Topp 10 - Bestu teiknimyndir sögunnar

Teikni­myndir hafa þró­ast í tím­ans rás með undra­verðum hætti. Þær eru ekki aðeins fyrir börn, og margar þeirra þykja með áhrifa­mestu kvik­myndum sem komið hafa fram á hvíta tjaldið. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur tók saman lista yfir tíu teikni­myndir sem hann telur bestu teikni­myndir sög­unnar.

10. FANTASTIC MR. FOX – Bandaríkin, 2009

Leik­stjór­inn Wes Anderson hefur gert það gott í Hollywood á und­an­förnum árum með kvik­myndum á borð við Rushmore, The Royal Tenen­baums og The Grand Budapest Hotel. Hinn frá­bæri refur er þó eina teikni­myndin sem hann hefur gert. Hún ber þó aug­ljós merki þess að vera Anderson-mynd því að myndir hans hafa ákaf­lega sér­stakan stíl, þá sér­stak­lega kvik­mynda­takan sem ein­kenn­ist af flötum og sam­hverfum römmum. Hvert atriði er í raun eins og mál­verk. Auk þess notar hann yfir­leitt sömu leik­ar­ana í sínum eins og t.d. Bill Murray, Owen Wilson og Willem Defoe sem allir koma við sögu hér. Myndin er byggð á sam­nefndri barna­bók Roalds Dahl frá árinu 1970 og fjallar um bar­áttu smá­dýra við þrjá bændur. Dýrin eru leidd af hinum frá­bæra ref sem tal­settur er af sjálfum George Clooney.

9. KOKAKU KIDOTAI – Japan, 1995

Flest vin­sæl manga blöð enda sem annað hvort eða bæði teikni­mynda­þættir og kvik­myndir. Draug­ur­inn í skel­inni er þar engin und­an­tekn­ing. Myndin er vís­inda­skáld­skapur sem ger­ist árið 2029 í asískri stór­borg sem aug­ljós­lega er byggð á Hong Kong. Sérstakt lög­gæsluteymi er fengið til þess að kló­festa hættu­legan hakk­ara sem kall­ast Puppet Master. Net-og tölvu­væð­ing er sér­stakt þema í mynd­inni og hvernig fólk og tölvur sam­ein­ast í svoköll­uðum “skeljum” eða gervi­lík­ömum. Draug­ur­inn í skel­inni hafði gríð­ar­mikil áhrif út fyrir hinn þrönga heim jap­anskra anime teikni­mynda. Mark hennar sést t.a.m. í Hollywood kvik­mynd­unum The Matrix, Avatar o.fl. Brátt fáum við einnig að sjá leikna end­ur­gerð af kvik­mynd­inni með sjálfri Scarlett Johans­son í aðal­hlut­verki.

8. SNOW WHITE AND THE SEVEN DWARFS – Bandaríkin, 1937

Mjall­hvít og dverg­arnir sjö er fyrsta hand­teikn­aða kvik­myndin í fullri lengd. Hún er byggð á hinu fræga þýska ævin­týri sem Grimms-bræður gáfu út á prenti á 19. öld. Walt Disney hafði á þessum tíma gert garð­inn frægan með stuttum teikni­myndum en hann vildi færa út kví­arnar og lagði því allt í söl­urnar og veð­setti allar eigur sínar til að fram­leiða mynd­ina. Menn héldu að þetta væri hans feigð­ar­flan en myndin sló hins vegar svo ræki­lega í gegn að hún er ennþá með tekju­hæstu kvik­myndum allra tíma. Fyrir gróð­ann af mynd­inni kom Disney upp stóru teikni­mynda­veri og á næstu árum á eftir fram­leiddi hann teikni­myndir á borð við Gosa, Dúmbó, Bamba og hina draum­kenndu Fantasíu. Íslend­ingar telja sig eiga hlut í þessu ævin­týri þar sem fyr­ir­myndin að Mjall­hvíti Disneys gæti vel hafa verið stúlka að nafni Kristín Sölva­dóttir.

7. VALHALLA – Danmörk, 1986

Teikni­mynda­bæk­urnar Goð­heimar eru okkur Íslend­ingum að góðu kunnar. Þær hafa verið gefnar út af danska teikn­ar­anum Peder Madsen síðan á átt­unda ára­tug sein­ustu aldar en hann leik­stýrði einmitt sjálfur teikni­mynd­inni Valhöll sem var byggð á nokkrum af bók­unum. Efni­viður Madsens er hin forna heiðni sem hann togar og teygir í ýmsar áttir. Í Valhöll fylgj­umst við með för þrumuguðs­ins Þórs og föru­neyti hans til Útgarða Loka eins og segir í Snorra-Eddu. Myndin var gríð­ar­vin­sæl á Norð­ur­löndum þegar hún kom út en fjár­mögnun hennar fór alger­lega úr bönd­unum og hún er því ennþá

tap­mesta kvik­mynd Dan­merkur frá upp­hafi. Myndin lagði þó grund­völl­inn að danskri teikni­mynda­gerð og hóp­ur­inn sem kom að henna átti seinna eftir að gera myndir á borð við

Skóg­ar­dýrið Húgó

og

Hjálp, ég er fiskur!

6. SOUTH PARK: BIGGER, LONGER & UNCUT – Bandaríkin, 1999

Hinir illa teikn­uðu….. eða illa límdu þættir tvíeyk­is­ins Trey Parker og Matt Stone hófu göngu sína árið 1997 og ullu strax fjaðrafoki. Fólk var vant því að sjá hinn nokkuð djarfa húmor Simpsons fjöl­skyld­unnar á skjánum en South Park fóru langt yfir öll vel­sæm­is­mörk. Parker og Stone hafa eign­ast fjöl­marga óvini í gegnum tíð­ina enda margir verið teknir fyrir í beittu háði þátt­anna. Reynt hefur verið að stöðva fram­leiðslu þeirra eða fá þá til að milda tón­inn og gera þá fjöl­skyldu­vænni. Kvik­myndin var því ein­hvers konar yfir­lýs­ing Parker og Stone um að rit­skoðun yrði ekki liðin. Myndin sló í gegn og var meira að segja til­nefnd til Ósk­arsverð­launa. Vita­skuld mættu félag­arnir á rauða dreg­il­inn í lit­ríkum kjólum og útúr­dóp­aðir á sýru.

5. LEGO MOVIE – Bandaríkin, 2014

Danski kubbafram­leið­and­inn Lego hefur verið í miklum vexti und­an­farin ár og er orð­inn stærsti leik­fanga­fram­leið­andi heims. Lego hafa fært út kví­arnar m.a. með gerð tölvu­leikja og teikni­mynda. Fyrsta stóra Lego kvik­myndin leit dags­ins ljós á sein­asta ári og fleiri eru í burð­ar­liðnum. Lego Movie varð mjög vin­sæl þá sér­stak­lega fyrir hraðar klipp­ingar og ferskan húmor. Myndin lítur út fyrir að vera tekin upp með alvöru Lego-kubbum en svo er reyndar ekki heldur er hún að mestu tölvu­gerð. Fram­leið­end­urnir fengu kubba­hönn­uði með sér í lið og aðgang að gríð­ar­stórum tölvu­gagna­grunni fyr­ir­tæk­is­ins. Allt varð að passa eins og það gerir í alvör­unni. Í mynd­inni er tek­ist á um það hvort fylgja eigi leið­bein­ingum eða hugsa sjálf­stætt og skapa eitt­hvað nýtt. Flestir Lego-aðdá­endur falla í annan hvorn hóp­inn en boð­skapur mynd­ar­innar er sá að ein­hvers konar milli­vegur sé bestur.

4. HOTARU NO HAKA – Japan, 1988

Ghibli kvik­mynda­verið í Tokyo ber höfuð og herðar yfir aðra í jap­anskri anime teikni­mynda­gerð. Ein merkasta kvik­mynd sem komið hefur þaðan er Gröf eld­flugn­anna eftir Isao Takahata. Myndin er byggð á sam­nefndri smá­sögu frá árinu 1967 og fjallar um lífs­bar­áttu systk­in­anna Seita og Setsuko undir lok seinni heim­styrj­ald­ar­innar. Þau búa í borg­inni Kobe sem er undir stöð­ugum loft­árásum amer­ískra flug­véla. Þær varpa eldsprengjum sem valda gríð­ar­miklum elds­voðum, vopn sem notað var til að valda sem mestri skelf­ingu. Móðir systk­in­anna deyr í einni slíkri árás og þau þurfa að bjarga sér sjálf. Skyld­menni afneita þeim og þau leið­ast út í þjófnað til þess að reyna að kom­ast af. Hinn mikli gagn­rýn­andi Roger Ebert sagði að Gröf eld­flugn­anna fái mann til að end­ur­hugsa teikni­myndir sem list­form. Þetta eru ekki bara skrípa­myndir fyrir börn.

3. JUNGLE BOOK – Bandaríkin, 1967

Frum­skóg­ar­bók breska rit­höf­und­ar­ins Rudyards Kipling kom út árið 1894. Saga af ungum ind­verskum dreng (Mowgli) sem elst upp hjá úlfum. Hann kynn­ist pardusnum Bakír og birn­inum Balla og þarf að kljást við kyrkislöng­una Karúnu og tíg­ur­inn Shere Khan. Teikni­myndin er reyndar mun heil­steypt­ari og ein­fald­ari saga en bókin sem er sam­an­safn af styttri sögum. Hún er þó ein­stak­lega vel heppnuð og er ein af allra vin­sæl­ustu teikni­mynd­unum sem Walt Disney fram­leiddi og reyndar sú sein­asta en hann lést ári áður en hún var frum­sýnd. Það sem stendur upp úr í mynd­inni er tón­listin sem er í alla staði frá­bær og nokkuð sér­stök. Þar ber helst að nefna atriðið þegar Mowgli kynn­ist órangút­anum Lúlla kóng sem tal­settur er af jazz stjörn­unni Louis Prima. Það er ekki hægt annað en að dilla sér með.

2. LA PLANÉTE SAUVAGE – Frakkland/Tékkóslóvakía, 1973

Kveikjan að gerð mynd­ar­innar um Hina ótrú­legu planetu var inn­rás Sov­ét­manna í Tékkóslóvakíu árið 1968. Hún er fram­leidd þar en leik­stýrð af Frakk­anum René Laloux og tal­sett á frönsku. Efni­við­ur­inn var lítið þekkt frönsk vís­inda­skáld­saga, Oms en série frá 1957. Myndin fjallar um harða bar­áttu manna (oms) gegn mun stærri og tækni­vædd­ari vera (draags). Draags halda suma oms sem gælu­dýr sem börnin þeirra leika sér að en þeir eiga það einnig til að ganga hart gegn þeim og drepa þá líkt og um mein­dýr væri að ræða. Valda­jafn­vægið raskast þó þegar oms ná að flýja frá heima­plánet­unni Ygam til nálægs tungls, eða hinnar ótrú­legu plánetu. Myndin er skotin og klippt í hinum svo­kall­aða stop-motion stíl. Hún er ákaf­lega fal­leg en jafn­framt fram­and­leg og sum atriðin eru mjög torskilin.

1. ANIMAL FARM – Bretland, 1954

Dýrabær var fyrsta breska teikni­myndin í fullri lengd, gerð eftir hinni frægu bók George Orwells frá árinu 1945. Myndin fjallar um það þegar hús­dýr á enskum sveitabæ gera upp­reisn gegn bónd­anum og taka sjálf stjórn­ina. Þetta er þó auð­vitað allegóría af Októ­ber­bylt­ing­unni í Rúss­landi árið 1917 og fyrstu ára­tugum Sov­ét­ríkj­anna. Bylt­ingin er leidd af svín­unum Old Major (Marx), Snowball (Trotsky) og Napoleon (Stalín) og sýnir hvernig þau verða engu betri en bónd­inn sjálfur (keis­ar­inn). Lengi vel var fjár­mögnun mynd­ar­innar haldið leyndri, meira að segja fyrir teiknur­unum sjálfum. Árið 1974 kom í ljós að CIA stóð að baki mynd­inni enda hent­aði sagan vel í áróð­urs­vél þeirra í kalda stríð­inu. Myndin er und­ar­leg blanda af Disney-legum teikn­ingum og nap­ur­legu en jafn­framt kraft­miklu póli­tísku mynd­máli. Svo er hún lysti­lega tal­sett af Maurice Denham sem tal­aði fyrir öll dýr og menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár