Urðu hlaðvarpsfíklar í Svíþjóð - Útvarp Ísafjörður hefur göngu sína

Nýr hlað­varps­þáttur hóf göngu sína í Hlað­varpi Kjarnans í dag. Útvarp Ísa­fjörður fer í loftið alla mánu­daga.

Gylfi, Þorsteinn og Tinna sjá um hlaðvarpsþáttinn Útvarp Ísafjörður í Hlaðvarpi Kjarnans. Þátturinn verður á dagskrá á mánudögum í vor.
Gylfi, Þor­steinn og Tinna sjá um hlað­varps­þátt­inn Útvarp Ísa­fjörður í Hlað­varpi Kjarnans. Þátt­ur­inn verður á dag­skrá á mánu­dögum í vor. Mynd: Haukur Sigurðsson

Nýr þáttur hóf göngu sína í Hlað­varpi Kjarnans í dag. Í Útvarpi Ísafirði fjalla þau Gylfi Ólafsson, Tinna Ólafs­dóttir og Þor­steinn Másson um fregnir af lands­byggð­inni í víðum skiln­ingi. Fyrsti þátt­ur­inn fór í loftið í hlað­varps­straumnum í dag og verður þátt­ur­inn á dag­skrá á mánu­dögum í vor.

„Við Gylfi ánetj­uð­umst hlað­varps­þáttum þegar við bjuggum í Svíþjóð og höfum lengi haft það bak við eyrað að gaman væri að gera eigin þætti,“ segir Tinna. „Við vildum þó ekki gera það nema hafa skýrt þema og við köst­uðum allskyns hug­myndum fram sem voru slegnar jafn fljótt út af borð­inu.“

Þau átt­uðu sig á end­anum á því að eðli­leg­ast væri að tala um það sem stæði hjarta þeirra næst. „Útvarp Ísa­fjörður fjallar því um byggða­mál í víð­asta skiln­ingi þess orðs, bæði stór mál og smá sem vekja athygli okkar og eiga það sam­eig­in­legt að tengj­ast lands­byggð­inni,“ segir Tinna enn fremur. „Þegar við vorum dottin niður á efni kom ekki annað til greina en að fá Steina til að vera með okkur enda er hann snjall, fróður um flest og hnytt­inn í til­svörum.“

Þátt­ur­inn er fram­leiddur á þremur stöðum og sam­talið tekið upp með hjálp nýj­ustu tækni. Gylfi og Tinna eru í Reykja­vík og Þor­steinn í Bol­unga­vík. Í fyrsta þætt­inum ræddu þau nær ein­göngu alís­lenska hluti á borð við öryggi sjó­manna, göngu­skíða­iðkun sem meðal við ald­ur­skrísu, amer­ískar stór­myndir á Akranesi og karp um byggða­stefnu sveit­ar­fé­laga.

Meðal ann­ars eru hug­myndir Úlfars Ágústs­sonar, versl­un­ar­manns, rifj­aðar upp í þessum fyrsta þætti en hann lagð til fyrr á þess­ari öld nýja skipan byggða­mála á Vestjörðum. Lands­hlut­inn hafði þá verið í vörn í byggða­legu til­liti í alltof langan tíma og þyrfti að fara að gera sér grein fyrir styrk­leikum sínum og veik­leikum. Úlfar lagði því til að Ísa­fjörður og þorpin í kringum Ísafjörð þyrftu að setja sér mark­mið og þrengja fók­us­inn.

Svo nefnd séu hér nokkur dæmi þá ætti Ísa­fjörður að vera þjón­ustu­kjarn­inn sam­kvæmt hug­myndum Úlfars, Suð­ur­eyri ætti að nýta sína helstu styrk­leika sem eru stuttar vega­lengdir á miðin og gott smá­báta­lægi í höfn­inni og Þingeyri ætti að verða sum­ar­dval­ar­staður. Styrk­leikar Þing­eyrar eru nálægð við vest­firsku alpana og mikil nátt­úru­feg­urð. Nánar er rætt um hug­mynd­irnar í þætt­inum. Hægt er að hlusta í spil­ar­anum hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár