Konu dreymir

Málefni flótta­manna settu mik­inn svip sinn á árið. Straumur flótta­manna inn í Evrópu hefur aldrei verið meiri og rétt­ara að kalla þjóð­flutn­inga en hefð­bund­inn flótta­manna­straum. Aðstæð­urnar sem fólk er að flýja eru það hrylli­legar að það leggur á sig stór­hættu­legan flótta á gúmmí­bátum yfir úfið haf að næt­ur­lagi í leit að öryggi og betra lífi. Við slíkar aðstæður er mik­il­vægt að við Íslend­ingar sam­ein­umst um að taka á móti fólki og veita því skjól hér. Við eigum að gera miklu betur í mót­töku flótta­manna en jafn­framt í mót­töku hæl­is­leit­enda og þeirra sem hingað koma sjálfir í leit að fram­tíð.

Við erum mörg sem viljum sjá meiri mannúð í kerf­inu hér á landi þar sem aðstæður hvers og eins eru skoð­aðar sér­stak­lega en tölvan ekki látin segja nei á þeim for­sendum að fólk passi ekki inn í fínu boxin okkar. Mann­úð­ar­sjón­ar­mið verða að ráða för. Út á það gengur líka lög­gjöfin þó að í verki hafi laga­grein frá árinu 2014 um lista yfir örugg ríki verið látin ráða flokkun á fólki. Viðbrögð þings­ins vegna albönsku fjöl­skyldn­anna sýndi vilja þings­ins í þessum efnum. Við komum sam­einuð fram í við­kvæmu máli og fyrir það þakka ég nú á þessum jólum.

Haustþingið – samhent stjórnarandstaða

Mörg ykkar tóku örugg­lega eftir því að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fjórir mættu sam­hentir til leiks á þessu haust­þingi og lögðu fram sam­eig­in­legar til­lögur við fjár­lögin. Við settum þrjú mál á odd­inn; Bætt kjör eldri borg­ar­ara og öryrkja, aukið fé til Land­spít­ala og heil­brigð­is­mála og að lokum að útvarps­gjaldið skil­aði sér allt til RÚV. Þetta var auð­velt fyrir okkur flokk­ana fjóra að ná saman um þetta því mik­il­vægi þess­ara mála eru svo aug­ljós. Við náðum ein­hverjum árangri með því að pressa stíft í langri umræðu í þing­inu; RÚV fékk hækkun uppá 175 millj­ónir og Land­spít­al­inn fékk 200 millj­ónir auk þess sem millj­arður fer í öldr­un­ar­stofn­anir. Við hefðum þurft að sjá hækkun upp á 3 millj­arða í Land­spít­al­ann bara svo hann geti haldið í horf­inu þannig að þetta er ein­göngu brot af því sem þarf en þó meira en rík­is­stjórnin hafði lagt til upp­haf­lega.

Eldri borgarar og öryrkjar skildir eftir

Baráttan fyrir kjörum eldri borg­ara og öryrkja var tví­þætt. Ann­ars­vegar að hækk­anir sem þessir hópar fá nú um ára­mótin verði aft­ur­virk til 1.maí sem er í sam­ræmi við það sem aðrir hópar hafa fengið á árinu. Hins­vegar var krafan að hækkun lægsta líf­eyris almanna­trygg­inga yrði í takt við hækkun lægstu launa. Við náðum því miður ekki að koma vit­inu fyrir rík­is­stjórn­ar­flokk­ana þegar kom að kjörum eldri borg­ara og öryrkja. Talsmenn Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks sögðu það síðan skýrt að þeir teldu ekki að þessir hópar ættu að vera með sömu tekjur og lægstu laun. Þetta var eins og að tala við vegg. Skiln­ing­ur­inn var eng­inn. Fyrir hækkun er nettógreiðsla lægsta líf­eyris almanna­trygg­inga til þeirra sem eru í sam­búð um 170 þús­und krónur og ef við­kom­andi býr einn um 191 þús­und krónur. Þúsundir Íslend­inga eru í þessum sporum. Rétt upp hönd sem treystir sér til að borga af hús­næði, reka litla bif­reið, kaupa í mat­inn og gefa barna­börn­unum jóla­gjafir fyrir þessa fjár­hæð. Auðvitað réttir eng­inn upp hönd því við vitum að það er ekki hægt svo vel sé. Við munum halda bar­átt­unni fyrir bættum kjörum þess­ara hópa áfram.

Þöggun

Pólitísk umræða hefur breyst mikið und­an­farin miss­eri. Ef ráða­fólk er gagn­rýnt fáum við oftar en ekki þau við­brögð að um sé að ræða and­legt ofbeldi, ein­elti eða per­són­u­árásir. Þannig hafa sumir ráð­herrar í þess­ari rík­is­stjórn oftar en ekki brugð­ist við umræðu um störf þeirra sem og þing­menn stjórn­ar­flokk­anna. Ráðamenn eru ekki fórn­ar­lömb í okkar sam­fé­lagi, nema þá kannski helst lýð­ræð­is­legrar umræðu sem þeim kann að þykja óþægi­leg á köflum. Gagnrýni á lág fram­lög til Land­spít­ala er þannig ekki and­legt ofbeldi gagn­vart þeim sem ráða fram­lög­unum. Hér er um að ræða eina leið til þögg­unar alveg eins og það að ráð­ast til baka á per­sónu gagn­rýn­and­ans eins og við höfum séð mörg dæmi um á árinu. Þessir þögg­un­ar­til­burðir eru að stein­gelda alla efn­is­lega og inni­halds­ríka póli­tíska umræðu. Sú sem þetta ritar fór á árinu að sakna stjórn­mála­manna eins og Björns Bjarna­sonar, Einars Odds Krist­jáns­sonar, Val­gerðar Sverr­is­dóttur og Þor­gerðar Katrínar sem aldrei veigr­uðu sér við alvöru póli­tískum debat sama hversu þung gagn­rýnin varð. Í stjórn­málum eigum við að takast á um hug­myndir og ef ein­hver er manni ekki sam­mála þá er það merki um heil­brigða umræðu sem gæti mögu­lega leitt til far­sællar nið­ur­stöðu í máli. Í sam­fé­lagi þögg­unar eru ein­stak­lingar hins­vegar ófrjálsir og sam­fé­lagið þvingað.

Heimilin og framtíðin

Lítið hefur farið fyrir umræðu um heim­ilin í land­inu á þessu ári. Verð­trygg­ingin sem lofað var að afnema lifir enn góðu lífi. Og þó að það hilli undir breyt­ingar á fjár­magns­höft­unum er langt í frá að menn muni getað afnumið þau alger­lega á meðan við erum með íslensku krón­una. Þá hafa vextir einnig farið að hækka að nýju og frekar hækk­anir liggja í loft­inu. Á sama tíma lækkar rík­is­stjórnin barna­bætur sem er sér­stakur stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur með þunga greiðslu­byrði og hún lækkar vaxta­bætur sem ætlað er að mæta þessum sér­ís­lenska him­in­háa verð­tryggða lán­töku­kostn­aði. Við í Sam­fylk­ing­unni höfum löngum tala fyrir breyt­ingum á þessum sér­ís­lensku aðstæðum með upp­töku Evru. Okkur hefur verið mætt með hrópum og köllum og við sögð eiga þetta eina svar við öllu. Þeir sem hæst hrópa ættu þá kannski að fara að kynna fyrir íslenskum heim­ilum og atvinnu­lífi hvaða val­kostur annar verði hér í boði fyrir okkur annar en óbreytt ástand. Umræða okkar um aðild að ESB er nefni­lega umræða um lífs­kjara­bætur fyrir heim­ilin í land­inu með lægri lán­töku­kostn­aði og lægra, stabílla vöru­verði. Ef upp­töku Evru er ýtt út af borð­inu er þá til of mik­ils mælst að óska eftir því að þeir hinir sömu leggi fram annan val­kost?

Frjálst og öflugt viðskiptalíf

Við jafn­að­ar­menn höfum ætíð verið tals­menn öfl­ugs atvinnu­lífs sem byggir á jafn­ræði, gagn­sæi og frelsi. Til að tryggja það þurfa eft­ir­lits­stofn­anir að vera nægj­an­lega burð­ugar til að sinna skyldum sínum. Í frjálsu öfl­ugu við­skipta­lífi eru umgjörð skýr og fyr­ir­sjá­an­leiki til langrar fram­tíðar. Við það búum við ekki hér. Lenskan hér á landi hefur verið sú að fáum aðilum eru skap­aðar aðstæður til að hagn­ast á meðan aðrir fá ekki sömu tæki­færi. Það er ekki merki um frjálst og öfl­ugt við­skipta­líf. Þessu þurfum við í stjórn­mál­unum að beina sjónum okkar að nýju ári ásamt því að veita rík­is­stjórn­inni aðhald í áformum þeirra um sölu rík­is­bank­anna. Þá þarf að hefja lækkun trygg­inga­gjalds­ins til að styrkja minni og með­al­stóru fyr­ir­tækin. Eins er mik­il­vægt að hin póli­tíska umræða um gjald­mið­il­inn fari einnig fram í tengslum við íslenskt atvinnu­líf. Við búum ekki í opnu hag­kerfi sem á í heil­brigðum alþjóð­legum við­skiptum okkur öllum til hags­bóta, á meðan við erum með fjár­magns­höft og gjald­miðil sem eng­inn treystir.

Að lokum

Eins og sjá má verður af nægu að taka á næsta ári; eldri borg­arar, öryrkjar, flótta­menn, heil­brigð­is­kerfið, heim­ilin og atvinnu­lífið þurfa athygli okkar stjórn­ar­mála­manna. Best væri ef við næðum að vinna betur saman þverpóli­tískt. Taka hvern mála­flokk fyrir sig, takast á um hvar við viljum vera eftir 10 ár og leggja niður verk­efnin sem þarf að ráð­ast í til að ná þangað. Kona má láta sig dreyma!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár