Útreikningar á Icesave-kostnaði leiðréttir – Skekkjan var 68 milljarðar króna

Vís­inda­vef­ur­inn hefur birt nýtt svar við því hvað Icesave-samn­ing­arnir hefðu kostað íslenska ríkið hefðu þeir verið sam­þykktir. Hefðu samn­ing­arnir sem kenndir eru við Svavar Gestsson, verið sam­þykktir árið 2009 hefði rík­is­sjóður skuldað 140 millj­arða króna. Fyrra svarið, sem birt var á Vís­inda­vefnum í febr­úar, sagði að kostn­að­ur­inn hefði orðið 208 millj­arðar. Skekkjan var því 68 millj­arðar króna.

Hersir Sig­ur­geirs­son, dós­ent í fjár­málum við við­skipta­fræði­deild HÍ, er höf­undur beggja svara. Í inn­gangi að nýja svar­inu segir að ekki hafi allar for­sendur legið end­an­lega fyrir þegar útreikn­ing­arnir voru gerðir og birtir í febr­úar, og ekki rétti­lega tekið til­lit til þeirra í svar­inu. „Þá gætti nokk­urrar óná­kvæmni í fjár­hæðum sem leiddu til skekkju í lokamat­inu,“ segir í inn­gangi svars­ins.

Indriði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, benti á þessar skekkjur í aðsendri grein sem birt­ist í Kjarn­anum í maí. Þar sagð­ist hann hafa bent Hersi á skekkj­urnar í útreikn­ingum hans.

Gerðir voru þrír samn­ingar við stjórn­völd í Hollandi og á Bret­landi um kröfur á hendur Lands­bank­anum vegna Icesave-spari­reikn­ing­anna. Í fyrstu tveimur samn­ing­unum leiddi Svavar Gestsson, fyrr­ver­andi ráð­herra, samn­inga­nefnd Íslands og í þeim þriðju leiddi Lee Buchheit samn­inga­nefnd­ina. Eins og áður sagði hefði sú fjár­hæð sem fallið hefði á rík­is­sjóð vegna Icesave-samn­inga Svavars verið 140 millj­arðar. Fjár­hæðin sem fallið hefði á rík­is­sjóð vegna samn­ings Buchheit hefði orðið 46,5 millj­arðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

icesave

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár