Búið að skipa nefnd um rekstrarumhverfi fjölmiðla

Illugi Gunn­ars­son, starf­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur skipað í nefnd um rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla. Í nefnd­inni verða Hlynur Ingason frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, Svan­björn Thorodds­sen hjá KPMG, Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, Björgvin Guð­munds­son hjá KOM og Soffía Har­alds­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri mbl.is.

Við valið var horft til þess að sjón­ar­mið mis­mun­andi fjöl­miðla end­ur­speglist sem best.

Hún á að skila til­lögum um breyt­ingar á lögum eða um aðrar nauð­syn­legar aðgerðir til að bæta rekstr­ar­um­hverfi og tryggja að á Íslandi fái þrif­ist fjöl­breyttur mark­aður frjálsra fjöl­miðla. Til­lög­urnar áttu upp­haf­lega að liggja fyrir 15. febr­úar 2017, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans verður sá frestur lengdur.

Ill­ugi Gunn­ars­son, frá­far­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þann 3. októ­ber síð­ast­lið­inn um athugun á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Sam­kvæmt henni átti hver stjórn­mála­flokkur að skipa einn full­trúa í nefnd­ina. Ekki náð­ist að klára afgreiðslu til­lög­unnar áður en þingi var slitið fyrir nýliðnar kosn­ingar og þess í stað kynnti Ill­ugi það í rík­is­stjórn að hann myndi skipa nefnd­ina

Í grein­ar­gerð með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni kom fram að full­trúar einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi hafi vakið athygli stjórn­valda á erf­ið­leikum sem blasa við í rekstri þeirra og megi rekja til ýmissa utan­að­kom­andi aðstæðna. Þar megi t.d. telja til að aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn hér­lendis hafi ekki vaxið sem skyldi þrátt fyrir batn­andi efna­hag þjóð­ar­innar og auk þess fari ætið stærri hluti aug­lýs­inga­fjár til erlendra stór­fyr­ir­tækja á borð við Google og Face­book. Þá hafi staða Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði einnig tak­­mark­andi áhrif á mögu­leika ann­arra fjöl­miðla til að afla aug­lýs­inga­tekna.

Vegna þess hefur verið skorað á stjórn­völd að gera „nauð­syn­leg­ar, mál­efna­legar og tíma­bærar breyt­ingar á íslenskri lög­gjöf til þess að jafna sam­keppn­is­stöðu félaga á íslenskum fjöl­miðla­mark­að­i“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár