Auglýstum fasteignum hefur fækkað um nærri fjórðung á einu ári

Aug­lýstum fast­eignum á fast­eigna­vef Morg­un­blaðs­ins hefur fækkað um 23 pró­sent á einu ári, þ.e. milli sept­em­ber 2014 og sept­em­ber 2015. Í þeim mán­uði í fyrra voru að með­al­tali um 3912 eignir aug­lýstar sam­an­borið við ein­ungis um 3024 í sept­em­ber 2015. Mestur er sam­drátt­ur­inn á aug­lýstum ein­býlis-, rað- og par­húsum, eða ríf­lega 30 pró­sent. Sam­dráttur á aug­lýstum fjöl­býl­is­í­búðum og hæðum nemur rúm­lega 20 pró­sentum.

Þetta má sjá í hag­vísum Seðla­banka Íslands sem birtir voru í síð­ustu viku. Þróunina á aug­lýstum fast­eignum til sölu má sjá hér að neðan. Sam­drátt­ur­inn er einkum merkj­an­legur frá síð­ustu mán­uðum árs 2014.


Fast­eigna­verð hefur farið ört hækk­andi und­an­farin tvö ár og nemur hækkun síð­ustu tólf mán­aða rúm­lega átta pró­sentum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt mæl­ingum Þjóð­skrár. Einn helsti þáttur sem drífur hækk­anir eru skortur á fram­boði. Fjöldi aug­lýstra fast­eigna til sölu bendir til að þeim hafi fækkað veru­lega að und­an­förnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár