Krafist óháðrar og opinberrar rannsóknar

Lands­sam­band veiði­fé­laga hefur farið fram á það við bæði sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og umhverf­is­ráð­herra að fram fari óháð opin­ber rann­sókn á því hvers vegna og hvernig regn­boga­sil­ungur hafi sloppið í miklu magni á Vest­fjörðum sem leitt hefur til þess að regn­boga­sil­ungur hefur veiðist um allt norðan- og vest­an­vert land síð­ustu vikur og mán­uði.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­sam­band­inu. „Staðfest hefur verið að regn­boga­sil­ungur hefur veiðst í ám við Húnaflóa, í ám á Vest­fjörðum og allt suður til Faxaflóa, í Vatns­dalsá, Haf­fjarð­ará, Hítará á Mýrum auk fleiri vatna­svæða og það í nokkru magni. Engu að síður hefur ekk­ert fisk­eld­is­fyr­ir­tæki til­kynnt um slysa­slepp­ingar úr sjó­kvía­eldi sínu, sem fyr­ir­tækj­unum er þó skylt að gera lögum sam­kvæmt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Er þess kraf­ist að stjórn­völd láti fara fram óháða og opin­bera rann­sókn á mál­inu og jafn­framt gerir Lands­sam­bandið kröfu um að skoðað verði hvort eft­ir­lit með starf­semi sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækja sé full­nægj­andi og stand­ist kröfur.

„Ljóst er að um umhverf­isslys er að ræða og útbreiðsla regn­boga­sil­ungs um allt norðan – og vest­an­vert land er ein­ungis fyr­ir­boði ann­ars umhverf­isslyss sem verði með vax­andi lax­eldi í sjó­kvím. Slíkt umhverf­isslys er óaft­ur­kræft og því mik­il­vægt að tekið sé í taumana strax,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár