Sigmundarleysi Samfylkingar, ungur aðstoðarmaður og sveifluríki

Málefni líð­andi stundar eru krufin ofan í kjöl­inn í Hlað­varpi Kjarnans í vik­unni. Landa­mæri eru ekki virt, enda koma Sviss, Banda­ríkin, Ísa­fjörður, Frakk­land og Reykja­vík öll við sögu.

Aðstoðarmaður blæs á gagnrýni

Nýjasta við­bótin í hlað­varps­flóru Kjarnans, Útvarp Ísa­fjörður, varð fyrst fjöl­miðla í til að næla í við­tal við nýráð­inn aðstoð­ar­mann Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra, Ísfirð­ing­inn Gauta Geirsson. Hann hafði verið mikið í umræð­unni vik­una áður sökum ungs ald­urs og hafði ráð­herra verið gagn­rýn­inn fyrir að ráða sér svo reynslu­lít­inn aðstoð­ar­mann. Gauti sagð­ist alltaf hafa haft mik­inn áhuga á utan­rík­is­málum og sagði nauð­syn­legt að gefa ungu fólki meiri tæki­færi. Hann hætti að versla í H&M eftir að hann heim­sótti fata­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins í Kambódíu á ferð sinni um heim­inn.

Bandaríkin eru flókin

Magnús Jónasson ræddi við Birgi Þór Harð­ar­son í Hlað­varp­inu um for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Magnús er mik­ill áhuga­maður um banda­ríska póli­tík og er með allt á hreinu sem við­kemur hinu flókna kosn­inga­ferli sem er við lýði vest­an­hafs. Hann fer yfir þann fjölda lýð­fræði­breytna sem ein­kennir Nevada og Norður-Karólínu þegar við­kemur upp­skipt­ingu Demókrata og Repúblik­ana.

Gaman í vinnunni

Freyr Eyj­ólfs­son, útsend­ari Kjarnans í París, ræddi við Aðal­stein Leifsson, for­stöðu­mann EFTA, á kaffi­húsi í Genf. Í nýjasta þætt­inum af Undir smá­sjánni spjalla þeir um brenn­andi áhuga Aðal­steins á fagi sínu, en hann er einnig lektor í samn­inga­tækni við Háskól­ann í Reykja­vík. Hann segir samn­inga ekk­ert annað en sam­eig­in­lega ákvarð­ana­töku - það sé hins vegar leiðin að þeim sem sé stundum flókin.

FBI vill inn í iPhone

Apple komst enn á ný í fréttir í vik­unni þegar fregnir bár­ust af bar­áttu fyr­ir­tæk­is­ins við banda­rísku Alrík­isr­lög­regl­una, FBI, um aðgang yfir­valda að gögnum á iPhone símum. Í Tækni­varp­inu fengu þeir Gunn­laugur Reynir og Andri Valur hann Jón Heiðar Þor­steins­son, frá Stuckiniceland.com og Advania, í heim­sókn þar sem þeir ræddu meðal ann­ars þetta mál. 

Sigmundarleysi Samfylkingarinnar

Karlar eru körlum bestir. Þetta er nið­ur­staðan sem þau Þórunn Elísabet Boga­dóttir og Þórður Snær Júl­í­us­son, aðstoð­ar­rit­stjóri og rit­stjóri Kjarnans, komust að þegar þau ræddu í Kviku vik­unnar hina enda­lausu skekkju í kynja­hlut­föllum innan fjár­mála­kerf­is­ins. Þau krufu líka vanda Sam­fylk­ing­ar­innar og telja að flokk­ur­inn þurfi að finna „sinn Sigmund Davíð“ eins og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gerði forðum þegar Sig­mundur var kjör­inn for­maður. Leiðin lá upp á við fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn eftir það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár