Hlaðvarp Kjarnans: Borgarskipulag, Nintendo, fjármagnshöft og raunveruleg kaffihús

Hlaðvarp Kjarnans er stút­fullt af fjöl­breyttum þáttum – allt frá Nintendo-leikja­tölvum og skoskum fót­bolta, í fjár­magns­höft og borg­ar­skipu­lags­mál.

Halldór Armand, rithöfundur og bóhem, var gestur Grétars og Árna í Hisminu á fimmtudag.
Halldór Armand, rit­höf­undur og bóhem, var gestur Grétars og Árna í Hisminu á fimmtu­dag.

Fjöl­breyttir þættir birt­ast í hlað­varp­straumi Kjarnans í hverri viku. Fimm þættir fóru í loftið í vik­unni. Hægt er að hlusta á alla þætt­ina hér á vefnum eða ger­ast áskrif­andi að hlað­varps­straumnum í öllum helstu podcast-öppum í snjall­tækjum. Við heitum Hlaðvarp Kjarnans á iTu­nes. Annars er hægt að fylgja hlekknum hér.

Aðförin

Borgarlína og svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins

Aðförin er nýr þáttur í hlað­varpi Kjarnans þar sem fjallað er um skipu­lags­mál og borg­ar­líf. Umsjón­ar­menn þátt­ar­ins eru Magnea Guð­munds­dóttir og Guð­mundur Kristján Jónsson.

Í fyrstu tveimur þátt­unum fjalla þau um nýjan tón í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Borg­ar­lín­una. Þetta á að þjóna sem hryggjar­stykkið í skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til fram­tíðar.

Í fyrsta þætt­inum útskýrði Hrafn­kell Proppé svæð­is­skipu­lags­stjóri þær áherslur sem hafðar eru í skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til árs­ins 2040. Í þætti tvö ræddu þau Magnea og Guð­mundur við Lilju G. Karls­dóttur sam­göngu­verk­fræð­ing um fram­kvæmd Borg­ar­lín­unnar.

Tæknivarpið

Frábær byrjun Nintendo Switch

Nýjasta leikja­tölvan frá Nin­tendo var aðal­at­riðið í Tækni­varp­inu þessa vik­una. Nin­tento Switch kom á markað um heim allan 3. mars síð­ast­lið­inn. Um er að ræða leikja­tölvu í svip­uðum stærð­ar­flokki og gömlu Game­Boy-­tölv­urnar eða PSP-­tölv­urnar frá Sony.

Stóri mun­ur­inn er hins vegar að Nin­tendo Switch er í raun bara svo­lítið þykk spjald­tölva sem þú getur tengt sjón­varp­inu þínu og notað sem fjar­stýr­ingu fyrir tölvu­leik­ina þína.

Dan­íel Rós­in­krans, helsti Nin­tendo-­sér­fræð­ingur lands­ins, er gestur þátt­ar­ins hjá þeim Atla Stef­áni Yngva­syni, Gunn­laugi Reyni Sverris­syni og Sverri Björg­vins­syni.

Kvikan

Hver græðir hvað á afnámi hafta (sem er ekkert verið að afnema)?

Þrátt fyrir að til­kynnt hafi verið um fullt afnám hafta er aug­ljóst af nýjum reglum að enn séu margar hindr­anir á frjálsu flæði fjár­magns. Þá eru til staðar miklar hömlur á vaxta­muna- og afleiðu­við­skiptum og hluti aflandskrónu­eig­enda auð­vitað enn fastur innan hafta.

En hverjir hagn­ast á afnámi hafta? Hver er hagur almenn­ings, fyr­ir­tækja, fjár­magns­eig­enda, rík­is­ins og Ill­uga Gunn­ars­son­ar? Þessum spurn­ingum og mörgum fleirum er svarað í Kviku vik­unn­ar.

Hismið

Sundlaugar, sjoppur og söknuður eftir brösuðum hamborgara á góðu tilboði

Hall­dór Arm­and Ásgeirs­son rit­höf­undur er gestur His­m­is­ins að þessu sinni. Farið er yfir sund­laug­ar, dul­ar­fullu stúk­una við Laug­ar­dals­laug sem stendur alltaf tóm og hvaða leiðir væru færar til að fá gesti þang­að, hvenær Kringlan verður nor­mcore og kaffi­húsin þar, hvort það sé raun­veru­legra að sitja á Cafe Milano í Skeif­unni eða Kaffi­tár í Banka­stræti, sjoppur og menn­ing­una þar og hvort ekki sé far­inn að mynd­ast sökn­uður eftir raun­veru­leik­anum og lin­o­leum-­dúk­unum auk þess sem frammi­staða Árna í Silfr­inu un helg­ina er krufin.

Sparkvarpið

Trúarrígurinn í Glasgow – The Old Firm

Í Sparkvarpi vik­unnar var fjallað um fót­bolt­ann í Glas­gow og liðin Rangers og Celtic sem átt­ust við um helg­ina. Þeir Árni, Þór­hallur og Þor­geir ræddu um liðin tvö sem og þá trú­ar­legu teng­ingu sem kyndir ríg­inn á milli þeirra. Celtic er lið kaþ­ólikka í Glas­gow á meðan Rangers er lið þeirra sem eru mót­mæl­enda­trú­ar.

Þessi lið eru einnig langstærstu liðin í Skotlandi en höfðu ekki mæst í deild­ar­keppni í 4 ár áður en þau mætt­ust fyrr á þessu tíma­bili. Ríg­ur­inn hefur gríð­ar­lega mikla þýð­ingu fyrir skoskan fót­bolta enda hefur fót­bolt­inn verið í lægð síðan Rangers voru dæmdir niður um deild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár