Namibískir sjómenn mótmæla og ákærðu verða áfram í gæsluvarðhaldi

Sex­menn­ing­arnir sem ákærðir eru í Namibíu vegna upp­lýs­inga úr Sam­herj­a­skjöl­unum verða í gæslu­varð­haldi fram í febr­úar. Mótmæli brut­ust út við dóms­húsið og sjó­menn sem misst hafa vinn­una sungu lög.

Namibískir sjómenn mótmæla og ákærðu verða áfram í gæsluvarðhaldi
Mótmælt í Walvis Bay Sjó­menn­irnir krefj­ast þess að Esau verði áfram í gæslu­varð­haldi.

Namibískir sjó­menn sem misstu störf sín árið 2015 eftir verk­fall mót­mæltu í borg­inni Walvis Bay í dag. Þeir kröfð­ust þess að Bern­hardt Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins, verði áfram í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar á mútu­greiðslum Samherja til að öðl­ast fisk­veiði­rétt­indi í land­inu. Dóm­stóll­inn féllst rétt í þessu á gæslu­varð­hald yfir sex manns fram í febr­úar 2020 að því fram kemur hjá namibíska fjöl­miðl­inum Infor­m­anté.

Sjó­menn­irnir segja að brott­rekstur þeirra í kjöl­far verk­falls hafi verið órétt­mætur. 25 sjó­menn úr þeirra röðum hafa lát­ist síðan þá, að því segir í umfjöllun blaðs­ins The Namibian. Leiðtogi verka­lýðs­fé­lags þeirra sagði þá gera kröfu um að Esau sæti gæslu­varð­haldi þar til rétt­ar­höld yfir honum fara fram. Esau var einn af sex mönnum sem hand­teknir voru vegna máls­ins, sem Stundin, Kveikur, Wikileaks og Al Jazeera upp­lýstu um í nóv­em­ber.

Mótmæli brut­ust út við dóms­húsið í Windhoek í dag þegar fjallað var um gæslu­varð­hald sex­menn­ing­anna. Á meðal þeirra hand­teknu eru Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, og frænd­urnir James og Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, sem kall­aðir voru „hákarl­arnir“ og komu til Íslands á vegum Samherja. Munu þeir allir vera í haldi til 20. febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár