Í þá tíð... Dauði á veðhlaupabrautinni

Bar­áttu­kona fyrir rétt­indum kvenna lét lífið þegar hún varð fyrir hesti á veð­hlaupa­braut fyrir rúmri öld síðan. Mikið hefur verið rætt um til­gang hennar, en hún mark­aði sér þó spor í sög­unni.

Emily Davison lést af sárum sínum eftir að hafa hlaupið í veg fyrir veðhlaupahest á fullri ferð.
Emily Davison lést af sárum sínum eftir að hafa hlaupið í veg fyrir veð­hlaupa­hest á fullri ferð.

Hvað gekk henni til?

Hvers vegna hljóp hin fer­tuga Emily Davison út á veð­hlaupa­braut­ina þar sem hún varð fyrir hest­inum Anmer? Það veit eng­inn með vissu, en mikið hefur verið rætt um og rýnt í þennan atburð sem átti sér stað hinn 4. júní árið 1913.

Davison ólst upp í London og nam bók­mennta­fræði við háskóla í Oxford. Hún lauk námi en útskrif­að­ist ekki, þar sem Oxford mein­aði konum að útskrif­ast á þessum tíma. Hún fékk þó starf við kennslu eftir að nám­inu lauk.

Á þessum tíma, um og eftir alda­mótin 1900, voru rétt­indi kvenna í Bret­landi í brennid­epli, en hægt hafði gengið að koma í gegn breyt­ingum til að útvíkka kosn­inga­rétt kvenna og kjör­gengi til jafns við karla. Réttur kvenna var tak­mark­aður við hér­aðs­kosn­ingar og aðeins þær sem greiddu skatt fengu að kjósa.

Árið 1897 voru helstu bar­áttu­hópar fyrir kosn­inga­rétti kvenna sam­ein­aðir í sam­tökin National Union of Women's Suffrage Societies (NUWSS). Þau sam­tök unnu ötul­lega að því að vekja athygli á mál­stað sínum, meðal ann­ars með kröfu­göngum og slíku. Hvorki gekk þó né rak í þeim efnum og smám saman fjar­aði undan umræðu og umfjöllun um kven­rétt­indi í bresku sam­fé­lagi.

Árið 1903 klauf hópur, undir for­ystu Emmeline Pank­hurst, sig frá NUWSS og stofn­aði Women's Social and Political Union (WSPU) sem skyldi nota meira afger­andi aðferðir. Þremur árum síðar gekk Emily Davison til liðs við hóp­inn og innan skamms sagði hún skilið við kennslu og helg­aði bar­átt­unni líf sitt upp frá því.

WSPU-konur skipu­lögðu fjöl­mennan bar­áttufund í Hyde park árið 1908, en fengu engin við­brögð frá stjón­völdum. Upp frá því fóru þær að beita skemmd­ar­verkum í mót­mæla­skyni.

Davison lét ekki sitt eftir liggja og var níu sinnum hand­tekin á næstu árum, fyrir grjót­kast, ólæti og íkveikjur. Í fang­elsi beittu súf­fra­gett­urnar, eins og þær voru oft kall­aðar, oft því vopni að fara í hung­ur­verk­fall. Yfirvöld brugð­ust við með því að koma mat ofan í þær með valdi.

Hún virð­ist svo hafa séð tæki­færi til þess að vekja enn frek­ari athygli á mál­staðnum með því að trufla Epsom kapp­reið­arnar sem voru mikið sóttur stór­við­burður á þeim tíma.

Þegar hlaupið stóð sem hæst lét Davison til skarar skríða. Hún beygði sig undir grind­verk og óð inn á braut­ina í veg fyrir hest­ana sem komu þjót­andi að henni á fullri ferð. Líkleg kenn­ing er að hún hafi ætlað að koma borða með slag­orð­inu „Votes for Women“ fyrir á einum hest­anna. Ekki er hægt að gefa sér með vissu að hún hafi ákveðið hvaða hest hún hafi ætlað að grípa í, en það var Anmer sem varð fyrir val­inu, hestur í eigu kon­ungs­ins sjálfs.

Anmer keyrði á Davison á fullum krafti. Hest­ur­inn flaug fram­fyrir sig og kastaði knap­anum, sem hét Herbert Jones, af baki. 

Svo merki­lega vildi til að atburð­ur­inn var festur á filmu og er eitt fræg­asta frétta­mynd­skeið þessa tíma.

Davison meidd­ist mikið við árekst­ur­inn, en lifði í fjóra daga á sjúkra­húsi áður en hún lést hinn 8. júní 1913.

Jones fékk heila­hrist­ing við fallið, en þó hann hafi náð sér fljótt lík­am­lega, leit­aði slysið á hann alla tíð og árið 1951 svipti hann sig lífi.

WSPU gerði mikið úr dauða Davisons og fylgdu tug­þús­undir henni til hvílu.

Enn er deilt um hvað henni gekk til, en það þykir lík­legt að hún hafi ekki ætlað sér að deyja þarna á braut­inni þar sem hún keypti lest­ar­miða báðar leiðir og hafði skipu­lagt sum­ar­frí með systur sinni.

Eins er ómögu­legt að segja hvort þessi skelfi­legi atburður hafi haft mikil áhrif á rétt­inda­bar­áttu breskra kvenna, en það liðu fimmtán ár þangað til að allar konur yfir 21 árs aldri fengu kosn­inga­rétt með lögum.

Hvað sem því líður, þá skráði Emily Davison sig ræki­lega í sögu­bæk­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár