Parhús í Þorlákshöfn, þrjóska í Samfylkingunni og Apple

Hlaðvarp Kjarnans var með fjöl­breyttasta móti þessa vik­una. Hismið tal­aði um ást­ina og Kvikan um list­ina. Tækni­varpið tal­aði reyndar um tækni. Hlusta má á alla þætt­ina hér að neðan.

Þeir Árni, Atli og Grétar töluðu um ástina og Þorlákshöfn í Hisminu.
Þeir Árni, Atli og Grétar töl­uðu um ást­ina og Þor­láks­höfn í Hisminu. Mynd: Birgir Þór

Útvarps­mað­ur­inn Atli Már Stein­ars­son var gestur His­m­is­ins og gerði að vanda upp stóru málin í lífi sínu: Ástina, barn­eignir og fram­tíð­ina. Þeir Árni Helgason og Grétar Theo­dórs­son fóru með Atla Má yfir par­húsa­kaup í Þor­láks­höfn á bland.is, kosn­inga­mynd­band Texas-Magga, hvernig sam­fé­lags­miðar eru að drepa hrein­rækt­aða sér­visku og afsök­un­ar­beiðnir og útskýr­ingar í kjöl­far Panama-skjal­anna.

Í Kviku vik­unnar fóru þau Þórður Snær Júl­í­us­son og Sunna Val­gerð­ar­dóttir yfir for­manns­slag­inn í Sam­fylk­ing­unni, skort á erindi flokks­ins, for­seta­fram­boð, allar hliðar á birt­ingu frétta úr Panama­skjöl­unum og áhrif þeirra. Og auð­vitað mis­mun­ur­inn á góðri afsögn og afleitri.

Í Tækni­varp­inu ræddu þeir Gunn­laugur Reynir og Atli Stefán við blaða­menn­ina Sæunni Gísla­dóttur og Samúel Karl Ólason. Umfjöll­un­ar­efni þátt­ar­ins er árs­fjórð­ungs­upp­gjör Apple og staða fyr­ir­tæk­is­ins. Sæunn og Samúel skrif­uðu áhuga­verða grein á Vísi um stöðu Apple og aðra um upp­gjör sam­fé­lags­ris­ans Facebook. Hvað þýðir nýjasta reikn­ings­upp­gjör Apple fyrir fyr­ir­tækið og mark­að­inn í heild? Eru engir eftir í heim­inum til í að kaupa iPhone?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár