Sinfóníuhljómsveitin er orðin betri í Hörpu

Harpa hefur gefið Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands tæki­færi til að þró­ast og vaxa, að mati list­ræns ráð­gjafa hljóm­sveit­ar­innar. Fjallað er um Sinfó í Þukli í Hlað­varpi Kjarnans í dag.

Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti Leníngrad-sinfóníuna eftir Dmitri Sjostakovitsj fimmtudaginn 11. febrúar. Hljómsveitin hefur aldrei selt jafn marga miða á sinfóníutónleika og því var sett aðsóknarmet í Eldborg.
Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands flutti Lenín­grad-sin­fón­í­una eftir Dmitri Sjosta­kovitsj fimmtu­dag­inn 11. febr­úar. Hljóm­sveitin hefur aldrei selt jafn marga miða á sin­fón­íu­tón­leika og því var sett aðsókn­ar­met í Eldborg. Mynd: Birgir Þór

Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands hefur þró­ast mikið á und­an­förnum árum eftir að hljóm­sveitin fékk nýtt heim­ili í tón­list­ar­hús­inu Hörpu árið 2011. Sinfó hafði áður verið til húsa og spilað í Háskóla­bíó síðan það var opnað árið 1961. Fjallað er um Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ina í þætt­inum Þukl í Hlað­varpi Kjarnans í dag.

„Sin­fón­íu­hljóm­sveit gengur rosa­lega mikið út á hljóm og hvernig hljóm­sveitin hljómar,“ segir Árni Heimir Ing­ólfs­son, list­rænn ráð­gjafi Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, í sam­tali í þætt­inum. „85 manns þurfa að stilla sig saman. Við erum alltaf að tala um ein­hverjar míkró­sek­úndur sem skilja á milli þess að vera sam­taka og ekki sam­taka í tón­list.“

„Háskóla­bíó hafði svo tak­mark­aða þró­un­ar­mögu­leika, við komumst bara ákveðið langt þar. Hljóm­burð­ur­inn var ekki nægi­lega góður og aðstaðan ekki nógu góð. Við það að kom­ast í hús þar sem þú getur gert það sem þú átt að vera að gera þá um leið tekst þér að kom­ast ennþá lengra,“ segir Árni Heimir.

Árni segir að sin­fón­íu­hljóm­sveitin sé mjög ánægð í Hörpu og að þar hafi hljóm­sveitin þró­ast mikið á síð­ustu fimm árum. „Hljóm­sveitin hérna þurfti að læra á húsið. Þau spila öðru­vísi og beita sér öðru­vísi hér af því að hljóm­burð­ur­inn er góður, af því að húsið tekur við, heldur en í Háskóla­bíói.“

Gald­ur­inn við góðan hljóm í sölum Hörpu er að þar eru rýmin hönnuð sér­stak­lega með hljóm­burð í huga. Handan veggja Eld­borg­ar­sal­ar­ins eru til dæmis gríð­ar­stór ómrými sem hægt er að opna á óraf­mögn­uðum tón­leikum og magna hljóðið alla leið upp á efstu bekki sal­ar­ins.

Sin­fón­íu­hljóm­sveitin spilar hins vegar ekki aðeins í Eldborg heldur fer hlið­ar­dag­skrá hljóm­sveit­ar­innar nær öll fram í hlið­ar­sölum tón­list­ar­húss­ins og á göngum þess. Arna Kristín Ein­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Hörpu, segir Sinfó velja sér vett­vang eftir því hvað hentar hverju sinni. „Það eru [til dæmis] barna­stundir; alveg fyrir yngstu áhorf­end­urnar. Það er dásam­legt. Börnin eru ekki farin að ganga en dilla sér alveg í takt við tón­list­ina. Þá förum við út úr Eldborg því það getur verið erfitt að sitja kjurr þegar maður er lít­ill,“ segir Arna Kristín.

Á föstu­dag­inn hefst ný hlið­ar­tón­leika­röð sem kölluð er Föstu­dags­röðin og verður í stjórn Daníels Bjarna­sonar tón­skálds. Sú tón­leika­röð verður í Norð­ur­ljósum þar sem nálægðin við flytj­endur verður mun meiri. Arna Kristín segir þetta geta verið geggj­aða upp­lifun fyrir fólk. Sjálf spil­aði hún á flautu í Sin­fón­íu­hljóm­sveit­inni og sat þess vegna á miðju svið­inu umkringd hljóm­sveit­inni. „Það er svo mikið kikk að vera inni í þessum hljómi,“ segir hún.

Í aðdrag­anda tón­leik­ana hefur Sinfó birt mynd­skeið af spjalli Daníels Bjarna­sonar, Egils Ólafs­sonar, leik­ara og hand­rits­höf­undar, og Ernu Ómars­dóttur, dans­ara og dans­höf­undar, um lag­línur og birt­ing­ar­mynd þeirra í ólíkum list­formum. Mynd­skeiðið má horfa á hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár