Hælisleitendum bjóðist „mun betri kjör en við Íslendingar búum sjálfir við“

Ásmundur Frið­riks­son segir hæl­is­leit­endum boðin betri kjör en Íslend­ingar búi við. Við þurfum að læra af reynslu ann­arra þjóða og leysa úr málum „meints flótta­fólks og hæl­is­leit­enda“ hratt og örugg­lega.

Ásmundur Frið­riks­son og Brynjar Níelsson, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sátu hjá þegar ný útlend­inga­lög voru sam­þykkt á Alþingi í síð­ustu viku. Þeir voru einu þing­menn­irnir sem ekki greiddu atkvæði með nýju lög­unum, sem ann­ars voru sam­þykkt í þverpóli­tískri sam­stöðu.

Brynjar sagði við atkvæða­greiðslu í þing­inu að það væri alveg aug­ljóst að í frum­varp­inu væri margt „mjög gott, sér­stak­lega sem snýr að rétt­indum útlend­inga, stjórn­sýsl­unni og öðrum mik­il­vægum atriðum.“ Hann sat hjá vegna þess að honum þótti málið hafa fengið litla sem enga umræðu í þing­inu, sem væri ekki gott í máli sem væri gjör­bylt­ing og risa­mál. „Við ætlum að afgreiða þetta hér á síð­asta degi, það er ekki mik­ill bragur á því.“ Ekki væri búið að gera neina úttekt á sam­fé­lags­legum áhrifum breyt­ing­anna, og Ísland væri að fara aðra leið að mörgu leyti en aðrar þjóðir.

„Meint flóttafólk“ fái betri kjör en Íslendingar

Ásmundur sagði einnig að margt gott væri í frum­varp­inu en gerði engu að síður mjög marg­vís­legar athuga­semdir við það. Hann sagði mik­il­vægt að geta leyst úr málum „meints flótta­fólks og hæl­is­leit­enda“ hratt og örugg­lega. „Æskilegt væri að það færi aldrei út af þeim stöðum sem það kemur til með flutn­ings­tæki til lands­ins, skipi eða flug­vél. Þá er einnig æski­legt að yfir­völd hefðu þann mann­afla og réðu yfir þeim úrræðum að geta vísað fólki sem sýnir ekki fram á full­nægj­andi heim­ildir til rétt­mæti þess að fá að dvelj­ast hér í landi út þegar í stað.“

Þá segir Ásmundur að vel eigi að taka á móti þeim sem komi til Íslands í „rétt­mætum erindum“. Umsækj­endum um hæli standi til boða hús­næði, lág­marks­fram­færsla og nauð­syn­leg heil­brigð­is­þjón­usta, þar á meðal vegna geð­rask­ana. „Þetta er auð­vitað vel boðið og mun betri kjör en við Íslend­ingar búum sjálfir við. Hér er hús­næð­is­skortur, við erum að sam­þykkja hér lög í þing­inu um almennar íbúðir, að byggja 2.300 íbúðir fyrir þá sem minnst hafa á milli hand­anna. Eldri borg­arar fá ekki inn á dval­ar­heim­ilum og þeir sem þar búa búa við þau kjör að fá dag­pen­inga, rúmar 60 þús­und krónur á mán­uði og þurfa að borga lækn­is­þjón­ustu og heil­brigð­is­þjón­ustu. Varla eru það þau kjör sem við ætlum að bjóða þeim útlend­ingum sem hingað vilja koma.“

Þurfum að skoða reynslu annarra þjóða

Ásmundur er einnig á því að reynsla ann­arra þjóða segi okkur að kostn­aður geti auk­ist langt umfram áætl­anir „vegna mik­illar fjölg­unar útlend­inga sem geta komið hingað undir ýmiss konar yfir­skini og geta ekki eða vilja ekki fram­fleyta sér.“

Það hafi lengi tíðkast að útlend­ingar komi til Íslands að vinna, „hér búa margir Pól­verjar og aust­an­tjalds­fólk, fyr­ir­mynd­ar­fólk sem hefur búið hér og komið til þess­arar þjóðar þegar vantar vinn­andi hendur og auð­vitað er allt slíkt fólk vel­komið til lands­ins, það segir sig sjálft. Við höfum alltaf verið til­búin að taka á móti þeim. En við verðum kannski líka að líta til þess og horfa á það sem aðrar þjóðir hafa gert og hvernig reynsla þeirra er af því að opna landa­mærin óheft.“

Hann tók sem dæmi Svía, sem hann segir að hafi sagst hafa verið barna­legir í mál­efnum útlend­inga. „Danir hafa myndað þjóð­ar­sam­stöðu um að mót­töku fólks sem er að leita að ókeypis fram­færslu verði hætt og þeir efla eft­ir­lit og þrengja reglur þar um. Þurfum við ekki að læra af þess­ari reynslu?“

Hann sagði breyt­ing­arnar á lög­unum miða að því að auð­velda fólki aðgang að land­inu. „Það er slakað á kröfum til fólks sem hingað kemur og þeim sem geta ekki fram­vísað papp­írum um að þau sýni fram á rétt­mæti stað­hæf­inga sinna. Það er slakað á kröfum varð­andi mögu­leika yfir­valda til að ganga úr skugga um hvort ákveðnar stað­hæf­ingar eigi við rök að styðj­ast, eins og til dæmis varð­andi aldur.“ Þá sé hvergi getið um öryggi lands­ins.

Hér má horfa á ræðu Ásmundar í heild sinni.

Skrifa undir gegn lögunum

Tæplega átta hund­ruð manns hafa skrifað nafn sitt á und­ir­skrifta­söfnun þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, for­seta Íslands, að skrifa ekki undir nýju lögin. Þau muni „valda rót­tækum breyt­ingum á íslensku sam­fé­lagi og munu þær breyt­ingar leiða til óaft­ur­kræfs skaða og tjóns.“ Það sé gjá milli þings og þjóðar í mál­inu og brýnt að þjóðin fái að kjósa um málið. Und­ir­skrifta­söfn­unin var sett í gang um helg­ina.

Í skila­boðum á und­ir­skrifta­síð­unni má sjá ýmis rasísk ummæli, eins og „Ísland fyrir Íslend­inga,“ „Hreint land fag­urt land,“ „Dont like muslims“ „Þarf ekki að vernda íslenska kyn­stofn­inn?“ og „Evrópa logar nú þegar í átökum úti á götum. Konum er nauðgað. Ég vil ekki sjá þessa skelfilgu ómenn­ingu á okkar frið­sæla land.“

Stjórn­mála­aflið Íslenska þjóð­fylk­ingin, sem hyggst bjóða fram til þings, hefur hvatt til þess á Facebook að fólk skrifi undir. Þá hefur flokk­ur­inn sent frá sér ályktun þar sem nýju lög­unum er mót­mælt harð­lega. „Það er alveg stórfurðu­legt að Alþingi skuli lýsa landið nán­ast opið fyrir öllum erlendum aðilum sama hvaða erindi þeir eigi hingað. Í lög­unum er gert ráð fyrir að það sé ekki frá­vís­un­ar­sök frá landa­mærum okkar þótt menn komi hingað á fölsuðum skil­ríkjum og jafn­vel ljúgi til um hver þeir séu. Þetta frum­varp gengur þvert á laga þróun á norð­ur­löndum en þar eru ríki að herða lög um útlend­inga af gef­inni slæmri reynslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár