Hátíðarhöld og byltingar

„Í ár eru 100 ár síðan konur fengu kosn­inga­rétt á Íslandi.” Þetta var ein algeng­asta setn­ing árs­ins, í ræðum og riti – á sam­fé­lags­miðlum og í opin­berum umræðum og einka­sam­tölum. Póli­tískur ann­áll árs­ins hlýtur að taka mið af því.

Opinber hátíðarhöld

Afmæl­is­árið hefur gefið til­efni til að líta yfir far­inn veg, þakka fyrir bar­áttu og fram­lag for­mæðra okkar og fagna þeim árangri sem náðst hefur í jafn­rétt­is­bar­átt­unni. Ekki síður hefur árið vakið fólk til umhugs­unar um allt það sem enn er ógert – um órétt­lætið sem ríkir í sam­fé­lag­inu í dag, heilum 100 árum eftir að konur öðl­uð­ust form­leg lýð­ræð­is­rétt­indi á við karla.

Reykja­vík­ur­borg lét ekki sitt eftir liggja á árinu heldur fagn­aði árunum 100 með 100 við­burðum. Mark­miðið var að hampa þeim árangri sem hefur náðst og hvetja til fram­fara á sviði jafn­rétt­is­mála á sama tíma. Á heima­síðu borg­ar­innar má skoða tæm­andi lista yfir við­burð­ina sem voru fjöl­breyttir og áhrifa­ríkir.

Tíma­mótin hafa þegar haft áhrif til fram­tíðar. Hátíð­ar­fundur kvenna í borg­ar­stjórn sam­þykkti að setja á lagg­irnar ofbeld­is­varn­ar­nefnd, menn­ing­ar­merk­ingar um konur og sýn­ingar á verkum kvenna munu standa áfram og stelp­urnar úr Stelpur rokka og Stelpur filma munu hafa áhrif um ókomna tíð svo fátt eitt sé nefnt af 100 verk­efnum borg­ar­innar. Því til við­bótar stóðu ríki, fyr­ir­tæki og félaga­sam­tök að ýmsum hátíð­ar­höldum með veg­legum hætti.

Grasrótin

Það er eins með kven­frels­is­bar­átt­una og aðra mann­rétt­inda­bar­áttu, hún verður seint háð af hinu opin­bera. Þó Reykja­vík­ur­borg sé öll af vilja gerð og beiti sér sem stjórn­vald, sveit­ar­fé­lag og sam­starfs­að­ili að bættu sam­fé­lagi, þá verður þekk­ingin, kraft­ur­inn og gróskan alltaf mest í gras­rót­inni.

Á meðan hið opin­bera fagn­aði á sinn hátt hristi gras­rótin upp í sam­fé­lag­inu. Gras­rótin vildi engin hel­vítis blóm, heldur frels­aði geir­vört­urnar, afhjúpaði sex­dags­leik­ann, tal­aði upp­hátt, skil­aði skömminni, stóð saman og sigr­aði Skrekk.

Miðað við allt og allt var afmæl­is­árið eins og best verður á kosið. Hátíð­legt og bylt­ing­ar­kennt á sama tíma. Sagan (og hið hvers­dags­lega mis­rétti sam­tím­ans) varð gras­rót­inni inn­blástur sem vakti sam­fé­lagið til umhugs­unar og krafð­ist aðgerða, úrbóta og raun­veru­legrar sann­girni.

Framhaldið

Á næsta ári verður 101 ár frá því konur fengu kosn­inga­rétt á Íslandi. Öll afmæli eru stór og við eigum að taka hverjum degi fagn­andi. Við­fangs­efnin eru ærin, við megum auð­vitað vera þakk­lát fyrir árangur og bar­áttu for­mæðra okkar en verðum að halda ótrauð áfram.

Á meðan 10 ára stelpur eru kall­aðar hórur, á meðan rétt­ar­kerfið tekur harðar á búða­hnupli en nauðg­unum, á meðan karlar tala við­stöðu­laust við karla um karla í fjöl­miðlum, á meðan launa­munur kynj­anna er til staðar og kona hefur aldrei verið seðla­banka­stjóri, á meðan hvítur mið­aldra gagn­kyn­hneigður karl er við­miðið og allt annað frá­vik, á meðan mis­réttið er jafn aug­ljóst og yfir­þyrm­andi og raun ber vitni – þá ber okkur að halda áfram. Öllum í sam­ein­ingu.

Ára­móta­heitið mitt í ár: Að verða rót­tæk­ari og ákveðn­ari, beita mér fyrir fleiri og stærri skrefum í átt að jafn­rétti, inn­blásin af bar­áttu­anda for­mæðra minna og kom­andi kyn­slóða. Ég skora á þig les­andi góður, á Kjarnann og aðra fjöl­miðla, á sam­starfs­fólk mitt í borg­ar­stjórn, annað sveit­ar­stjórn­ar­fólk, þing­menn, fyr­ir­tæki og félaga­sam­tök að gera slíkt hið sama. Í sam­ein­ingu getum við þannig gert þetta hátíð­lega bylt­ing­arár sem brátt er að baki að upp­haf­inu að ein­hverju stór­kost­legu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár