Ár óttans

Eftir eitt og hálft ár fara fram kosn­ingar til Alþingis. Fólk fer í auknum mæli að velta fyrir sér hvaða flokkar munu bjóða fram í næstu kosn­ingum, hvaða flokkar séu sig­ur­strang­legir og hvernig næsta rík­is­stjórn mun líta út. Á næstu mán­uðum fara flokkar að skerpa á mál­efna­starfi og móta stefnur í hinum ýmsu mála­flokkum sem lögð verður áhersla á í kosn­inga­bar­átt­unni. Síðan munu flokk­arnir skipt­ast á skoð­unum um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu, stjórn­ar­skrár­breyt­ingar, fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið, leiðir til að draga úr áhrifum lofts­lags­breyt­inga og stöðu heil­brigð­is­mála svo dæmi séu nefnd. Flestallt mál­efni vel­kunnug Íslend­ingum enda búið að þræta um þessi sömu mál ár eftir ár án nokk­urrar nið­ur­stöðu. Það er þó einn mála­flokkur sem verður pott­þétt á dag­skrá og við megum alls ekki klúðra.

Árið 2015 var ár hræðsl­unnar. Ótti getur verið not­aður til sundr­ungar eða sam­ein­ingar. Óttinn við mögu­leik­ann á þriðju heim­styrj­öld­inni ýtti undir stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna og ótt­inn við átök á milli Þjóð­verja og Frakka leiddi til stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins. Und­an­farið hafa valda­miklir ein­stak­lingar aðal­lega notað ótta til sundr­ungar, sem hætta er á að leiði til útskúf­unar, mis­mun­unar og átaka. Árið 2015 var nefni­lega líka árið þar sem einn valda­mesti maður Banda­ríkj­anna -ef litið er til umræðu­valds í fjöl­miðlum - sagð­ist vilja banna múslimum að koma til Banda­ríkj­anna. Donald Trump fer ítrekað yfir strikið, hann elur á ótta og hann veit nákvæm­lega hvað hann er að gera.

Hrætt fólk eru hræddir kjós­endur. Hræddir kjós­endur taka ákvarð­anir byggðar á til­finn­ingum en ekki rök­hyggju. Hræddir kjós­endur kjósa flokka sem ala á hræðslu og tala inní orð­ræðu sem skiptir okkur í „við og hinir.“ Slíkir flokkar hafa átt vel­gengni að fagna í nágranna­löndum okkar. Látum hræðsl­una ekki sigra heldur tökum skref til þess að opna landið okkar fyrir alls konar fólki sem auðgar íslenskt sam­fé­lag. Mörg rök eru fyrir því. Við þurfum t.d. fleiri vinn­andi hendur og við höfum líka í meira lagi gott af því að auka fjöl­breytn­ina í sam­fé­lags­flór­unni.

Rann­sóknir sýna að inn­flytj­endur og flótta­menn hafa góð áhrif á sam­fé­lagið. Í leið­ara The Economist voru nýlega færð rök fyrir því að „fólk sem ferð­ast yfir eyði­merkur og úthöf til að kom­ast til Evrópu er ólík­legt til að vera slugs­arar þegar það kemur.“ Inn­flytj­endur greiða almennt skatta umfram það sem þeir fá frá hinu opin­bera auk þess að koma með nýja þekk­ingu og færni inn í landið. Þeir eru lík­legri en heima­menn til að stofna fyr­ir­tæki og ólík­legri til að fremja alvar­lega glæpi. Eftir því sem fólk teng­ist minna, eru minni líkur á spill­ingu eins og þrífst á Íslandi m.a. í formi frænd­hygli.

Stjórn­mála­menn hafa vald, þeirra orð hafa vægi en völdum fylgir ábyrgð. Mik­il­vægt er að tala út frá stað­reyndum. Ofan­greindar stað­reyndir eru byggðar á nið­ur­stöðum rann­sókna. Látum þessar stað­reyndir heyr­ast hátt og vel árið 2016 og kosn­inga­áriðið 2017. Segjum frá því hvernig við viljum sjá fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lagið Ísland þró­ast og mótum saman fram­tíð­ar­stefnu í mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­manna. Það munum við í Bjartri fram­tíð gera. Við erum líka vel með­vituð um að það er áskorun að taka vel á móti fólki af erlendum upp­runa. Það kostar tíma, fé og fyr­ir­höfn. Það krefst sam­ráðs við ein­stak­ling­ana sjálfa en það skilar sér marg­falt til baka í betur nýttum mannauði og vald­efl­ingu ein­stak­linga sem verða oft fyrir mis­munun.

Það fel­ast sókn­ar­færi í fjölgun inn­flytj­enda auk þess sem okkur ber sið­ferði­leg skylda til að veita fleiri flótta­mönnum hæli. En ég ótt­ast að orð­ræða í anda Donald Trump gæti skotið föstum rótum hér á landi og að hrædda fólkið verði sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna 2017. Fyrir alla muni - látum það ekki ger­ast.

Höfundur er þing­maður Bjartrar fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár