Fólk ætti ekki að leika sér að hættunni þegar kemur að veðrinu, og hlýða því sem Almannavarnir hafa sagt, um að fólk eigi að vera í rólegheitum heima hjá sér í dag á meðan veðurofsinn gengur yfir.
Þá er um að gera að fylgjast vel með vef Veðurstofu Íslands, og sjá hvernig veðrið þróast yfir daginn. Vonandi gengur spáin ekki eftir, því það vonskuveður sem hefur mátt greina úr óárennilegum kortum veðurstofunnar getur valdið miklu tjóni og verið skaðlegt.
Förum varlega...
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir