Kosningaósigrar kosta Samfylkingu og Framsókn tugi milljóna

Sam­fylk­ingin fékk 102 millj­ónir úr rík­is­sjóði árið 2010. Á næsta ári mun hún fá 19 millj­ónir. Framlög til Fram­sókn­ar­flokks­ins munu rúm­lega helm­ing­ast á milli ára. Það er dýrt að bíða afhroð í kosn­ingum.

Oddný Harðardóttir var formaður Samfylkingarinnar í síðustu kosningum. Hún sagði af sér embætti í byrjun viku.
Oddný Harð­ar­dóttir var for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í síð­ustu kosn­ingum. Hún sagði af sér emb­ætti í byrjun viku. Mynd: Kristinn Magnússon/Samfylkingin

Sú upp­hæð sem Sam­fylk­ingin getur átt von á að fá úr rík­is­sjóði vegna starf­semi sinnar á næsta ári er áætluð um 19 millj­ónir króna. Flokk­ur­inn fékk 102 millj­ónir króna árið 2010 eftir mik­inn kosn­inga­sigur árið á undan og hefur þegið 35-38 millj­ónir króna á ári á þessu kjör­tíma­bili. Eftir afhroð í kosn­ing­unum um síð­ustu helgi, þegar flokk­ur­inn fékk ein­ungis 5,7 pró­sent atkvæða, mun sú upp­hæð helm­ing­ast, sam­kvæmt útreikn­ingum sem Við­skipta­blaðið birtir í dag. Sam­fylk­ingin hefur þegar sagt upp öllu starfs­fólki sínu til að bregð­ast við hinum nýja efna­hags­lega veru­leika.

Nið­ur­stöður kosn­ingar hafa mikil áhrif á fjár­mál stjórn­mála­flokka. Þeir fá úthlutað fé úr rík­is­sjóði í sam­ræmi við atkvæða­vægi og því getur góður eða afar slakur árangur skipt miklu máli í rekstri flokka. Samkvæmt lögum er fé úthlutað árlega til starf­semi stjórn­mála­sam­taka sem annað hvort fengið að minnsta kosti einn mann kjör­inn á þing eða fengið 2,5 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum.

Annar flokkur sem tap­aði miklu í kosn­ing­unum 29. októ­ber er Fram­sókn­ar­flokkur. Árið 2013 fékk hann 24,4 pró­sent atkvæða sem gerði það að verkum að greiðslur til hans í ár voru 72,1 milljón króna. Samkvæmt útreikn­ingum Við­skipta­blaðs­ins verða þær tæpar 34 millj­ónir króna, eða 47 pró­sent af því sem flokk­ur­inn þáði í ár.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær flokka mest úr rík­is­sjóði, enda stærsti flokkur lands­ins að loknum kosn­ing­unum þar sem hann fékk 29 pró­sent atkvæða. Flokk­ur­inn bætti lít­il­lega við sig á milli kosn­inga og fram­lög til hans munu hækka úr 78,9 í 84,9 millj­ónir króna. Vinstri græn bættu einnig vel við sig – fékk 15,9 pró­sent atkvæða – og fram­lög til flokks­ins munu hækka um tæpar 15 millj­ónir og verða þá 46,6 millj­ónir króna.

Píratar, sem bættu mest allra þegar sitj­andi flokka við sig í nýliðnum kosn­ingum þegar þeir fengu 14,5 pró­sent atkvæða, hækka fram­lög sín gríð­ar­lega milli ára. Í ár fær flokk­ur­inn 15,2 millj­ónir króna en Við­skipta­blaðið áætlar að hann fái 42,3 millj­ónir króna árið 2017. Viðreisn fékk 10,5 pró­sent atkvæða sem tryggir flokknum 30,6 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á næsta ári. Björt fram­tíð verður á svip­uðu róli, fékk 24,3 millj­ónir króna í ár en fær 20,9 millj­ónir króna á því næsta, en flokk­ur­inn fékk 7,2 pró­sent atkvæða og tap­aði einu pró­sentu­stigi.

Sig­ur­veg­ari smá­fram­boð­anna um síð­ustu helgi var óum­deil­an­lega Flokkur fólks­ins. Ingu Sæland og félögum tókst að tryggja sér 3,5 pró­sent atkvæða sem þýðir að flokk­ur­inn mun fá 10,3 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði á næsta ári og getur átt von á rúm­lega 40 millj­ónum krónum alls á kjör­tíma­bil­inu, þrátt fyrir að hafa ekki náð í neitt þing­sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár