Í þá tíð… Valdarán í Alsír og endurkoma DeGaulle

Uppreisn franska hers­ins í Alsír var fyrsta skrefið í átt að end­ur­komu de Gaulle hers­höfð­ingja á valda­stól og stofnun fimmta lýð­veld­is­ins

Margir forsvarsmenn franska herliðsins í Alsír, með liðsstyrk svartfætlinga, evrópskra innflytjenda og afkomenda þeirra, tóku völdin í Algeirsborg og þrýstu á um breytingar í frönsku stjórnkerfi og að Charles de Gaulle yrði gerður að leiðtoga Frakklands á
Margir for­svars­menn franska her­liðs­ins í Alsír, með liðs­styrk svart­fæt­linga, evr­ópskra inn­flytj­enda og afkom­enda þeirra, tóku völdin í Algeirs­borg og þrýstu á um breyt­ingar í frönsku stjórn­kerfi og að Charles de Gaulle yrði gerður að leið­toga Frakk­lands á Mynd: Thorgils Jonsson

Á þessum degi fyrir réttum 59 árum síðan, hinn 13. maí 1958, hrifsuðu for­víg­is­menn franska her­afl­ans í Alsír, sem þá laut stjórn Frakk­lands, til sín völd í Alsír. Þessar aðgerðir voru fyrst of fremst til þess fallnar að mót­mæla getu­leysi stjórn­valda í París í að styðja við her­inn í bar­áttu gegn upp­reisn sjálf­stæð­is­sinna í þess­ari gömlu nýlendu.

Frönsk yfirráð í rúma öld

Frakkar lögðu Alsír undir sig árið 1830. Landinu var skipt upp í þrjú héruð og íbúar þess voru skip­aðir franskir þegnar, en höfðu engu að síður ekki franskan rík­is­borg­ara­rétt. Á árunum sem fylgdu fluttu hund­ruð þús­unda Frakka og ann­arra Evr­ópu­búa til Alsír til að freista gæf­unnar, enda var þar auð­velt aðgengi að landi þar sem inn­flytj­endum var hyglað á kostnað inn­fæddra.

Með árunum urðu afkom­endur evr­ópskra inn­flytj­enda, svo­kall­aðir Pied-Noires – Svart­fæt­lingar, rót­grónir og fjöl­mennir í Alsír. Þeir þóttu hins vegar njóta for­rétt­inda miðað við þá sem voru af alsírskum ættum, og múslimar, og það olli kergju milli hópanna sem stig­magn­að­ist eftir því sem á leið 20. öld­ina.

Múslimar upp­lifðu sig afskipta og svo fór að krafa um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt, og síðar sjálf­stæði, varð sífellt hávær­ari og end­aði með stríði. Þjóð­frels­is­hreyf­ingin (Front de Libération Nationale) hóf skærur gegn herra­þjóð­inni í árs­lok 1954 og stóðu átökin, sem ganga undir nafn­inu Alsírs­stríðið, allt fram til árs­ins 1962 þegar Alsír fékk sjálf­stæði.

Lýðveldi á heljarþröm

Á meðan sífellt hitn­aði í hlóð­unum undir suðu­pott­inum handan Mið­jarð­ar­hafs­ins kraum­aði ákaft í frönsku sam­fé­lagi þar sem póli­tísk kreppa batt stjórn lands­ins í báða skó.

Eftir seinni heims­styrj­öld var franskt stjórn­kerfi reist við að nýju undir merkjum „fjórða lýð­veld­is­ins“, þar sem völd þings­ins voru tryggð. For­set­inn var valda­laus að mestu, en fram­kvæmda­valdið var í höndum for­sæt­is­ráð­herra sem var kjör­inn af lög­gjaf­anum, sem hafði vald til að setja rík­is­stjórnir af með ein­földum meiri­hluta (þarf ekki hreinan meiri­hluta).

Þetta kerfi reynd­ist afar óstöðugt sem leiddi til tíðra stjórn­ar­skipta sem höml­uðu mjög stjórn lands­ins á árunum upp úr miðjum sjötta ára­tugnum, á meðan franskt her­lið barð­ist við skæru­liða í Alsír, í stríði sem almennir borg­arar í Frakk­landi voru alls ekki á einu máli um að væri rétt­læt­an­legt.

[adspot]

Skellurinn og endurkoma frelsishetjunnar

Náð­ar­högg fjórða lýð­veld­is­ins var greitt í maí 1958 þegar hópur her­for­ingja og ann­arra í Alsír greip til örþrifa­ráða til að koma í veg fyrir að slitn­aði á milli Frakk­lands og Alsír. Jacques Soustelle, fyrr­ver­andi land­stjóri í Alsír, hafði snúið aftur til Parísar til að vinna að end­ur­komu Charles de Gaulle hers­höfð­ingja fram á stjórn­ar­sviðið, enda var hann af mörgum álit­inn hæf­asti ein­stak­ling­ur­inn til að halda rík­inu saman á róst­ur­tímum. Hann og banda­menn hans í Alsír, hrundu svo af stað valdaráni, hinn 13. maí 1958 þar sem þess var kraf­ist að de Gaulle yrði útnefndur for­sæt­is­ráð­herra og fengi sér­stök völd til að koma í veg fyrir að Alsír verði „yfir­gefið“. Þegar þar kom við sögu hafði de Gaulle, frels­is­hetjan sem stýrði land­inu á fyrstu árunum eftir seinna stríð, haldið sig utan stjórn­mála í tólf ár.

Herliðið frá Alsír gerði sig lík­legt til að halda upp til Frakk­lands og taka völdin þar, en þing­menn ákváðu að kalla de Gaulle til starfa, sem hann og þáði.

Hann fékk sex mán­uði til að setja saman nýja stjórn­ar­skrá, en í henni full­bú­inni var búið að venda um öxl frá fyrra skipu­lagi og for­set­inn orð­inn höfuð fram­kvæmda­valds­ins. Kom fáum á óvart að de Gaulle skildi ná kjöri sem fyrsti for­seti fimmta lýð­veld­is­ins.

Lausn á Alsírsdeilunni

Eitt af fyrstu emb­ætt­is­verkum de Gaulles var að heim­sækja Alsír og kynna sér aðstæður þar og lét frá sér hin fleygu orð: „Je vous ai compris“ – „Ég skil ykkur.“

Vanda­málið var að þeir sem komu að stríð­inu kusu allir að líta svo á að for­set­inn hafi verið að lýsa yfir stuðn­ingi við sinn mál­stað.

De Gaulle tók svo af skarið og beitti þrýst­ingi til að láta for­svars­menn upp­reisn­ar­innar í maí stíga niður og mark­aði þá stefnu að nútíma­væða alsírskan efna­hag og binda enda á stríðið. Því náði hann fram með því að bjóða Alsír­ingum sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt, ráð­stöfun sem fór gríð­ar­illa í svart­fæt­linga, eins og gefur að skilja, en almenn­ingur í Frakk­landi sam­þykkti í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 1961.

Gengið var frá frið­ar­samn­ingum milli Frakk­lands og Þjóð­frels­is­hreyf­ing­ar­innar í fram­hald­inu, og árið eftir fékk Alsír fullt sjálf­stæði. Það leiddi til for­dæma­lausra búferla­flutn­inga milli land­anna þar sem um 900.000 svart­fæt­lingar fluttu frá Alsír til Frakk­lands á ein­ungis nokkrum mán­uðum. Alsírs­stríðið hafði verið afar blóð­ugt og kostað 300.000 manns­líf.

Aðferðir de Gaulles við að leysa deil­una voru síður en svo óum­deildar sem sýndi sig best í því að oft var reynt að ráða hann af dögum.

Sterkur, en umdeildur leiðtogi

Hann reynd­ist hins vegar ófeigur um sinn og óx í emb­ætti, þar sem hann lagði mikið upp úr sterkri stöðu Frakk­lands á alþjóða­vett­vangi, meðal ann­ars með því að standa fyrir því að Frakk­land kom sér upp kjarna­vopnum árið 1960 og standa gegn nán­ari sam­runa ríkj­anna sem stóðu að hinu nýstofn­aða Efna­hags­banda­lagi Evrópu, síðar ESB. Þá stóð hann gegn aðild Bret­lands að EBE þar sem hann taldi Breta vera leppa Banda­ríkj­anna til frek­ari áhrifa í Evrópu og beitti meðal ann­ars neit­un­ar­valdi í tvígang til að koma í veg fyrir aðild Breta, árið 1963 og 1967. Þeir fengu loks aðild árið 1973, eftir að de Gaulle var far­inn frá völdum og fall­inn frá.

[box]Þrátt fyrir að vera umdeildur utan land­steina var fall de Gaulles fyrst og fremst vegna umbrota inn­an­lands. Ungt fólk í hinum vest­ræna heimi hafði verið að rísa upp gegn ríkj­andi þjóð­fé­lags­skipan og Frakk­land var engin und­an­tekn­ing.

Í maí árið 1968, ára­tug eftir að hers­höfð­ing­inn hafði komið eins og storm­sveipur aftur til valda var orðið vart við þunga undir­öldu reiði ungs fólks sem hafði fengið nóg af óbreyttu ástandi. Mót­mæla­göngur og verk­föll skóku sam­fé­lagið svo hrikti í stoðum þess. Bardagar geisuðu á götum Parísar á tíma­bili og allt virt­ist stefna í alls­herjar upp­lausn.

For­set­inn brást við með því að leysa upp þingið og boða til kosn­inga, sem fóru frið­sam­lega fram og slökktu mót­mæla­bálin, en de Gaulle náði þó aldrei fyrri stöðu og þegar til­lögur hans að breyttri stjórn­skipan voru felldar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið eftir, sagði hann af sér og sagði skilið við stjórn­málin.

De Gaulle lést árið 1970, 79 ára að aldri, en skildi eftir sig djúp spor í frönskum stjórn­málum og sam­fé­lag­inu almennt, sem og á alþjóða­vett­vangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár