Í þá tíð… Argentínski herinn gerir innrás í Falklandseyjar

Hátt í þús­und manns týndu lífi í skamm­vinnu stríði um yfir­ráð yfir harð­býlum eyja­klasa í Suður-Atl­ants­hafi.

Argentínski innrásarherinn á götum Port Stanley.
Argent­ínski inn­rás­ar­her­inn á götum Port Stanley.

Á þessum degi fyrir réttum 35 árum, hinn 2. apríl árið 1982, gerði argent­ínski her­inn inn­rás í Falklandseyjar, vind­blás­inn eyja­klasa undir stjórn Bret­lands, sem liggur um 300 sjó­mílur undan ströndum Argent­ínu. Íbúar eyj­anna voru um 1.800 tals­ins, flestir ensku­mæl­andi sauð­fjár­bændur.

Þessi aðgerð, sem gekk undir nafn­inu „Rosario“, var hápunktur margra ára­tuga deilna milli Breta og Argent­ínu­manna.

Þrátt fyrir að ekki sé talið úti­lokað að frum­byggjar Tierra del Fuego, syðsta odda Suður-Ameríku, hafi ein­hvern tíma siglt til eyj­anna er talið að breskir sæfarar hafi séð eyj­arnar fyrstir Evr­ópu­manna undir lok sext­ándu aldar og árið 1690 varð breskur sjó­liðs­for­ingi, John Strong að nafni, fyrsti mað­ur­inn sem sögur fara af sem steig fæti á eyj­urnar og nefndi þær eftir yfir­manni sínum í sjó­hernum, greif­anum af Falkland. Raunar var það fyrst sundið milli stærstu eyj­anna tveggja í eyja­kla­s­anum sem var kennt við Falkland greifa, en það nafn fest­ist svo síðar við eyj­arnar í heild, í enskri tungu að minnsta kosti.

Svo vildi nefni­lega til að eng­inn þeirra sem leið átti hjá Falklandseyjum fann sig sér­stak­lega knú­inn til þess að setj­ast þar að fyrr en árið 1764 þegar franski land­könn­uð­ur­inn Louis-Antoine de Bougainville stofn­aði fyrstu byggð­ina á eyj­unum, sem hann nefndi Îles Malouines sem var síðar yfir­fært á spænsku sem Islas Malvinas.

[box]Spán­verjar og Bretar tóku yfir stjórn á sinni hvorri hinna stærstu eyja í klas­anum skömmu síðar, en höfðu yfir­gefið stöðvar sínar snemma á 19. öld, enda fátt um efna­hags- eða fjár­hags­lega hvata til að dvelja þarna, svo óra­langt frá heima­högum og alvöru hags­munum.

Deilur um yfirráð

1816 braust Argent­ína undan stjórn Spán­verja og lýsti yfir sjálf­stæði og fjórum árum síðar voru Falklandseyjar yfir­lýstur hluti rík­is­ins. Þar var reist her­stöð, sem var svo lögð í rúst árið 1832 af banda­rísku her­skipi í hefnd­ar­skyni fyrir upp­töku Argent­ínu­manna á banda­rískum sel­veiði­bátum á svæð­inu.

Ári síðar komu Bretar aftur og hröktu á brott þá argent­ínsku emb­ætt­is­menn sem eftir sátu og hertóku eyj­urnar. Áður en langt um leið var þar komið sjálf­bært sam­fé­lag sem varð form­lega bresk nýlenda árið 1892.

Fátt eitt dró til tíð­inda á Falklandseyjum næstu ára­tug­ina þrátt fyrir að Argent­ínu­menn héldu sífellt til streitu kröfum sínum um yfir­ráð yfir eyj­unum. Ein­hverjar þreif­ingar voru víst milli Bret­lands og Argent­ínu í upp­hafi níunda ára­tug­ar­ins um að færa Falklandseyjar undir argent­ínska stjórn, en þær við­ræður náðu ekki alvöru flugi.

Stríð til heimabrúks

Þegar komið var farm á níunda ára­tug tutt­ug­ustu aldar var her­for­ingja­stjórn við völd í Argent­ínu og hafði stjórnað þar með harðri hendi frá árinu 1976. Pynt­ingar og óút­skýrð manns­hvörf voru dag­legt brauð í Argent­ínu á þessum tíma og bágt efna­hags­á­stand varð enn til að magna óánægu almenn­ings með stjórn­völd.

Ákvörð­unin um inn­rás í Falklandseyjar var því ekki síst til þess ætluð að auka vin­sældir her­for­ingja­stjórn­ar­innar með því að efla þjóð­ern­is­kennd og stilla Bretum upp sem sam­eig­in­legum óvini þjóð­ar­innar.

Þrátt fyrir að eyja­skeggjar hafi í sjálfu sér ekki verið með full rétt­indi sem breskir borg­arar þykir þó ljóst að tak­mörkuð stemmn­ing var meðal almenn­ings á Falklandseyjum að kasta sér í faðm Argent­ínu.

Snörp innrás

Innrásin sjálf átti sér stuttan aðdrag­anda, en Argent­ínu­menn höfðu verið við eft­ir­lit, meðal ann­ars með kaf­bátum undan ströndum eyj­anna vik­urnar og mán­uð­ina á undan og voru ein­hverjar grun­semdir farnar að vakna meðal Breta um að eitt­hvað stæði til.

Það var svo snemma morg­uns 2. apríl að inn­rásin hófst og hún tók skjótt af. Argent­ínu­menn höfðu á að skipa um mörg hund­ruð her­mönnum gegn 68 Bretum. Inn­rás­ar­liðið var þó með skýr fyr­ir­mæli um að drepa enga í breska setu­lið­inu. Var það von Argent­ínu­manna að Bretar myndu þá síður beita her­valdi til að taka eyj­urnar á ný. Einn Argent­ínu­maður lést í skot­bar­daga og þrír særð­ust.

Land­stjór­inn Rex Hunt til­kynnti upp­gjöf í höf­uð­borg­inni Port Stanley þann sama morgun.

Innrásin var gagn­rýnd á alþjóða­vett­vangi þar sem bæði Evr­ópu­banda­lagið og Sam­ein­uðu þjóð­irnar álykt­uðu með Bretum og Banda­ríkin beittu Argent­ínu efna­hags­legum refsi­að­gerðum.

Ekki svo snörp viðbrögð

Viðbrögð Breta við inn­rásinni voru miklu harð­ari en Argent­ínu­menn höfðu reiknað með, bæði hjá stjórn­völdum og almenn­ingi, en það var eitt atriði sem tak­mark­aði nokkuð við­bragðs­flýt­inn, en það var vit­an­lega sú stað­reynd að 8.000 sjó­mílur skilja að Falklandseyjar og Bretland.

Þó að flot­inn hafi verið sendur af stað hinn 5. apríl liðu meira en tvær vikur þar til Bretar náðu landi. Það var hinn 21. apríl sem breski her­inn hóf sókn á eyj­unni South Georgia og fjórum dögum síðar höfðu þeir hrakið inn­rás­ar­her­inn þaðan.

Hörð átök

Í hönd fóru svo harka­leg átök, fyrst í lofti þar sem Argent­ínskar flug­vélar gerðu árásir á bresku skipin, og breskar flug­vélar vörp­uðu sprengjum á flug­völl­inn í Port Stanley.

Hinn 2. maí sökkti breskur kaf­bátur svo skip­inu Belgrano en með því fór­ust um 320 argent­ínskir skip­verjar. Þetta var mann­skæð­asti atburður stríðs­ins.

Bretar náðu landi í San Carlos á vest­ur­hluta eyj­unnar East Falkland hinn 21. maí og tóku stefn­una á Port Stanley, sem var í tæp­lega 100 km fjar­lægð. Eftir nokk­urra vikna barn­ing, þar sem tugir féllu í liðum beggja, ruddu Bretar Argent­ínu­mönnum burt úr hæð­unum umhverfis Port Stanley.

Uppgjöf og eftirleikur

Þegar þarna var komið þótti nokkuð ljóst í hvað stefndi og hinn 14. júní var lýst yfir vopna­hléi. Foringi argent­ínska her­liðs­ins til­kynnti um upp­gjöf að kvöldi þess dags. Falklandseyjar voru aftur komnar undir breska stjórn eftir 74 daga ófrið.

Áhrif stríðs­ins voru tals­verð í báðum ríkjum þar sem leið­togar áttu ólíku fylgi að fagna. Annars vegar varð Margret Thatcher for­sæt­is­ráð­herra gríð­ar­lega vin­sæl og Íhalds­flokk­ur­inn vann stór­sigur í kosn­ing­unum 1983, og hins vegar átti Leopoldo Galtieri, for­seti og yfir­maður her­for­ingja­stjórn­ar­innar, sér ekki við­reisnar von og sagði af sér emb­ætti þremur dögum eftir upp­gjöf­ina.

Bretland og Argent­ína tóku aftur upp stjórn­mála­sam­band árið 1990 en deilan um yfir­ráð yfir Falklandseyjum er enn í dag ásteyt­ing­ar­steinn í sam­skiptum ríkj­anna. Málið er sér­stak­lega við­kvæmt í Argent­ínu þar sem rykið er reglu­lega strokið af því þegar þörf er á að slá póli­tískar keilur á heima­velli. Til dæmis var Cristina Fernandez de Kirchner ófeimin við að nýta sér deil­urnar á meðan hún var for­seti Argent­ínu.

Engar líkur eru þó á því að breyt­ing verði á högum íbúa á næst­unni þar sem kjós­endur sam­þykktu, í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2013 að heyra áfram undir Bretland. Atkvæði féllu þannig að 1.513 sögðu já, en þrír voru á móti. Líklegt þykir, að mati þeirra sem til þekkja, að einn hinna þriggja hafi frekar viljað fullt sjálf­stæði eyj­anna en ekki argent­ínsk yfir­ráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár