46 skattaundanskotum vísað til saksóknara

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Mynd: RÚV/Skjáskot

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur vísað 46 skattaund­an­skota­málum til sak­sókn­ara. Í öllum mál­unum er talið að stór­felld lög­brot hafi verið framin sem varða við hegn­ing­ar­lög. Talið er að hund­ruðum millj­óna króna hafi verið komið undan skatti. Frá þessu var greint í fréttum RÚV í kvöld.

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri gekk frá kaupum á gögnum um eig­inir Íslend­inga í skatta­skjólum fyrir 37 millj­ónir króna sum­arið 2015. Í þeim fund­ust 500 félög sem tengd­ust Íslend­ingum. Í frétt RÚV sagði að í hverju máli geti skattaund­an­skot numið á bil­inu einni milljón króna upp í tugi, ef ekki hund­ruði millj­óna króna.

Í Panama­skjöl­unum sem fjöl­miðlar greindu frá í apríl á þessu ári fund­ust nöfn um 600 Íslend­inga. Jafnvel þó það sé ekki ólög­legt að eiga pen­inga í skatta­skjólum er oft ómögu­legt að sann­reina skatta­upp­lýs­ingar félaga sem skráð eru í skatta­skjólum.

Í frétt RÚV segir að 108 mál hafi verið tekin til form­leg­arar rann­sóknar sem tengd­ust Panama­skjöl­unum. Sum höfðu verið áður til rann­sóknar. 34 mál voru tekin til form­legrar rann­sóknar eftir að skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti skatta­gögnin í fyrra. Þrjú hafa verið felld niður.

Tekin hefur verið skýrsla af hátt í 200 manns vegna þess­ara mála og hátt í 100 manns hafa stöðu sak­born­ings í þessum málum. 46 málum hefur verið vísað til sak­sókn­ara þar sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur kom­ist að nið­ur­stöðu um að stór­felld brot hafi verið framin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár