Landhelgisgæslan fær nýjar þyrlur en ekki áhöfn

Að öllu óbreyttu getur Land­helg­is­gæsl­ann aðeins mannað tvær þyrlur sam­tímis 35 pró­sent af árinu.

TF-LIF er rúmlega þrjátíu ára og var tekin í notkun 1986.
TF-LIF er rúm­lega þrjá­tíu ára og var tekin í notkun 1986. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Gert er ráð fyrir því að þyrlur Land­helg­is­gæsl­unnar verði end­ur­nýj­aðar í fjár­mála­á­ætlun 2018-2022. Hins vegar stendur ekki til að auka fjár­veit­ingar til Land­helg­is­gæsl­unnar til þess að manna þyrlurnar. Þetta segir í umsögn Land­helg­is­gæsl­unnar með fjár­mála­á­ætl­un­inni. 

Samkvæmt skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna þyrlu­kaupa Land­helg­is­gæsl­unnar sér gæslan um rekstur á þremur þyrlum. Tvær þyrlur eru leigðar og ein þeirra, TF-LIF, er eign Land­helg­is­gæsl­unnar. TF-LIF var tekin í notkun árið 1986 og er því rúm­lega 30 ára gömul en áætl­aður líf­tími björg­un­ar­þyrla er 30 ár. Í fjár­mála­á­ætlun er gert ráð fyrir að festa kaup á þremur nýjum þyrlum og þær verði afhentar á árunum 2021-2023. 

Í skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að til þess að Land­helg­is­gæslan geti sinnt lög­boðnu hlut­verki sínu þurfi hún að hafa tvær þyrlur til taks allan sól­ar­hring­inn allt árið um kring. Einnig er þar bent á að það þurfi sjö til átta áhafnir í vakta­vinnu til að manna þyrlurnar allan sól­ar­hring­inn. 

Miðað við núver­andi fjár­veit­ingar hefur Land­helg­is­gæslan fimm áhafnir til umráða. „Sem þýðir að allt árið er ein áhöfn til taks en aðeins um 35% árs­ins eru tvær áhafnir til taks. Af því leiðir að um 65% árs­ins er ekki hægt að sinna verk­efnum á sjó og 55% árs­ins er ekki hægt að nýta þær þyrlur sem eru til taks vegna skorts á áhöfnum.“, segir í skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Fjölgun ferðamanna fjölgar útköllum

Land­helg­is­gæslan sinnir verk­efnum bæði á land og sjó og fjölg­aði útköllum björg­un­ar­þyrla um 27 pró­sent á árunum 2010-2014. Fjölgun útkalla má meðal ann­ars rekja til fjölg­unar ferða­manna segir í skýrslu inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í lok árs 2014 voru útköll vegna ferða­manna 89 og gert er ráð fyrir að þeim muni fjölga um 60 pró­sent fram til árs­ins 2020 og vera þá 320. Útköll á sjó hafa breyst lítið und­an­förnum árum. Flest útköll eru vegna slysa um borð í fisk­veiði­skipum og fjöldi þeirra hefur breyst lítið. Útköllum vegna skemmti­ferða­skipa hefur fjölgað og búist við að sú þróun haldi áfram á kom­andi árum.

Sama dag og rætt var um kaup á þyrlum til Land­helg­is­gæsl­unnar á Alþingi þurftu þyrlurnar að sinna fjórum útköllum. Fram kemur í frétt RÚV að björg­un­ar­þyrlurnar voru kallað út vegna tveggja bílslysa. Annað slysið átti sér stað á Suð­ur­lands­vegi við Reyn­is­fjall þegar hús­bíll fauk út af veg­inum. Í bílnum voru sex erlendir ferða­menn. Fimm þeirra sluppu ómeiddir en sá sjötti slas­að­ist tölu­vert og var fluttur á Land­spít­al­ann í Fossvogi. Hitt slysið átti sér stað þegar bíll valt í Vatnsdal og voru fjórir erlendir ferða­menn fluttir slas­aðir til Akur­eyrar

Einnig voru þyrlur kall­aðar út til aðstoðar þegar bátur varð vél­ar­vana norðan af Rekavík á Horn­ströndum og loks þurfti að koma manni til aðstoðar sem slasast hafði á fæti og lent í sjálf­heldu við eggja­töku á Langa­nesi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár