Eimskip og Samskip sektuð um háar upphæðir vegna samráðs í Hollandi

Eimskip og Samskip hafa ásamt tveimur öðrum fyr­ir­tækjum, Kloosbeheer og Van Bon, verið sektuð af hol­lenskum sam­keppn­is­yf­ir­völdum vegna alvar­legs ólög­mæts sam­ráðs á frysti­geymslu­mark­aði í Hollandi. Sekt­irnar eru á bil­inu 63 millj­ónir til 1,3 millj­arðar íslenskra króna en ekki er greint frá því í frétta­til­kynn­ingu hol­lenska sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins hversu háar sektir eru lagðar á hvert fyr­ir­tæki um sig.

Um er að ræða þrjú mál þess­ara fjög­urra fyr­ir­tækja. Á árunum 2006 til 2009 höfðu þau með sér sam­ráð um verð, skiptu með sér við­kvæmum sam­keppn­is­upp­lýs­ingum og deildu við­skipta­vinum með hverju öðru. Með þessu skekktu þau sam­keppn­is­markað í Hollandi. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Kloosbeheer hafi við­ur­kennt mis­tök sín og unnið með sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu. Vegna þess hafi sekt fyr­ir­tæk­is­ins verið lækkuð um 10 pró­sent.

Tölvu­póstar leiða í ljós ýmiss konar sam­ráð, sam­kvæmt því sem kemur fram hjá hol­lenska eft­ir­lit­inu. Þannig hafi við­kvæmar upp­lýs­ingar oft verið sendar á milli, eins og verð á geymslu á mat, hversu hátt hlut­fall geymslna þeirra væri í notkun og svo fram­vegis. Fyr­ir­tækin sam­ræmdu einnig til­boð til við­skipta­vina svo að það var alltaf ljóst hvert þeirra myndi fá við­skiptin.

Fimm stjórn­endur í þessum fyr­ir­tækjum voru einnig sektaðir, en hæsta sektin nam rúmum 20 millj­ónum íslenskra króna.

Ólafur William Hand, upp­lýs­inga­full­trúi Eimskips, segir við Kjarnann að félagið hafi tekið frá 900 þús­und evrur eftir að það var upp­lýst um að til stæði að sekta það. Samkvæmt árs­reikn­ingi nemur sektin þess­ari upp­hæð, eða rúm­lega 126 millj­ónum króna. Ólafur segir að fyr­ir­tækið hafi hafið und­ir­bún­ing að áfrýjun. 

Sömu sögu er að segja af Sam­skipum, en lög­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa áfrýjað nið­ur­stöðu sam­keppn­is­yf­ir­valda og und­ir­búa aðgerðir á hendur Kloosbeheer, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Félagið seg­ist ekki vera aðili að mál­inu, heldur bein­ist það gegn Kloosbeheer og eig­endum þess, sem Samskip hafi keypt frysti­geymslu af 2005 en selt aftur 2009. Samkvæmt lögum sé ekki hægt að inn­heimta hærri sektir en 10% veltu þeirra, og sam­keppn­is­yf­ir­völd krefj­ist þess að Samskip borgi mis­mun­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár