Í þá tíð… Jesú kristur og upprisan

Var Jesú til í raun og veru og áttu síð­ustu dagar hans sér stað um pásk­ana?

Um þetta leyti fyrir réttum, tjah, eigum við að segja 1984 árum, lögðu nokkrar konur leið sína að gröf Jesús frá Nasaret sem hafði tveimur dögum fyrr verið líf­lát­inn á krossi fyrir guð­last. Rak þær í rogastans þegar þær sáu að gröfin hafði verið opnuð og var tóm, en eng­ill birt­ist þeim þar og tjáði þeim að allt væri í sóma og vel það, því að Jesú væri upp­ris­inn. Frá þessu segir alltjent í guð­spjöll­unum, for­sög­una og fram­haldið kann­ast flestir við.

Sögurnar af ævi Jesús, afrekum hans, dauða og upp­risu eru að sjálf­sögðu trú­ar­kenn­ingar fremur en sann­an­legar sagn­fræði­legar heim­ildir, en hversu mikið af því sem sagt er að hafi gerst síð­ustu daga Jesús má gefa sér að sé stað­reynd?

[adspot]

Var Jesú til?

Stutta svarið er: Að öllum lík­indum.

Fyrir utan guð­spjöll bibl­í­unnar, sem voru skrifuð nokkru eftir að hann átti að hafa lát­ist, er minnst á Jesú í að minnsta kosti tveimur sagn­fræði­ritum.

[box]Sagna­rit­ar­inn Flavíus Jósefus minn­ist á Jesú á tveimur stöðum í riti sínu um sögu gyð­ing­dóms, sem ritað var um árið 93 e.kr. sam­kvæmt gild­andi tíma­tali (það er svo önnur pæl­ing, hvort ártals­kerfið rími full­kom­lega við tíma­setn­ingu fæð­ingar Jesús). Þar er ann­ars vegar minnst á dauða og upp­risu Jesús og hins vegar talað um Jakob, „bróður Jesús, hins svo­kall­aða Krists“. Margir hafa viljað meina að fyrr­nefndi kafl­inn sé seinni tíma við­bót þar sem afrit­ari hafi brugðið jákvæð­ara ljósi á Jesú en var að finna í upp­runa­legu útgáfu Jósefusar.

Þá er Jesús einnig getið í ann­álum róm­verska sagna­rit­ar­ans Tacítusar. Hann getur þess að Jesú hafi verið tek­inn af lífi á valda­tíð Pontí­usar Pílatusar í Palest­ínu, en hún er talin hafa staðið frá 26-36 e.kr. og passar það vel við það sem kemur fram í guð­spjöll­unum.

Þar að auki má nefna rit Plín­í­usar yngri, sem var land­stjóri Rómar þar sem Tyrkland er í dag. Í bréfi hans til Tra­j­anusar keis­ara, sem ritað er um 112 e.kr. minn­ist hann á kristna menn á umsjón­ar­svæði sínu og spyr hvernig eigi að refsa þeim fyrir ein­hverja ótil­greinda glæpi. Þó ekki sé minnst á Jesú beint, er þetta heim­ild um að fylgj­endur hans hafi verið farnir að láta til sín taka á þessum tíma.

Þannig má telj­ast lík­legra en ekki að maður að nafni Jesú hafi verið til í Palest­ínu, nokkurn veg­inn á þeim tíma sem um er rætt, þótt engar beinar sann­anir liggi fyrir því.

Átti dauði hans og upprisa sér stað um páska?

Stutta svarið er: Já.

Þrátt fyrir að upp­risan, líkt og önnur yfir­nátt­úru­leg afrek Jesús, sé háð því að fólk trúi á kenni­setn­ingar kristni, er dauða hans getið í ofan­greindum heim­ildum.

Sögurnar í bibl­í­unni ganga út frá því að dauða Jesús hafi borið upp á páska­há­tíð­inni, sem er forn hátíð sem Hebrear tengdu sauð­burði, og gyð­ingar síðar flótt­anum frá Egypta­landi.

Jesú reið, sam­kvæmt bibl­í­unni, inn í Jer­úsalem á pálma­sunnu­dag og allt sem frá segir eftir það á að hafa gerst innan páska­há­tíðar gyð­inga.

Hvað sem svo gerð­ist nákvæm­lega þessa daga er ómögu­legt að segja til um. Hins vegar ómar enn af þeim til dags­ins í dag, og jafn­vel þótt ver­ald­legur þanka­gangur og efa­hyggja hafi breytt eðli páskanna halda menn, konur og börn áfram að halda þá hátíð­lega, sama hvað spurn­ing­unum hér að ofan líður.

Hér var meðal annars stuðst við:

Sverrir Jak­obs­son. „Er hægt að sanna það sagn­fræði­lega að Jesús Kristur hafi verið til?“ Vís­inda­vef­ur­inn, 12. des­em­ber 2000. Sótt 15. apríl 2017.

Hjalti Hugason. „Hvers vegna heita páskar Gyðinga og páskar krist­inna manna það sama þó að verið sé að fagna svo ólíkum atburðum?“ Vís­inda­vef­ur­inn, 9. apríl 2001. Sótt 15. apríl 2017.

„What is the historical evidence that Jesus Christ lived and died?“ The Guardian, 14. apríl 2017. Sótt 15. apríl 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár