Stöndum frammi fyrir breyttri heimsmynd

Árið 2015 líður senn undir lok og eftir stendur minn­ing um sér­stakt ár. Margs konar verk­efni hafa ratað á borð inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og þau hef ég fengið að takast á við með sam­hentu sam­starfs­fólki. Nú er ár liðið frá því ég tók við emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra og hefur það bæði verið krefj­andi og ánægju­legt verk­efni.

Það sem stendur upp úr á þessu ári er að það eru meiri háttar breyt­ingar í Evrópu og heim­inum öllum. Við stöndum frammi fyrir breyttri heims­mynd. Verkefni mín sem inn­an­rík­is­ráð­herra lit­ast mjög af þessum breyt­ingum og standa mál­efni útlend­inga, í breiðum skiln­ingi þess orðs, því óneit­an­lega upp úr á árinu sem er að líða.

Við sjáum hvernig heim­ur­inn iðar og hvernig álfan okkar hefur tek­ist á við og reynt að leggja sitt af mörkum til að hjálpa þeim sem hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín vegna óskap­legra hörm­unga heima fyrir. Við verðum vitni að því sem við vonum auð­vitað að muni ekki verða örlög okkar þjóðar en á að færa okkur heim sann­inn um það hversu heim­ur­inn er hverf­ull og hversu fljótt fornar menn­ing­ar­þjóðir fá að kynn­ast hroða­legum atburðum sem neyða fjöl­skyldur, full­orðna og börn á ver­gang.

Flótta­manna­straum­ur­inn sem við nú sjáum í Evrópu er nán­ast for­dæma­laus. Þeir sem hafa langt minni, muna hvernig ástandið var í lok síð­ari heim­styrj­ald­ar­innar. Við horfum nú til atburða sem minna á það. Eflaust verður langt fram­hald á því og við Íslend­ingar eigum eftir að verða í vax­andi mæli varir við þessa atburði – enda erum við hluti af stærri heild, þ.e. álf­unni og heim­inum öllum.

Málefni útlend­inga eru við­mikil, við­kvæm og oft snúin. Við höfum mikið reglu­verk og flókið um mál­efni útlend­inga og hefur það allt verið í end­ur­skoðun. Nú hillir undir að laga­frum­varp verði lagt fyrir Alþingi. Með því er stefnt að marg­vís­legum umbótum í þessum mála­flokki. Það er alltaf við­kvæmt að fjalla um líf ein­stak­linga hvort sem þeir leita hingað eftir atvinnu, betri lífs­kjörum eða blátt áfram til þess að bjarga lífi sínu og flýja átök og hættur heima fyrir.

Í því til­liti öllu þarf að gera grein­ar­mun á flótta­mönnum og inn­flytj­endum. Flótta­menn eru þeir sem hafa verið neyddir til að flýja heim­ili sín og líf sitt og eiga engra ann­arra kosta völ. Inn­flytj­endur eru þeir sem kjósa að flytj­ast til ann­ars lands, hvort sem það er í leit að betra lífi, til að mennta sig, öðl­ast reynslu á nýjum stað eða hvað­eina annað. Mik­il­vægt er að gera grein­ar­mun á þessum hópum enda eru þarfir þeirra mjög ólíkar og verk­efni stjórn­valda gagn­vart þeim sömu­leiðis. Það mun taka okkur Íslend­inga tíma að ná utan um þessa þræði sem við nú erum með á hendi.

Það sem skiptir máli að missa ekki sjónar af er að í þessu fel­ast bæði áskor­anir og tæki­færi. Við þurfum að vera raunsæ, takast á við verk­efnin af festu en við þurfum líka að líta yfir sviðið og sjá tæki­færin, mannauð­inn og það sem er svo sterkt í okkur öllum – vilj­ann til að öðl­ast gott líf – fyrir sig og sína.

Að öðru leyti hafa verk­efnin ein­kennst af því að efna­hags­lífið er smá saman að rísa úr öldu­dal. Við höfum ekki enn nægi­lega fjár­muni til að hrinda öllum verk­efnum í fram­kvæmd hvort sem er á sviði þjón­ustu, nýj­unga eða fjár­fest­inga. Við þurfum að for­gangs­raða í þágu þess sem brýn­ast er og skilar okkur mestum fram­förum. Það höfum við gert og við horfum bjart­sýn fram á veg­inn.

Árið 2015 var margt sér­stakt fyrir mig per­sónu­lega. Mesta breyt­ingin var sú að taka við emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra. Það var mikil áskorun að takast emb­ættið á hendur og ég gerði mér grein fyrir því að það yrði ekki auð­velt. Ég var þá nýlega staðin upp úr erf­iðum veik­indum. Enginn veit þó hvað fram­tíðin beri í skauti sér og ég er ævin­lega þakk­lát fyrir það hæfa starfs­fólk sem sinnir heil­brigð­is­kerfi okkar og okkur sem á því þurfum að halda. Við vitum aldrei með vissu hvaða verk­efni lífið færir okkur.

Í lok árs höfum við til­hneig­ingu til að líta til baka og hug­leiða hvernig við höfum tekið á þeim málum sem okkur eru falin, hvernig við komum fram hvort við annað – heima hjá okkur, á milli hjóna, hvernig við tölum við og ölum upp börnin okkar og hvað það er sem við viljum inn­ræta hjá þeim. Og um leið – hvað við viljum rækta með sjálfum okkur.

Ég er sátt þegar ég lít til baka. Sátt við að hafa fengið að njóta marg­vís­legra per­sónu­legra gæða og sátt við nýja reynslu sem emb­ættið hefur fært mér á mörgum sviðum. Ég hef kynnst nýju fólki og nýjum verk­efnum og tek­ist á við póli­tísk verk­efni frá annarri hlið en ég hef áður reynt. Á síð­ari hluta árs­ins ákvað ég svo að gefa kost á mér í emb­ætti vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Með þessu hef ég snúið af fullum krafti í stjórn­málin á ný. Eftir að ég tók við emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra varð ég smá saman sann­færð um að ég gæti haft eitt­hvað til mál­anna að leggja á vett­vangi stjórn­mál­anna, ekki aðeins í emb­ætti ráð­herra heldur einnig sem virkur þátt­tak­andi í mínum flokki. Stjórn­málin eru lif­andi og ófyr­ir­sjá­an­leg eins og lífið sjálft. Við vitum ekki hvað kemur næst þótt við þykj­umst reyna að sjá það fyrir.

Við göngum nú til móts við jóla­hald og ára­mót. Ég hlakka til nýs árs og nýrra verk­efna, þau munu bera að án þess að við fáum rönd við reist og án þess að við vitum hvað er framundan. Við tök­umst á við þau með þeirri reynslu og þekk­ingu sem við búum yfir.

Megi tíma­mótin færa okkur frið og kjark til að takast á við verk­efnin sem okkur eru falin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár