ESA gerir athugasemdir við íslenska dómstóla í fyrsta sinn

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, hefur sent athuga­semdir til Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gegn Norvík og Byko. Þetta er í fyrsta sinn sem ESA sendir slíkt til íslenskra dóm­stóla.

Samkeppniseftirlitið höfðaði mál gegn móðurfélagi Byko, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar síðastliðnum.
Sam­keppn­is­eft­ir­litið höfð­aði mál gegn móð­ur­fé­lagi Byko, fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í febr­úar síð­ast­liðnum.

ESA, eft­ir­lits­stofnun EFTA, sendi athuga­semdir til íslensks dóm­stóls í fyrsta sinn í dag. ESA sendi Hér­aðs­dómi Reykja­víkur skrif­legar athuga­semdir í máli Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins gegn Byko og Norvík. Málið varðar ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá því í maí 2015. Þar var Norvík gert að greiða 650 millj­óna króna sekt fyrir brot dótt­ur­fyr­ir­tæki síns, Byko ehf., á sam­keppn­is­reglum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ESA.

Norvík áfrýj­aði ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála. Nefndin brot Byko ekki jafn alvar­leg og Sam­keppn­is­eft­ir­litið, og taldi ekki sýnt fram á að brotið hefði verið gegn sam­keppn­is­reglum EES-réttar. Sektin var lækkuð um 65 millj­ónir króna. Sam­keppn­is­eft­ir­litið sætti sig ekki við það og höfð­aði mál í febr­úar 2016 fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem þess er kraf­ist að Norvík verði gert að greiða 650 millj­óna króna sekt í mál­inu.

Athugasemdir ráðgefandi

Í því máli leggur ESA fram athuga­semdir, sem snúa að því hvenær eigi að beita sam­keppn­is­reglum EES-réttar og um varn­að­ar­á­hrif sekta í sam­keppn­is­málum. ESA segir málið vekja upp mik­il­vægar spurn­ingar varð­andi túlkun EES-réttar.

„Sam­keppn­is­yf­ir­völdum og dóm­stólum aðild­ar­ríkj­anna er skylt að beita sam­keppn­is­reglum EES-réttar þegar máls­at­vik falla innan gild­is­sviðs EES-samn­ings­ins. Þeim ber einnig að tryggja að regl­unum sé beitt af skil­virkni,” segir í til­kynn­ing­unni. ESA hefur heim­ild til að veita ábend­ingar og leggja fram athuga­semdir, en þetta er í fyrsta sinn sem sú heim­ild er nýtt fyrir íslenska dóm­stóla. Athuga­semdir ESA eru ráð­gef­andi fyrir dóm­stól­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár