört hækk­andi hús­næð­is­verð auki spennu í vísi­tölu neyslu­verðs.

Verð­bólga hafi verið lág á síð­ustu mán­uðum, en sögu­lega hafi vænt­ingar um verð­bólgu verið miklar á Íslandi og því við­búið að hún geti hækkað. Einnig sé hætta á óstöð­ugu inn­flæði fjár­magns vegna mik­ils vaxta­munar við útlönd, og mælir hóp­ur­inn með aðgerðum til varnar þeirri þróun.

Ráð­legg­ingar OECD-hóps­ins svipa mjög til nið­ur­staðna úr nýlegri skýrslu AGS um efna­hags­á­standið á Íslandi, en þar var einnig varað við ofhitnun hag­kerf­is­ins.

Úrbætur í ferðamannaiðnaðinum

Eitt meg­in­at­riða í OECD-skýrsl­unni var þó ferða­manna­iðn­að­ur­inn, en hóp­ur­inn taldi mikla þörf á upp­bygg­ingu sjálf­bærs og opins vaxtar iðn­að­ar­ins. Hópurinn leggur til þverpóli­tískrar sam­vinnu auk fjölda­tak­markanna og inn­viða­fjár­fest­inga á við­kvæmum stöðum.

Var það mat hóps­ins að afnema ætti skattaí­viln­anir á ferða­þjón­ustu og færa hana í almennt þrep virð­is­auka­skatts. Mari Kiviniemi minnt­ist á að slíkar skattaí­viln­anir væru til staðar í mörgum löndum á þeim grund­velli að gagn­ast fátækum. Sá rök­stuðn­ingur gildir hins vegar ekki um Ísland og því ætti að afnema skattaund­an­þág­unni.

Einnig bætir Douglas Suther­land, með­limur OECD-hóspins, við að virð­is­auka­skattur sé í eðli sínu mjög hag­kvæmur. Til langs tíma væri hækkun virð­is­auka­skatts jákvæð miðað við aðra skatt­lagn­ingu, en hún sé einnig mik­il­væg til að koma í veg fyrir hol­lensku veik­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár