Veður gæti tafið talningu fram á sunnudag

Hugs­an­lega mun þurfa að fresta taln­ingu á ein­hverjum hluta atkvæða úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi sem greidd verða í kosn­ing­unum á laug­ar­dag, fram á sunnu­dag. Veðurspá fyrir norð­an­vert landið er þannig að spáð er snjó­komu og slyddu. Því gæti farið svo að ekki verði hægt að fljúga með kjör­kassa frá Egils­stöðum til Akur­eyrar, sem vana­lega er gert um mið­nætti á kjör­dag, heldur þurfi að fara með atkvæðin land­leið­ina. Ef færð er léleg þá gæti hún tafið þá för og atkvæðin gætu því mögu­lega ekki verið komin til Akur­eyrar fyrr en undir morgun á sunnu­dag. Þá ætti eftir að telja og afstemma atkvæðin. Þetta gæti gert það að verkum að nið­ur­staða úr taln­ingu í Norð­aust­ur­kjör­dæmi muni ekki liggja fyrir fyrr en á sunnu­dag. Alls eru kjós­endur i kjör­dæm­inu, sem er mjög víð­fermt, eru 29.569 tals­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Gestur Jónsson, for­maður yfir­kjör­stjórnar, segir í sam­tali við blaðið að kjör­stjórnin sé við öllu búin vegna veð­urs. Hún muni funda í dag til að teikna upp áætlun um vinnu­brögð komi til þess að fresta þurfi taln­ingu atkvæða fram á sunnu­dag. „Við leggjum mikið upp úr því að blanda atkvæðum víða að úr kjör­dæm­inu vel saman við taln­ingu. Við hrærum vel í og viljum að með því sjá­ist í stórum dráttum þegar tölur koma hvernig landið liggur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár