12 þúsund færri fá barnabætur

Þeim fjöl­skyldum sem fá barna­bætur hefur fækkað um tæp­lega tólf þús­und milli áranna 2013 og 2016 og mun halda áfram að fækka sam­kvæmt útreikn­ingum ASÍ.

Fjöl­skyldum sem fá barna­bætur hér á landi fækk­aði um tæp­lega tólf þús­und milli áranna 2013 og 2016, sam­kvæmt nýrri frétt frá ASÍ. Þeim mun halda áfram að fækka á næstu árum.

„ Markmið stjórn­valda hefur um nokk­urt skeið verið að „ein­falda“ barna­bóta­kerfið, með því að þrengja þann hóp sem kerfið nær til og beina barna­bótum einkum til heim­ila með allra lægstu tekj­urnar. Minni fjár­munir hefur verið settir í mála­flokk­inn og barna­bætur hafa lækkað að raun­gildi,“ segir í til­kynn­ing­unni frá ASÍ.

Tekju­skerð­ing­ar­mörk hafi verið óbreytt í nokkur ár en þau hækkuð fyrir þetta ár um 12,5 pró­sent. Hins vegar hafi launa­vísi­talan hækkað um þriðj­ung á und­an­förnum fjórum árum og nið­ur­staðan því minni útgjöld til barna­bóta að raun­gildi. „Og ekki annað að sjá en að stefnan sé að draga enn frekar úr stuðn­ingi við barna­fjöl­skyldur. ASÍ mót­mælir þeim áformum harð­lega.“

Þá segir ASÍ að stjórn­völd vísi oft til til­lagna frá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum um end­ur­skoðun á barna­bóta­kerf­inu og ein­földun á því. „Þetta er afar vill­andi þar sem til­lögur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins byggðu á því að mark­mið stjórn­valda væri stuðn­ingur til fátækra en ekki til að styðja almennt við barna­fjöl­skyldur eða hvetja til barn­eigna.“

Mikil sátt hafi ríkt um gildi stuðn­ings til barna­fjöl­skyldna á Norð­ur­lönd­unum og víðar í Evrópu. „Barna­bætur á Norð­ur­löndum eru föst upp­hæð á barn á meðan stuðn­ingur er á Íslandi er háður fjölda og ald­urs barna, tekjum for­eldra og hjú­skap­ar­stöðu. ASÍ vill að þró­un­inni verði snúið við og barna­bætur lag­aðar að nor­ræna kerf­inu þar sem barna­bætur hafa það hlut­verk að jafna lífs­kjör fólks með svip­aðar tekjur en mis­mun­andi fram­færslu­byrði.“

Þá bendir ASÍ á að fæð­ing­ar­tíðni hafi dreg­ist hratt saman og aldrei verið lægri en um þessar mundir. Þrengri fjár­hags­staða ungs fólks og veik­ara stuðn­ings­kerfi barna­fjöl­skyldna hafi vafa­laust hraðað þess­ari þróun. „Minnk­andi stuðn­ingur stjórn­valda til barna­fjöl­skyldna er því risa­stórt skref aftur á bak. Staða ungs fólks, vax­andi kostn­aður við nám, kostn­aður við barn­eignir, dag­gæslu og lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni er sá veru­leiki sem nota má til að rök­styðja aukin stuðn­ings til barna­fjöl­skyldna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár