Ömurlegur Facebook-takki, sinfóníuhljómsveitir og þriðji hver maður í forsetaframboði

Með til­komu nýjasta hlað­varps­þátt­ar­ins hjá Kjarn­anum er nú þáttur á dag­skrá á hverjum degi vik­unnar. Allt frá stjórn­málum til sjón­varpa er tæklað í fjöl­breyttum hlað­varps­þáttum þess­arar viku.

Hvernig notum við sjónvarp eftir tíu ár?

Nýr þáttur hóf göngu sína í hlað­varpi Kjarnans í vik­unni, sem þýðir að nú er hlað­varp á dag­skrá Kjarnans á hverjum degi vik­unnar. Þátt­ur­inn heitir Mark­aðsvarpið og er í umsjón Bjarka Pét­urs­sonar og Trausta Har­alds­sonar. Í fyrsta þætt­inum fengu þeir Pálma Guð­munds­son, for­stöðu­mann ljós­vaka­miðla hjá Símanum, til að lýsa fram­tíð­ar­sýn sinni á notkun sjón­varp, ungu kyn­slóð­inni, sam­keppn­inni og mörgu fleiru.

Smokkar og íþróttakennarar

Útvarp Ísa­fjörður fór sem fyrr um víðan völl á lands­byggð­inni í þætti vik­unnar. Búvöru­samn­ingar, Vest­manna­eyjar og mar­hnútar í viftum komu við sögu, en einnig var mikið rætt um Laug­ar­vatn. Bæði var fjallað um færslu íþrótta­kenn­ara­náms­ins þaðan til Reykja­víkur og svo dúkk­uðu upp fréttir um smokka­sjálf­sala á Laug­ar­vatni.

Hvers vegna eru sinfóníuhljómsveitir reknar af ríkjum Evrópu?

Birgir Þór Harð­ar­son hefur und­an­farið sökkt sér í heim sin­fónía, og í Þukli vik­unnar ræddi hann við Árna Heimi Ing­ólfs­son, list­rænan ráð­gjafa Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, um hljóm­sveitir, tón­list og sin­fón­íur.

Raunhagkerfið

Árni og Grétar fengu Daníel Rún­ars­son í heim­sókn í Hismið að þessu sinni. Þeir fóru yfir strætó­bíl­stjóra sem eiga undir högg að sækja, vinnu­deil­una hjá Rio Tinto þar sem grjót­harðir hafn­ar­verka­menn deila við stjórn­endur, og um þá stór­frétt að ÍNN sé til sölu. Daníel er einnig á heima­velli þegar kemur að síð­asta vígi raun­hag­kerf­is­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu - Höfðunum.

Allir í forsetaframboð

Í Kvikunni þessa vik­una var rætt um það hvort þriðji hver maður íhugi for­seta­fram­boð á Íslandi. Þá ræddu þær Þórunn Elísabet og Sunna Val­gerð­ar­dóttir um millj­arða hagnað bank­anna og háar bón­us­greiðslur, afar­kosti sem Píratar eru farnir að setja, ógagn­sæið í búvöru­samn­ingum og þá merki­legu stað­reynd að það lítur út fyrir að hval­veiðum verði hætt á Íslandi.

Facebook-takkinn er ömurlegur

Stóri­dómur var kveð­inn upp í mál nýj­ustu breyt­ing­anna á Facebook í Tækni­varp­inu þessa vik­una, og nið­ur­staðan var sú að nýi like-takk­inn er ömur­legur. Gunn­laugur Reynir ræddi við Guðmund Jóhanns­son hjá Símanum og Hjalta Harð­ar­son fram­kvæmda­stjóra Kjarnans, um Facebook, hin ýmsu tæki og mein­tan dauða línu­legs sjón­varps.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár