Alvöru samstarf í sýndarveruleika

Háskóli Íslands og CCP hafa gert með sér samn­ing um aukið sam­starf sín á milli.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Stefanía G. Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri CCP skrifuðu undir samstarfssamning 15.mái síðastliðin
Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands og Stefanía G. Hall­dórs­dóttir fram­kvæmd­ar­stjóri CCP skrif­uðu undir sam­starfs­samn­ing 15.mái síð­ast­liðin Mynd: Kristinn Ingvarsson

Háskóli Íslands og CCP hafa ritað undir ramma­sam­komu­lag um sam­starf sín á milli. Til stendur að CCP færi höf­uð­stöðvar sýnar í Grósku sem er nýtt hug­mynda­hús í upp­bygg­ingu hjá vís­inda­görðum Háskóla Íslands.

„Það er nátt­úru­lega þannig að það er svo mikið að ger­ast í þessum geira í sýnd­ar­veru­leika og slíku á Íslandi, það er ótrú­lega grósku­mikil þróun þar og CCP stendur þar mjög fram­ar­lega. Við hjá Háskól­anum sjáum fram á að það séu mikil tæki­færi fyrir háskól­ann. Af hverju ekki að hafa nágranna sem eru fram­ar­lega í þróun á ákveðnu tækni­sviði ?“ Segir Einar Mäntylä verk­efn­is­stjóri nýsköp­unar hjá Háskóla Íslands.

Einar telur mögu­leik­ana sem fel­ast í sam­starf­inu vera fjöl­marga. Tæknin sem CCP er að þróa til dæmis í sýnd­ar­veru­leika muni koma til með að breyta miðlun efnis og bjóði upp á fjöl­marga mögu­leika til að mynda í safna­fræðum, þróun á söfnum og þess háttar. „Við sjáum fram á að þetta geti breytt miðlun efnis það verði ekki bara á prenti, það verðu hægt að vinna úr efni­við og fræða, kynna fræði­legt efni á nýjan hátt fyrir nýjum kyn­slóðum“. 

Hann bendir á að þar sem sýnd­ar­veru­leik­inn spilar á skyn­færin væri einnig hægt að not­ast við hann í sál­fræði rann­sóknum. „Það eru nú þegar rann­sóknir í gangi þar sem að Íslensk erfða grein­ing og fleiri eiga þátt í um loft­hræðslu.“ Einar telur að hægt verði að nýta tækni­þróun CCP á öllum fræða­sviðum að ein­hverju leyti allt frá lækna­vís­indum til þjóð­hátta­fræði. „Það á bara eftir að koma í ljós hvað fræði­menn eru fljótir að til­einka sér þetta.“ Segir hann.

Samstarf í þróun

„Þetta er ramma samn­ingur um að efla sam­starf sín á milli. Í praktík­inni verður það þannig að sett verður á lagg­irnar sam­starfs­nefnd sem sér um að velja verk­efni og for­gangs­raða væn­leg­ustu sam­starfs­verk­efn­unum og nem­enda­verk­efnum.“ Segir Einar

Einnig stendur til að skoða hvernig sér­fræð­ingar CCP geta komið að rann­sókn­ar­tengdu námi og tengja þá við sér­fræð­inga við nám. Einar segir ávinn­ing­inn ekki aðeins vera háskól­ans heldur geti „háskól­inn tengt CCP við alþjóð­legar rann­sókna umsóknir til dæmis styrkja umsóknir. Sækja í evr­ópska sjóði og vera með í fjöl­þjóð­legum rann­sóknum þar sem þeirra sér­þekk­ing kemur að málum líka. Þannig við erum að opna á mjög víð­tækt sam­starf.“

Vísindasetrið í Vatnsmýrinni

Flutn­ingur CCP í Vatns­mýr­ina er hluti af upp­bygg­ingar starfi Vís­inda­garða Háskóla Íslands. Á vef Vís­inda­garð­anna segir að hlut­verk þeirra sé „að vera alþjóð­lega við­ur­kenndur vett­vangur tækni- og þekk­ing­ar­sam­fé­lags á Íslandi sem á virkan hátt hlúir að og tengir saman frum­kvöðla, fyr­ir­tæki, háskóla, stofn­anir og aðra hags­muna­að­ila sem vinna að því að stór­efla hag­nýt­ingu rann­sókna, nýsköpun og við­skipta­þróun til hag­sældar og heilla fyrir land og þjóð.“

Gróska er nýjasta bygg­ing vís­inda­garð­anna en fyrir eru sex bygg­ingar. Hús Íslenskrar erfða­grein­ingar, Alvotech húsið og fjórar bygg­ingar, sem saman telja 300 íbúðir, í eigu Félags­stofn­unar stúd­enta. Stefnt er að því að Gróska verði tekin í notkun í októ­ber á næsta ári. 

Í við­tali við stúd­enta­f­réttir segir Eiríkur Hilm­ar­son fram­kvæmd­ar­stjóri vís­inda­garð­anna að Gróska sé hug­mynda hús sem verði sér­hæft á upp­lýs­inga og fjar­skipta­tækni sviði líkt og Alvotech húsið sé sér­hæft á lyfja­tækni­sviði. 

Hann segir að CCP verði ekki ein­göngu með starf­semi í hús­inu þótt þeir verði stærsta fyr­ir­tækið „CCP verður með 20 til 25 pró­sent af hús­inu en það verða fjöl­mörg önnur fyr­ir­tæki.“ Í hús­inu verði einnig frum­kvöðla setur og segir Eiríkur að það muni fá gott rými og reiknað er með að ein­hver frum­kvöðla fyr­ir­tæki verði þar með starf­semi. 

Þegar bygg­ing Grósku er lokið stendur til að byggja nýtt hús þar sem starf­semi á sviði sam­einda vís­inda mun fara fram. Alvotech er nú þegar farið að taka þátt í kennslu í lyfja­fræði. Eiríkur segir að þar hafi verið komið inn „með nýja þekk­ingu sem ekki var til staðar í deild­inni.“

Eiríkur segir að þegar upp­bygg­ing vís­inda­garð­anna verður lokið verði „hjartað í þessu sam­fé­lagi hús sem Vís­inda­garðar munu byggja og eiga. Þar fyrir framan verður úti­torg sem mun heita Jónasar Hall­gríms­sonar torg. Okkur finnst það vera mjög vel við hæfi því í þessu sam­fé­lagi er verið að blanda saman vís­indum,tækni nýsköpun og listum.“ Hann bætir við að „mögu­leik­arnir í þver­fræði­legri sam­vinnu eru óend­an­legir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár