Pálmi Guðmundsson: Tæknin er ekki allt

Það eru sög­urnar sem drífa sjón­varps­á­horf áfram, að sögn Pálma Guð­munds­sonar sem stjórnar ljós­vaka­miðlum Símans. Hann er gestur fyrsta þáttar af Mark­aðsvarp­inu í Hlað­varpi Kjarnans.

Pálmi Guðmundsson er gestur Trausta og Bjarka í Markaðsvarpinu.
Pálmi Guð­munds­son er gestur Trausta og Bjarka í Mark­aðsvarp­inu. Mynd: Samsett mynd

Það er ekki á hvers manns færi að gera efni fyrir ljós­vaka­miðla, jafn­vel þó ný tækni verði til og hún geri fleirum kleift að fram­leiða afþreyg­ingu. Þetta segir Pálmi Guð­munds­son, for­stöðu­maður ljós­vaka­miðla hjá Símanum, sem er fyrsti gestur Mark­aðsvarps­ins í Hlað­varpi Kjarnans. Mark­aðsvarpið hóf göngu sína í dag undir stjórn Bjarka Pét­urs­sonar og Trausta Har­alds­sonar.

„Meg­in­inntakið er ennþá óbreytt. Það er auð­vitað eitt­hvað efni, ein­hver efni­viður sem við höfum áhuga fyrir og sam­svörum við,“ segir Pálmi. „Tæknin er í sjálfu sér auka­at­riði í þessu sam­hengi. Tæknin þarf að sjálf­sögðu að fylgja með en það eru sög­urnar sem drífa þetta áfram. Við erum öll með ein­hvers­konar filter-kerfi. Við ýtum frá okkur því sem við höfum ekki áhuga á og við drekkjum okkur í því sem við höfum áhuga á.“

[adspot]

Pálmi ræðir um stefnu Skjásins á íslenskum sjón­varps­mark­aði, línu­lega sjón­varps­dag­skrá, þróun tækn­innar og sýn sína á hvernig áhorf og notkun sjón­varps verður árið 2025. „Við getum svo hlegið saman eftir sjö ár þegar spáin mín hefur ekki gengið eftir,“ segir Pálmi en hann hefur nær alla sína tíð starfað í fjöl­miðlum og hefur mikla reynslu af stjórnun og rekstri ljós­vaka­miðla.

Markaðsvarpið nýr þáttur í Hlaðvarpi Kjarnans

Mark­aðsvarpið verður á dag­skrá í Hlað­varpi Kjarnans á þriðju­dögum þar sem Bjarki og Trausti taka fyrir allt það sem teng­ist mark­aðs­málum í víðum skiln­ingi. Þeir hafa saman yfir 50 ára reynslu af mark­aðs­starfi. Þeir segja mark­aðs­mál vera mjög stórt hug­tak sem tekur á þáttum eins og aug­lýs­inga- og kynn­inga­málum, rann­sóknum, tækni, starfs­manna-, gæða-, sölu- og þjón­ustu­málum. „Á manna­máli eru öll fyr­ir­tæki að finna leiðir til að aðgreina sig á mark­að­inum og hámarka arð­sem­ina,“ segja þeir Bjarki og Trausti.

„Stjörn­u­rnar í þátt­unum eru allir þeir sér­fræð­ingar og stjórn­endur sem lifa og hrær­ast í þessum heimi. Markmið Mark­aðsvarps­ins er fyrst og fremst að vera með athygl­is­verðar umræður sem aðrir geta not­fært sér í sínu starfi,“ segja þeir.

Hægt er að hlusta á fyrsta þátt­inn hér að neðan eða í helstu hlað­varpsöppum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

markaðsvarpið

Hlaðvarpmarkaðsvarpið

Páll Óskar: Eitt þekktasta vöru­merkið á Íslandi

Tón­list­ar­mað­ur­inn Páll Óskar Hjálmtýs­son er gestur hlað­varps­þátt­ar­ins Mark­aðsvarpið þessa vik­una, enda er Páll Óskar er þekktasta vöru­merkið á Íslandi, þótt honum þyki það skrýtin til­hugsun. Ákveðið var að ræða við Pál Óskar um hvernig honum hefur tek­ist að við­halda og efla sitt vöru­merki. Eins og flestir vita er hann með eitt þekktasta vöru­merkið hér á landi. Geta mark­aðs­sér­fræð­ingar nýtt sér...
Hlaðvarpmarkaðsvarpið

Mark­aðsvarpið: Lúðurinn og Y-kyn­slóðin

Íslenski mark­aðs­dag­ur­inn verður hald­inn hátíð­legur með veg­legri ráð­stefnu í Háskóla­bíói á morgun, 4.mars. Í til­efni af því var ákveðið að vera með sér­stakan þátt af Mark­aðsvarp­inu þar sem rætt var við Hólm­fríði Ein­ars­dóttur, mark­aðs­stjóra Íslands­banka og Kristján Geir Gunn­ars­son, mark­aðs­stjóra hjá Nóa Siríus. Rætt er almennt um mark­aðs­mál á Íslandi, hvað skiptir mestu máli, hvað gengur vel og hvað má...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár