Árið 2015 gert upp - Hugsum til þeirra sem eiga um sárt að binda

Þegar litið er yfir árið 2015 út frá borg­ar­mál­unum kemur rekstur borg­ar­innar óneit­an­lega upp sem eitt af stóru mál­unum. Þeir 9 borg­ar­full­trúar frá fjórum flokkum sem mynd­uðu meiri­hlut­ann í Reykja­vík­ur­borg á síð­asta ári hafa ekki náð tökum á rekstri borg­ar­sjóðs. Þau tóku við slæmu eigin búi því Sam­fylk­ing og Björt fram­tíð/Besti flokk­ur­inn voru í meiri­hluta 2010-2014 og ráku borg­ina með tapi öll fjögur árin. Nú hafa þau bætt um betur með áfram­hald­andi rekstr­ar­tapi en hærri tölum. Skuldir borg­ar­sjóðs aukast um 30% á tveimur árum.

Þegar þetta er rætt hefur borg­ar­stjóri iðu­lega bent á að öll sveit­ar­fé­lög eigi í rekstr­ar­vand­ræðum. Sem er rétt að hluta til. Rekstur ann­arra sveit­ar­fé­laga hefur þyngst en þegar borgin er borin saman við önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemur hún verst út. Og það ætti auð­vitað ekki að þurfa að bera Reykja­vík­ur­borg saman við neitt annað sveit­ar­fé­lag á Íslandi því hún er svo risa­stór miðað við öll hin íslensku sveit­ar­fé­lögin og ætti að vera lang­best rekna sveit­ar­fé­lagið. Við í minni­hlut­anum ætlum að gera allt sem við getum til að hjálpa meiri­hlut­anum að rétta rekst­ur­inn við enda skylda okkar gagn­vart borg­ar­búum. Verst hvað þau eru gjörn á að fella til­lögur frá okkur.

Hinir óspjölluðu Píratar

Og talandi um meiri­hlut­ann í Reykja­vík. Píratar eru í meiri­hlut­anum en það virð­ist oft koma fólki á óvart því Píratar eiga að vera að öllu leyti svo óspjall­aðir í stjórn­mál­unum. Jæja a.m.k. taka Píratar þátt í ákvörð­unum meiri­hlut­ans í Reykja­vík. Sama hvort það er að hlusta ekki á varn­að­ar­orð varð­andi skipu­lags­mál Reykja­vík­ur­flug­vallar, hvað þá að taka mark á stærstu und­ir­skrift­ar­listum sem um getur í skipu­lags­málum. Eða taka ákvörðun um að skerða þjón­ustu við eldri borg­ara í sumum hverfum en öðrum ekki. Eða að snið­ganga vörur frá Ísrael sem meiri­hlut­inn sam­þykkti reyndar að lokum að draga til baka eftir að við borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins fengum auka­fund í borg­ar­stjórn. Eða enda­laust klúður í ferða­þjón­ustu fatl­aðs fólks og mál­efni tón­list­ar­skól­anna í borg­inni. Þetta eru bara nokkur dæmi um illa unnin verk­efni. Það er ekki enda­laus ánægja með þennan meiri­hluta og rétt að rifja upp að hann er skip­aður borg­ar­full­trúum úr Sam­fylk­ingu, Bjartri fram­tíð, Vinstri grænum og Pírötum.

Málefni fatlaðs fólks

Mjög jákvætt var að samn­ingar skyldu að lokum nást milli sveit­ar­fé­laga og rík­is­ins um rétta hlut­deild sveit­ar­fé­laga í tekjum hins opin­bera til að reka mála­flokk fatl­aðs fólks en það verk­efni kom til sveit­ar­fé­lag­anna árið 2011. Það kom í hlut und­ir­rit­aðs að fara fyrir þeim samn­ingum f.h. sveit­ar­fé­lag­anna og tel ég að vel hafi tek­ist að lokum. Samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður fyrir stuttu við stutta en hátíð­lega athöfn í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu við Hverf­is­götu. Með honum mun rekstur sveit­ar­fé­lag­anna og þar með borg­ar­innar eiga betri mögu­leika. Gott að hafa getað lagt þar ákveðið lóð á vog­ar­skál­arnar í þessu sam­starf­verk­efni sem margt hæfi­leik­a­ríkt fólk kom að.

Verkefni minnihlutans

Það er hlut­verk minni­hluta hverju sinni að benda á það sem betur má fara til að fá fram þroskaðri umræðu og vand­aðri ákvarð­ana­töku. Við höfum lagt okkur fram um að svo megi verða við sem skipum minni­hlut­ann en við erum 6 full­trúar alls. Fjögur frá Sjálf­stæð­is­flokki og tvær frá Framsókn og flug­vall­ar­vinum. Það hafa ekki mörg mál verið svokölluð ,,upp­hlaupa­mál“ eins og á Alþingi þetta árið og kjós­endur segj­ast hafa fengið sig fullsadda á. Samt er það þannig að vekja þarf athygli á málum og mega reyk­vískir kjós­endur reikna með að við í borg­ar­stjórn­ar­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins munum frekar herða okkur í því á nýju ári. Það er hægt að vera mál­efna­legur og gagn­rýn­inn og á því þarf meiri­hluti flokk­anna fjög­urra í borg­ar­stjórn Reykja­víkur svo sann­ar­lega að halda.

Við höfum fengið að fylgj­ast með jólatrjáa­fell­ingum borg­ar­stjóra nán­ast í beinni útsend­ingu af og til í ár og í fyrra. Það er mikil orka búin að fara í blessuð jóla­trén. Fara til Noregs og velja tré. Það stóðst ekki veðrið frekar en í fyrra og borg­ar­stjóri fór í Heiðmörk með skell­inöðru­sög­ina og felldi á báða bóga. Tré fyrir okkur Reyk­vík­inga og fyrir vini okkar í Þórshöfn í Færeyjum sem full­trúi meiri­hlut­ans fylgdi þangað út. Í fyrra var það for­seti borg­ar­stjórnar í ár var það odd­viti Pírata í borg­inni. Jákvætt yfir­bragð en þetta er auð­vitað búið að kosta hell­ing af pen­ingum sem ekki verða not­aðir í annað á meðan.

Hjálpum öðrum

Við notum gervi­jóla­tréð okkar í 27. skipti þessi jólin þannig að það hlýtur að vera orðið umhverf­is­vænt eftir svona mikla notkun. Það er hluti af hefð­inni hjá okkur að nota þetta sama tré með svip­uðum skreyt­ingum ár frá ári. Sumar eru skylda eins og svo margt annað sem hefðin skapar og mótar hjá fjöl­skyldum. Það er nota­legt eins og jólin eru sem betur fer hjá flestum fjöl­skyldum. Hugsum til hvors ann­ars en ekki síst til þeirra sem eiga um sárt að binda á þessum tíma sem öðrum. Látum ekki nægja að hugsa heldur látum af hendi rakna það sem við getum til að hjálpa öðrum sem á hjálp þurfa að halda. Það skilar okkur hinum sanna jóla­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár