Mögulegt að skipulagning hryðjuverka fari fram á Íslandi

Tveir menn með tengsl við hryðju­verka­sam­tök hafa sótt um að koma til Íslands.

Tveir sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd hér á landi reynd­ust tengj­ast hryðju­verka­sam­tökum, en komu hingað á árunum 2015 og 2016, sam­kvæmt skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sem birt var 30. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Þeir eru farnir úr land­inu en ekki eru gefnar upp frek­ari upp­lýs­ingar um menn­ina og hvaða sam­tökum þeir tengd­ust.

Í skýrsl­unni segir enn fremur að Ísland hafi verið stoppi­stöð manna sem fara frá Norður-Ameríku til bar­daga­svæða þar sem hið svo­nefnda íslamska ríki berst.

Mesta ógnin í Danmörku

Sé sér­stak­lega vikið að Norð­ur­lönd­unum er sagt í skýrsl­unni að mesta hættan sé í Danmörku. Hún er „einkum tal­in stafa af her­ská­um íslam­ist­um“ og að yf­ir­völd þar hafi vax­andi áhyggj­ur af rík­is­borg­ur­um sem snúa heim eft­ir að hafa tekið þátt í bar­dög­um í nafni hryðju­verka­sam­taka.

  • Í Dan­mörku er hættu­stig nú metið á fjórða þrepi á fimm stiga kvarða og telst hryðju­verka­ógn­in áfram al­var­leg þar í landi.
  • Í Nor­egi er talið að óvissa fari vax­andi og að „hætta á hryðju­verk­um íslam­ista í land­inu sé til staðar.“
  • Í Svíþjóð er hættu­stig nú metið á þriðja þrepi á fimm stiga kvarða og það hækk­aði í mars á síð­asta ári
  • Í Finn­landi var hryðju­verka­ógn síð­ast met­in í lok árs 2015. Þá var hættu­stig hækkað úr mjög lágu í lágt.

Grein­inga­deildin metur að hættu­stig á Íslandi sé í með­al­lagi.

Byggt er á upp­lýs­ingum frá nor­rænum sam­starfs­að­ilum og skýrslum Evr­ópu­lög­regl­unnar, Europol og fleirum. Hættu­stig í með­al­lagi skil­grein­ist svona: „Almennt er talið að ekki sé hægt að úti­loka hættu á hryðju­verkum vegna ástands inn­an­lands eða í heims­málum.“

Ógn í Evrópu sífellt til staða

Evr­ópu­lög­reglan telur að óryggisógnir fari vax­andi í álf­unni og að hryðju­verk sem unnin voru í Evrópu á árinum 2015 til 2016 gefi til kynna breyttan ásetn­ing, skot­mörk, aðferðir og getu islamskra hryðju­verka­manna.

Almennt er erfitt fyrir lög­reglu og yfir­völd að fylgj­ast náið með hryðju­verkógn og meta hverju sinni hvaðan hún kemur. Grein­ing­ar­deildin telur ekki úti­lokað að hér á landi fari fram skipu­lagn­ing hryðju­verka í öðru landi og tekur virkan þátt í alþjóð­legri sam­vinnu um þau mál­efni.

Áhersla er lögð á það í skýrsl­unni að lög­reglu­yf­ir­völd hafi sömu heim­ildir hér á landi eins og tíðkast í öðrum löndum til að hægt sé að auka öryggi og rann­saka mögu­legar ógn­anir. Þetta sé grund­vall­ar­at­riði, sem þurfi að huga að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár