Svarthöfði og loftslagsmálin

Á við­burða­ríku ári sem er að líða í borg­ar­málum finnst mér heims­við­burðir hafa markað var­an­leg­ustu og merki­leg­ustu sporin. Fyrir utan hefð­bundin verk­efni eins og snjó­mokstur, rekstur skóla, bar­áttu við að láta enda ná saman fjár­hags­lega, aðstoða þá sem á þurfa að halda osfv. er mér efst í huga nýliðin lofts­lags­ráð­stefna í París og sá tíma­móta­samn­ingur sem þar var sam­þykktur. Aðgerðir í lofts­lags­málum eru lang­mik­il­væg­asta við­fangs­efni sam­tím­ans og til dæmis er sá flótta­manna­vandi sem heims­byggðin glímir við í dag ein­ungis örlítið brot hjá því sem myndi verða ef hlýnun jarðar héldi áfram á þeirri braut sem hún hefur verið. Fólks­flutn­ingar til­komnir af neyð myndu verða slíkir að ómögu­legt er að sjá fyrir afleið­ing­arnar.

Und­an­farin ár hefur mikið verk verið unnið í Reykja­vík til að bæta aðstæður fyrir fleiri ferða­máta en einka­bíl­inn. Heil­mikið hefur verið fram­kvæmt í þá veru, en það sem skiptir lang mestu máli er hug­ar­fars­breyt­ing íbúa. Almennt við­horf hefur tekið nokkrum stakka­skiptum á und­an­förnum miss­erum. Það er sem betur fer svo að mik­ill meiri­hluti borg­ar­full­trúa skilur þörf­ina fyrir breyt­ingar og gengur þar í takt við þorra almenn­ings. Þó eimir aðeins eftir af öflum sem berja höfð­inu við stein, telja að þétt­ing byggðar sé byggð á mis­skiln­ingi, rétt sé að brjóta nýtt land og leiðin að bættum sam­göngum sé að byggja fleiri mis­læg gatna­mót. Þessum röddum til varnar verður þó að taka fram að allar breyt­ingar geta vaxið fólki í augum, eins og dæmin í sög­unni sýna. Það er aldrei of oft minnt á það að hópur karla barð­ist hat­ram­lega gegn rit­sím­anum fyrir ríf­lega 100 árum, nokkuð sem flestum finnst ansi hjá­kát­legt í dag.

Kostir þess að greiða leið þeirra sem vilja ferð­ast með öðrum hætti en á einka­bíl eru gríð­ar­legir, bæði fyrir þá sjálfa og ekki síður þá sem telja sig háða einka­bílnum. Ávinn­ing­ur­inn er umhverf­is­legur, lýð­heilsu­legur og fjár­hags­legur. Allir græða, bæði á dag­inn og á kvöldin.

Borgir leiða breytingar

Á lofts­lags­ráð­stefn­unni í París kom það ber­sýni­lega í ljós að borgir og sveit­ar­fé­lög eru komin mun lengra í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum en þjóð­ríki. Vandinn sem lofts­lags­breyt­ing­arnar valda eru orðnar mjög áþreif­an­legar í borgum, mengun eykst, jarð­vegur er tak­mark­aður eða hefur súrnað og getur ekki tekið við regn­vatni. Árstíðir raskast, það rignir meira, snjóar meira, er heit­ara, er kald­ara. Allt er ýkt­ara. Vatn er víða af skornum skammti og lífs­gæði borg­ar­anna hafa rýrnað. Þetta kallar á aðgerðir strax og þarna eru borg­irnar og sveit­ar­fé­lög komin á fullt skrið að snúa af þeirri braut sem mörkuð hefur verið und­an­farna ára­tugi. Í stað þess að þenja borg­irnar út og brjóta sífellt nýtt land er stefnan að þétta inn­á­við, bæta almenn­ings­sam­göngur og gera fólki kleift að ganga eða hjóla stærri, eða jafn­vel stærstan hluta sinna ferða. Slíkum aðgerðum er ekki alltaf tekið vel í fyrstu. Á sér­stakri hlið­ar­dag­skrá borga í tengslum við COP21 ráð­stefn­una í París sagði Boris Johnson, borg­ar­stjóri London, að upp­bygg­ing hjól­reiða­hrað­brauta (cycling highways) væri ótrú­lega óvin­sæl, en samt rétta leiðin. Það er kannski full­djúpt í árinni tekið hjá Boris að segja þessar aðgerðir "ótrú­lega óvin­sælar", enda kannski frekar hægt að tala um slík við­horf fyrir 10 árum. Meiri­hluti íbúa Reykja­víkur hefur í það minnsta ekki lýst yfir van­þóknun á slíkum aðgerðum hér, en ég tek hins vegar undir þau orð að þetta sé rétta leiðin.

Megi mátturinn vera með okkur

Fyrir utan Par­ís­ar­ráð­stefn­una, mik­il­væg­ustu ráð­stefnu allra tíma, eins og leik­ar­inn og umhverf­isaktí­vist­inn Leonardo DiCaprio kall­aði hana, er næst jákvæð­asti við­burður árs­ins lík­lega frum­sýn­ing nýj­ustu Star Wars mynd­ar­innar. Þegar þetta er skrifað hef ég ekki séð þá mynd, og það skiptir ekki alveg öllu hvernig hún er, Star Wars æðið í sjálfu sér er bara svo skemmti­legt. Reykja­vík teng­ist nú Star Wars með áþreif­an­legri og var­an­legri hætti en nokkru sinni fyrr. Gata í Reykja­vík heitir nú Svart­höfði; frá­bær til­laga sem sett var fram á hinum fram­sækna lýð­ræð­is­vett­vangi Betri Reykja­vík, af Óla Gneista. Tillagan hlaut ein­róma sam­þykki borg­ar­full­trúa sem um málið fjöll­uðu. Gatan stendur á einum af fram­tíð­ar­þétt­ing­ar­reitum borg­ar­innar, Höfðunum.

Mátt­ur­inn í Reykja­vík er tals­vert mik­ill og megi hann vera með okkur um ókomna fram­tíð.

Höfundur er odd­viti Bjartrar fram­tíðar í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár